Íþróttablaðið - 01.11.1991, Page 33
KASTUR!
MAGNUS VER MAGNUSSON
„STERKASTl MAÐUR HEIMSy<
Af röddinni að dæma gæti hann allt
eins verið guðfræðinemi við Há-
skóla íslands. Hann er yfirvegaður,
talar hægt og örugglega og kemur
því skýrt og skilmerkilega frá sér sem
hann hefur að segja. Næstum því
eins og hann væri að tala úr predik-
unarstóli.
En aðspurður segist sterkasti maður
heims ekki trúa á Guð — heldur
sjálfan sig. Segist allavega ekki hafa
orðið var við neinn Guð, hingað til.
Maður, sem vinnur til þess „stóra"
titils að vera sterkasti maður heims,
hlýtur að hafa trú á sjálfum sér.
í æsku var hann sagður frekar feim-
inn og hlédrægur og eftir stundar-
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Myndir: Gunnar Gunnarsson og
Kristján Einarsson
spjall virðast þeir þættir ekki hafa
yfirgefið hann fyrir fullt og allt. „Ég á
mínar slæmu hliðar," segir Magnús
Ver. „Það leynist skap í mér en ég
nota það mest á lóðin og í keppni.
Menn hafa sagt um mig að ég sé
góður keppnismaöur og það finnst
mér hrós. I sannleika sagt næ ég oft-
ast að bæta mig í keppni.
Nei, ég get ekki sagt að ég hafi
verið ofbeldishneigður unglingur. Þó
kom það fyrir að ég lenti í slagsmál-
um á sveitaböllunum ígamla daga en
það var oftast vegna þess að menn
viltu reyna sig við „þennan strákling"
sem var farinn að fikta við lóðin.
Leikar fóru yfirleitt þannig að menn
fóru grátandi frá mér."
Magnús segir þetta með stóískri ró
og því varla hægt að efast um sann-
leiksgildi orðanna. Líklega vilja fæst-
ir takast á við sterkasta mann heims í
VEITIR í FYRSTA SKIPTI
VIÐTAL EFTIR
AÐ HANN HLAUT TITILINN