Íþróttablaðið - 01.01.1979, Síða 35
a um atvinnumenskuna
\----------
r/l Þórðarson
nattspyrnu-
ður ársins”
skuldað sigur en þeir. Mig
grunaði ekki, þegar við töp-
uðum fyrir þeim 0-1 hérna á
Akranesi, að það yrði svo af-
drifaríkt fyrir okkur. En það
þarf svolitla heppni til þess að
vinna svona mót, og þeir
höfðu hana að þessu sinni.
Það var okkur hins vegar mikil
sárabót að vinna bikarkeppn-
ina, en þar með hafði ég og
fleiri félagar mínir unnið all-
flesta þá titla sem unnt er að
vinna til hérlendis. Þegar á
heildina er litið er ég tæpast
nógu ánægður með íslenzka
knattspyrnu á þessu keppnis-
tímabili. Akurnesingar og
Valsmenn skáru sig of mikið
úr til þess að mótið yrði
skemmtilegt. Það var of mikill
munur á liðunum í 1. deild.
Hefðu fleiri lið blandað sér í
toppbaráttuna, hefði mótið
ugglaust verið skemmtilegra
og dregið til sín fleiri áhorf-
endur, en raun ber vitni. Það
var aðeins hægt að tala um
sæmilega aðsókn þegar þessi
tvö lið voru að keppa. Þegar
leikjafjöldinn er orðinn eins
mikill og raun ber vitni, er
þess varla að vænta að mikill
áhorfendaskari sé á þeim
leikjum sem hafa ekki mikið
að segja.
— Er það ekki mikil blóð-
taka fyrir Akranesliðið að
missa ykkur Pétur í atvinnu-
knattspyrnuna?
— Það er alltaf svo að
maður kemur í manns stað,
þannig hefur það minnsta
kosti verið hér. Það hefur áður
skeð að tveir af toppmönnum
hðsins hafi farið í einu, en eigi
að síður hélt liðið sínu, og vel
það. Ég hef trú á að svo verði
n, Hörð Hilmarsson og Albert Guðmundsson
áfram. Það er mikill áhugi
ríkjandi hér og margir ungir
og efnilegir knattspyrnumenn
að koma fram á sjónarsviðið,
sem fá nú aukin tækifæri á að
sýna hvað í þeim býr.
— Hver var eftirminnileg-
asti leikur þinn á keppnis-
tímabilinu?
— Þar er sannarlega af
mörgu að taka, en ég held þó
að ég verði að nefna bikarúr-
slitaleikinn, ef ég á að taka
einn leik út úr. Það var stór
stund fyrir mig og aðra Akur-
nesinga, þegar sá sigur var í
höfn. Nú, og ég get einnig
nefnt báða leikina við FC
Köln í Evrópubikarkeppn-
inni, þeir voru mjög skemmti-
legir.
Sem fyrr segir hefur Karl nú
gert samning við belgíska 1.
deildar liðið La Louviere, og
var hann að pakka niður í
töskur sínar, þegar íþrótta-
blaðið ræddi við hann í árs-
byrjun.
— Ég var lengi búinn að
ala þann draum með mér að
verða atvinnuknattspyrnu-
maður, og er því ánægður með
það tækifæri sem ég fæ núna,
en ég hef gert samning við La
Louviere, sem nær fram í maí
árið 1980. Ég var búinn að
fara og kynna mér aðstæður
hjá liðinu áður en ég gerði
samninginn, og réði það miklu
hversu vel forráðamenn fé-
lagsins komu fram við mig og
félag mitt, að ég valdi það.
Mér var tekið tveim höndum
er ég kom til þeirra, það var
hreint ekki eins og ég væri að
koma þarna í fyrsta sinn. Ég
horfði á félagið leika einn leik,
Framhald á bls. 65
35