Bændablaðið - 30.07.2020, Síða 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 20206
Á sumarleyfistímum er lítið um að vera í
hinu opinbera kerfi. Allir njóta þess að ferðast
innanlands eins og ráðlegging þríeykisins
hljómaði í upphafi sumars. Það er ánægjulegt
að sjá og finna hversu Íslendingar eru duglegir
að nýta það sem landið okkar hefur upp á
að bjóða. Bæði í afþreyingu og þjónustu
úti um allt land. Ferðaþjónustan í hinum
dreifðu byggðum nýtur góðs af því þessar
fáu vikur sem við leyfum okkur að hverfa frá
amstri hversdagsins. Við sem einstaklingar
beinum okkar viðskiptum að innlendum
þjónustuaðilum sem nú sakna sárlega allra
erlendu gestanna sem voru margfalt fleiri
en búa hér á landinu bláa. Eitthvað er nú að
glæðast í þeim efnum en ég hef talsverðar
áhyggjur af þeim tíðindum sem berast frá
Evrópu vegna svokallaðrar seinni bylgju
kórónuveirunnar. Sums staðar er rætt um að
taka upp ferðatakmarkanir að nýju sem vekur
okkur til umhugsunar hversu lengi þetta ástand
kemur til með að vara. Ferðaþjónustan á ekki
sjö dagana sæla og þarf að þreyja þorrann
og góuna. Rekstraraðilar sjá þegar fram á
mikið tekjufall og margir ágætir starfsmenn
í ferðaþjónustunni eru nú atvinnulausir. Í
ljósi þess verðum við að treysta því að ríki
og sveitarfélög ásamt bankakerfinu komi til
með að sýna ástandinu skilning.
Kolefnisspor matvælaframleiðslunnar
Alltaf sprettur upp umræða um kolefnisspor
íslensks landbúnaðar og sumir halda því
fram að hann sé mesti skaðvaldur í öllum
kolefnissporum landsins. Það er af og frá.
Við höfum lifað í gegnum aldir á afurðum
okkar hér heima og eigum að vera stolt af því.
Það eru talsverð kolefnisspor af innflutningi
og einnig af framleiðslunni í öðrum löndum.
Við bændur getum lagt heilmikið af mörkum
til þess að bregðast við loftslagsvandanum.
Nýleg umhverfisstefna Bændasamtakanna
rammar ágætlega inn vilja bænda. Við
viljum stunda landbúnað á Íslandi í sátt við
náttúruna og alla þegna landsins. Það eru mörg
tækifæri sem liggja í betri búskaparháttum
og bændur geta sótt fram á mörgum sviðum.
Við eigum til dæmis alltaf að keppa að bættri
afurðasemi gripa, betri nýtingu á tilbúnum
áburði og búfjáráburði, loftslagsvænni
ræktunaraðferðum og nýta orkuna eins vel
og hægt er. Þannig leggjum við okkar af
mörkum.
Umræðan um loftslagsmálin er hins vegar
flókin og tekur á sig ýmsar myndir. Það sem
einum þykir augljós sannleikur einn daginn
getur verið hin mesta bábilja þann næsta.
Mér þótti athyglisvert að ræða plastnotkun
við finnska kollega mína í garðyrkjunni fyrir
nokkru. Þeir hafa fengið háskóla í Finnlandi
til að gera úttekt á þeirra málum. Meðal
annars var metið hvaða áhrif plastnotkun
í gúrkuframleiðslu hefði á sótsporið.
Niðurstaðan var sú að gúrka í plasti endist
betur og er ekki nema tvo sólarhringa að vinna
upp kolefnissporið sem tapast með rýrnun á
vörunni ef ekkert væri plastið. Matarsóun er
stór breyta sem þarf að taka tillit til. Það er
mikið unnið með því að auka geymsluþol
matvara og minnka þannig sóun. Þá þarf að
framleiða færri gúrkur og sótsporið er minna
fyrir vikið. Plastið er því ekki alslæmt! Í
mínum huga er plastið ekki vandamálið ef við
höfum farveg til að endurnýta eða endurvinna
það. Þar eru fjölmargir möguleikar sem við
erum ekki að nýta okkur í dag.
Búskapur er eins og lífsins lotterí
Uppskera bænda er misjöfn milli landshluta
og ekki hafa veðurguðirnir verið öllum
jafn hliðhollir. Á Suðurlandi muna menn
vart eftir annarri eins uppskeru af túnum á
meðan bændur á Norðaustur- og Austurlandi
hafa þurft að lifa við óhemju mikið kal í
vor og takmarkaða uppskeru af endurrækt
vegna þurrka og kulda á nóttunni. Útiræktað
grænmeti er farið að streyma á markað en
það er svona í meðallagi varðandi árstíma
þar sem kuldi í vor seinkaði aðeins þroska.
Kornakrar líta vel út á flestum stöðum og eru
væntingar um góða uppskeru í haust. Það er
nú samt ekkert öruggt í þessu lífi.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 11.200 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 7.200 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Gætum hagsmuna
hver annars
Það er áþreifanleg spenna í þjóðfélaginu
þrátt fyrir að nú séu flestir landsmenn í
sumarleyfum. Bannsett kórónuveiran er
að sækja í sig veðrið á ný og fjöldi nýrra
smita minnir okkur á að fara að öllu með
gát. Veðurspá verslunar mannahelgarinnar
er með þeim hætti að áhyggjur af úti-
samkomum sem ögra fjöldatakmörkunum
virðast óþarfar. Einhver gárungurinn sagði
að Þórólfur sóttvarnalæknir hefði verið
bænheyrður þegar hann sá rigningarmerkin
í veðurkortunum. Kári Stefánsson birt-
ist í fréttatímanum í vikunni og tilkynnti
þungur á brún að Íslensk erfðagreining
ætlaði að taka til við skimun á ný. Hrós
til Kára og hans fólks!
Þrátt fyrir ferðagleði landans hvílir
skuggi yfir ferðaþjónustunni sem berst í
bökkum. Þar hafa margir misst vinnuna á
síðustu vikum og það er sárt. Fjöldi fyrir-
tækja er tæknilega gjaldþrota og ljóst að
kraftaverk þarf til að rekstur margra þeirra
geti haldið áfram óbreyttur. Samkvæmt
mælingum Hagstofunnar var fjöldi
atvinnulausra í júní 8.300 manns, eða um
4,1% af vinnuaflinu í landinu. Þessar tölur
eiga vafalaust eftir að hækka í haust þegar
sumarvertíðinni lýkur. Annars er óvissan
mikil og enginn getur í raun og veru spáð
fyrir um þróunina. Við sjáum hins vegar að
staðan er alvarleg. Þær fréttir sem berast
af lífróðri Icelandair endurspegla vandann
í atvinnugreininni. Stjórnendur eru ekki
öfundsverðir þegar þeir horfa fram á algjört
tekjuhrap og kjarasamninga sem er ógjörn-
ingur að standa við í því ástandi sem nú
ríkir. Vinnudeila flugfreyja og stjórnenda
Icelandair sýnir svart á hvítu hvað hark-
an er mikil og veruleikinn óblíður þegar
harðnar á dalnum. Flugfreyjum var stillt
upp við vegg þegar þeim var sagt upp á
einu bretti í kjölfar viðræðuslita. Svo náðist
samningur sem báðir aðilar eru örugglega
ekki fyllilega sáttir við þótt menn segi
annað í sjónvarpsviðtölum. Eftir situr
minna traust, beiskja og særindi.
Sú hætta er veruleg þegar illa árar í
efnahagslífinu að brotið sé á réttindum
launafólks eða mörg skref stigin til baka
í þeirra réttindabaráttu. Á dögunum kom
undirritaður á bensínstöð og gaf sig á tal
við afgreiðslumann. Hann var þreytulegur
og sagði farir sínar ekki sléttar. Eigendurnir
eru búnir að skera allt inn að beini og fækka
starfsfólki. Afgreiðslumaðurinn var einn á
8 tíma vakt þar sem hann hafði ýmis hlut-
verk; aðstoða bíleigendur, afgreiða pylsur
og hella upp á kaffi. Hann þarf að læsa
bensínstöðinni þegar hann bregður sér á
salernið og engan hvíldartíma fær hann á
meðan vinnutíma stendur, hvorki kaffi- né
matartíma. Ég hváði og spurði hvort þetta
væri yfir höfuð hægt að bjóða nokkrum
manni. „Maður getur svo sem ekki kvartað
þegar atvinnuástandið er eins og það er,“
sagði hann.
Samfélagið ætti allt að hafa þetta í huga
og halda vöku sinni. Pössum líka upp á
okkar minnstu bræður og systur. Sparnaður
og niðurskurður í velferðarkerfinu verð-
ur kominn á dagskrá áður en við vitum
af. Fljótt gengur á féð í ríkiskassanum og
alþingismenn geta tæplega stofnað til nýrra
útgjalda á næstu misserum.
En það er ekki allt að fara til fjandans
og best að minna sig á það í öllum bölmóð-
inum. Við sem störfum í landbúnaðinum
höfum ástæðu til að gleðjast yfir góðri tíð
og ágætri sölu á okkar afurðum. Ástæða
er til að þakka tryggð neytenda sem hafa
sýnt svo ekki verður um villst að þeir eru
þakklátir fyrir íslenska matvælaframleiðslu
og aðrar afurðir bænda.
/TB
Veljum íslenskt fyrir umhverfið og efnahaginn
Ritstjóri:Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is & Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Sími: 563 0332 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir
mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga:
augl@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Anna Kristín Ólafsdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
gunnar@bondi.is
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Vitinn á Kálfshamarsnesi við Kálfshamarsvík. Hann var upphaflega reistur 1913 en endurbyggður 1939. Kálfshamarsvík er lítil vík norðarlega á
vestanverðum Skaga, milli Skagafjarðar og Húnafjarðar. Fyrsta húsið í víkinni var reist rétt eftir aldamótin 1900. Á fyrstu áratugum 20. aldar og fram
undir 1940 var mikil útgerð í Kálfshamarsvík. Í þorpinu var samkomuhús og skóli og einhverjar smáverslanir. Fiskleysi og þjóðfélagsbreytingar
á stríðsárunum urðu til þess að fólki fækkaði og síðustu íbúarnir fluttu burt veturinn 1947–1948. Mynd / Hörður Kristjánsson.
Mynd / BBL