Íþróttablaðið - 01.11.1991, Síða 36
Magnús Ver þarf ekki að vera fjórhentur til þess að bera af í heiminum í
aflraunum því hann veit ávallt hvað klukkan slær þegar kraftakeppnir eru
annars vegar.
unum um borð því það veiddist ekk-
ert."
Fyrir austan byrjaði Magnús Ver í
boltaíþróttum einsog svo margiraðr-
ir. Hann segist hafa stundað fóbolta,
handbolta og körfubolta á sínum
yngri árum en aldrei fundið sig íþeim
greinum. „Þegar Óskar Sigurpálsson
kom til starfa sem lögreglumaður á
Seyðisfirði kynntist ég lóðum fyrst.
Hann lét panta slatta af lóðum og ég
mætti fyrstur á svæðið þegar búið var
að koma þeim fyrir. Upp frá því var
ekki aftur snúið."
Þar sem Magnús missti föður sinn
aðeins ársgamall spurði ég hvort
hann og móðir hans væru ekki náin.
„Því miður sjáumst við ekki nema
tvisvar sinnum á ári. Hún býr á Egils-
stöðum ásamt fósturföður mínum."
— Hversu miklar tilfinningar rúm-
ast í svona stórum skrokki?
„Ég er ekki tilfinningalaus."
— Ertu tilfinninganæmur?
„Kannski á sumum sviðum — öðr-
um ekki."
— Græturðu stundum?
„Nei."
— Ekki einu sinni þegar þú vannst
titilinn á dögunum?
„Nei, en konan mín grét."
Eiginkona Magnúsar Vers heitir
Lilja Bjarnþórsdóttir en þau eiga
þriggja ára gamla dóttur sem heitir
Maríanna. Magnús og Lilja kynntust í
helli — reyndar ekki bara einhverj-
um helli en það var trefill í óskilum
sem varð tiI þess að þau rugluðu sam-
an reytum.
„Ég var að vinna sem dyravörður á
veitingastaðnum Hellinum við
Tryggvagötu þegar ég sá hana fyrst.
Við tókum tal saman vegna trefils
sem var í óskilum í Hellinum og
kvöldi síðar rakst ég á hana á Hótel
Borg. Upp frá því höfum við verið í
einni sæng."
Magnús er nokkuð viss um það að
frami hans sem kraftlyftingamaður
hefði verið mun skjótari ef hann hefði
komist fyrr í kynni við lóðin. Samt
sem áður hefur hann tvívegis orðið
Evrópumeistari en það er besti árang-
ur íslendings í kraftlyftingum. „Skúli
Óskarsson setti reyndar heimsmet á
sínum tíma en hann varð aldrei
heimsmeistari," segir Magnús. „Ann-
ars var það skemmtilegast af öllu að
ná bestum árangri yfir alla flokka á
síðasta Evrópumeistaramóti því það
er oft erfitt að skáka „litlu körlunum".
Menn fá reiknuð stig miðað við eigin
þyngd og hversu miklu þeir lyfta og
það er yfirleitt hagstæðara fyrir létta
keppendur."
íslandsmetin sem Magnús Ver á
um þessar mundir eru 5 en 12-14
sinnum hefur hann bætt íslandsmet-
in. Þó segist hann ekki vera með það
alveg á hreinu. Að auki setti hann
fjölda unglingameta, á sínum tima,
sem hann kann ekki að þylja upp.
Magnús á líka hæsta stigaskor íslend-
ings fyrir samanlagðan árangur í
kraftlyftingum, sem er 529 stig fyrir
það að lyfta 1015,5 kg. Hjalti Úrsus
Hf-TEC
„ÞÚ SKALT EIGA MIG Á FÆTI"
36