Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 59

Íþróttablaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 59
Kynnið Þorstein Bjarnason — lesendabréf til blaðsins Mig langar að gefa ykkur góðar ábendingar um efni í íþróttablaðinu í framtíðinni. Ég vil koma á framfæri þakklæti til blaðsins fyrir frábær viðtöl við merka íþróttamenn, og ég óska þess í framhaldi af því að þið kynnið og takið viðtal við þor- stein Bjarnason, ÍBK, þann snjalla íþróttamann. Þá ætla ég að geta þess að alls kyns talna- leikir eru mjög vinsælir í blöðum eins og t.d. hverjir hafa leikið flesta landsleiki, og hvað marga, hvaða lið hafa leikið flesta leiki í Evrópukeppninni í knattspyrnu hér á landi, og hversu marga, og svo framvegis. Þá vil ég biðja ykkur að birta eftirfarandi lista yfir þá knattspyrnumenn sem hafa skorað flest mörk í 1. deildar keppninni hér á landi frá upp- hafi, og þá á ég við samanlagt, en þessar athyglisverðu upplýsingar sá ég í merku blaði fyrir stuttu síðan. En listinn er þannig: Nafn Mörk Hermann Gunnarsson 92 Ingi .Bj. Albertsson 80 Matthías Hallgrímsson 77 Kristinn Jörundsson 58 Steinar Jóhannsson 57 Gunnar Felixson 57 Eyleifur Hafsteinsson 57 Ingvar Elísson 57 Öm Óskarsson 56 Ellert B. Schram 56 Teitur Þórðarson 51 Þórólfur Beck 49 Kári Árnason 46 Mér hefur fundist blaðið taka miklum framförum að undan- förnu, góðar greinar eru um knattspymu, handknattleik, golf, lyftingar, sund o.s.frv. Það efni sem ég hef mestan áhuga á að lesa í íþróttablaðinu eru greinar um knattspyrnu, handknattleik og viðtöl við íþróttafólk sem skarað hefur framúr. Langléleg- ustu greinarnar, jafnframt þær leiðinlegustu í blaðinu eru grein- ar um útilíf og ferðalög sem ættu að mínu áliti ekki að vera í íþróttablaði, og það er athyglis- vert að á sama tíma og í íþrótta- blaðinu eru greinar um heil- brigða og góða leiki, þá er fjallað um grimmdarlegar refaveiðar, laxveiðar og minkaveiðar. Er verið að skemmta skrattanum með þessu. Að lokum vona ég, að þið rit- stjórar takið þessum ábendingum vel, og ég óska ykkur og íþrótta- blaðinu velfarnaðar í framtíð- inni. — Með vinarkveðju E.K. — Áskrifandi íþróttablaðs- ins Svar: Við þökkum E.K. hlýleg orð í garð íþróttablaðsins, svo og góðar ábendingar, sem vissulega verður tekið tillit til. Eitt af hlut- verkum íþróttahreyfingarinnar og þá jafnframt íþróttablaðsins er að hvetja til útivistar og hreyf- ingar og af þeim sökum hefur nokkru af rými blaðsins öðru hverju verið varið til þessa. Hefur verið kvartað yfir því að blaðið sinni tæpast þessum þáttum nægjanlega, og sýnist því sitt hverjum, eins og ævinlega. En rétt er að nota þetta tækifæri til þess að hvetja lesendur blaðsins til þess að senda okkur línu og láta í ljós álit sitt á blaðinu, svo og koma með óskir um efni. — ritstj. Framleiðum: Snjóþotur Tvær gerðir, stórar og litlar úr mjög sterku plasti Fataskúffur tværgerðir, handhægar í fataskápa Skilti með áletrunum í mörgum litum til merkingar á vinnustöðum, í skólum, á skápa Fiskibakkar tvær gerðir, 10 lítra og 20 lítra bakkar í frystihús og við matvælaframleiðslu. PLASTIÐJAN BJARG HVANNAVELLIR 10 SÍMI (96) 2-26-72 PÓSTHÖLF 610 AKUREYRI — ÍSLAND 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.