Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 57

Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 57
Baldvin Berndsen skrifar um golf: Síðasta púttið var 6,5 milljón króna virði! John Mahaffey fagnar hinu vel heppnaða pútti sínu Fyrsta stórkeppnin í golfi hérlendis fór fram í síðustu viku. Keppnin var Bob Hope Desert Classic og var haldin í Palm Springs, Kaliforníu. Hinn heimsfrægi leikari Bob Hope er frumkvöðull þessarar keppni og rennur allur ágóði af keppninni til Eisenhower sjúkra- hússins, sem er í Palm Springs. Leikið var á 5 golfvöllum, en síð- asti hringur var leikinn á Indian Wells vellinum sunnudaginn 14. janúar. Bob Hope sendir á hverju ári boð til ýmissa frægra lands- manna, sem taka þátt í mótinu og leika með atvinnumönnunum fyrstu fjóra hirngina og er keppt um bikar. Þátttaka fyrir áhuga- mennina kostar tvö þúsund doll- ara. Frægir menn tóku þátt í þessu móti nú, t.d. Gerald Ford, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, leikararnir Clint Eastwood, Jack Lemmon og sjónvarpsstjörnurn- ar Lawrence Welk og Andy Williams. Eftir fyrsta dag keppninnar var John Mahaffey í öðru sæti, einu höggi á eftir Bob Murphy. Murphy lék hringinn á 65 högg- um en Mahaffey á 66. Eins og við áhugamenn vitum hve golfið getur verið erfitt viðureignar á það ekki síður við um atvinnu- mennina, því Murphy, með sína 65 varð í síðasta sæti í keppninni (358 högg) og fékk greidda 927 dollara, sem varla hefur nægt fyrir hótelkostnaði og mat fyrir hann. Mahaffey hélt aftur á móti áfram að leika af algerri snilld og var hann einu höggi á undan Keith Fergus þegar sunnudagur rann upp. Hringirnir hjá Mahaffey voru 66, 68, 72, 68 og einn hringur eftir. Eini maðurinn sem virtist geta náð Mahaffey var Lee Trevino, og byrjaði hann síðasta hring 2 höggum á eftir Mahaffey. Jack Nicklaus var fimm höggum á eftir, og virtist ætla að ná sér á strik þegar hann sló holu í höggi á sjöttu braut, sem er 146 yardar. Jack notaði járnkylfu númer 8 og var þetta þriðja hola í höggi hjá honum í opinberri keppni. Ekki varð þó úr því að Nicklaus næði þeim Trevino og Mahaffey og endaði hann í 11. sæti á 350 höggum. Keppninni lauk á mjög skemmtilegan hátt. Trevino, sem var í hópnum á undan Mahaffey, kom að 18. holunni einu höggi á eftir Mahaffey, og þurfti því (,,birdie“) einn undir pari til að jafna og („eagle") tvo undir pari til að færa taugaspenninginn yfií á Mahaffey. 18. holan er par 57
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.