Íþróttablaðið - 01.11.1991, Síða 18
Ahugasamir Minni-bolta strákar.
MINNI-BOLTI
9-11 ÁRA
Um 30-40 strákar voru á körfu-
boltaæfingu í minni-bolta undir
stjórn Jóns Guðbrandssonar og Ste-
fáns Arnarsonar. Að sögn Jóns er
áhuginn gífurlegur í þessum aldurs-
flokkum og hann sagði að keppnis-
fyrirkomulagið væri í formi túrner-
inga. Hann var bjartsýnn fyrir vetur-
inn og sagði að innan um leyndust
hetjur framtíðarinnar í kört'ubolta.
8. flokkur ásamt Nökkva Jónssyni þjálfara.
7. flokkur ásamt Júlíusi Friðrikssyni þjálfara.
7. FLOKKUR
Það var skemmtileg upplifun að
fylgjast með íslandsmeisturum
Minni-boltans (11 ára) frá því í fyrra,
sem tilheyra nú 7. flokki. Júlíus Frið-
riksson sér um þjálfun flokksins og
var hrein unun að fylgjast með því
hvernig hann stjórnaði lærisveinum
sínum. Júlíus er að þjálfa hjá Keflavík
fjórða árið í röð og segist líka það
mjög vel. „Þetta eru allt leikmenn
framtíðarinnar og hópurinn telur um
20 manns. Jú, við ætlum okkur að
verða íslandsmeistarar. Annað kem-
ur ekki til greina."
Það varengu líkara en maðurværi
staddur á heræfingu úti í heimi því
strákarnir öskruðu í tíma og ótíma,
eftir bendingum Júlíusar, og einbeit-
ingin skein úr augum þeirra. Þeir
lögðu sig alla fram og slógu hvergi
slöku við. Raddir í íþróttahúsinu
hvísluðu því að íþróttablaðinu að
Júlíus vareinstakur þjálfari ogeinn sá
efnilegast á landinu.
TVÆR ÚR
TUNGUNUM??
í öllum strákaskaranum á æfingu
hjá minni-boltanum sást glitta í tvær
stelpur. Þær sögðust heita Helena
Eyjólfsdóttir og Bryndís Gísladóttir
og aðspurðar sögðust þær fá að vera
með strákunum af því þær væru svo
stórar. Þær æfa líka með sínum ald-
ursflokki í stúlknaflokki og sögðu að
það væri skemmtilegra að æfa með
stelpum. „Það er skemmtilegast að
spila," sögðu þær en þær fengu varla
frið til þess að ræða við íþróttablaðið
því strákarnir héngu utan í þeim.
8. FLOKKUR
Nökkvi Jónsson, leikmaður meist-
araflokks, er þjálfari 8. flokks í körfu-
bolta. í þeim flokki eru 13 ára gamlir
strákar. Þótt þeir hafi ekki náð að
verða Islandsmeistarara í fyrra sögð-
ust þeir vera staðráðnir í því að verða
bestir í vetur.
GÓRILLUBOLTI
Það er grei n i legt að einh ver ríg-
ur er á milli handboltans og körfu-
boltans á Suðurnesjum því þegar
íþróttablaðið fylgdist með æfingu
hjá meistaraflokki karla í hand-
bolta skoppaði körfubolta óvænt
inn á gólfið. „Burt með þennan
górilluboltal," hrópaði þáeinhver
en vitanlega var það meira í gríni
en alvöru.
Helena Eyjólfsdóttir og Bryndís
Gísladóttir.
18