Bændablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 20208
FRÉTTIR
Þóra Sif Kópsdóttir, bóndi í Ystu-Görðum á Snæfellsnesi:
Mikil vinna og puð að súta
skinn en skemmtilegt
– Fékk hugmyndina á þungarokkshátíðinni Eistnaflugi
„Það er nóg að gera og þetta er
virkilega skemmtilegt. Það að súta
skinn er á við góðan sál fræði tíma,“
segir Þóra Sif Kópsdóttir, bóndi í
Ystu-Görðum í gamla Kolbeins-
staðahreppi í Borgar byggð, sem
hefur undanfarin ár verið önnum
kafin við þá iðju.
Á Ystu-Görðum er rekið sauð-
fjárbú með um eitt þúsund vetrar-
fóðraðar kindur. Þóra hefur alla tíð
haft gaman af handverki, hún hefur
hin síðari ár einbeitt sér að afurðum
sauðkindarinnar, sútar, vinnur með
horn og ull og þá er kjöt selt beint
frá býli.
Eistnaflug uppspretta
góðra hugmynda
„Hugmyndin kviknaði á Eistnaflugi,“
segir Þóra um tilurð þess að hún fór
að súta skinn. Þar var hún á ferð með
vinkonu sinni, Höllu Steinólfsdóttur,
sem einnig er sauðfjárbóndi. „Við
lítum á það sem orlof fyrir þreytta
sauðfjárbændur að fara á Eistnaflug
og þar kvikna margar hugmyndir,
sumar bara nokkuð góðar,“ segir
hún. „Við höfum farið í nokkur
skipti og dettur alltaf eitthvað nýtt
og skemmtilegt í hug.“
Þóra segir að hún hafi áhuga fyrir
æði mörgu, fyrir því séu eiginlega
engin takmörk, en þarna í miðri
þungarokkshátíð hafi hún tekið þá
ákvörðun að einblína á sauðkindina
og afurðir hennar. „Ég ákvað að vera
ekki að fara um víðan völl heldur
setja sauðkindina og það sem hún
gefur af sér í öndvegi. Það er í raun
alveg meira en nóg líka, það er svo
fjölbreytt handverk sem hægt er að
vinna með.“
Mikið puð en skemmtilegt
Þóra fékk Lene Zachariassen á
Hjalteyri til að koma og halda nám-
skeið fyrir nokkrar konur á svæðinu
og tókst það vel. Þóra hefur upp frá
því verið að súta og kveðst hafa
mjög gaman af. „Það er alveg á við
góðan sálfræðitíma að súta skinn.
Ferlið er langt, tekur um fimm vikur
frá því skinn er tekið af lambi og þar
til það er tilbúið og það eru um 12
dagar í því ferli sem maður getur
ekki neitt hlaupið frá verkinu. Alltaf
eitthvað sem þarf að sinna, það þarf
að þvo og skafa, skinnið þarf að
liggja í pækli í töluverðan tíma og
á meðan þarf að vitja þess og hræra
upp reglulega, svo þarf að skola og
sauma, þannig að það er heilmikil
vinna á bak við hvert og eitt skinn,
mikið puð en mjög skemmtilegt,“
segir Þóra.
Gærur í tísku
Hún segir töluverða eftirspurn eftir
gærum hér á landi og hafi verið á um-
liðnum árum. „Það hefur verið vinsælt
hér hin síðari ár að vera með gæru inni
á heimilum, það vilja allir hafa eina
gráa inni í stofu hjá sér,“ segir hún.
„Gærur hafa verið í tísku og ég finn
að það er mikil eftirspurn og aukin
eftir að Loðskinn á Sauðárkróki, sem
annaðist sútun skinna, hætti starfsemi
eftir gjaldþrot. Það eykst því frekar en
hitt að fólk óski eftir að ég súti fyrir
það skinn.“ Þóra hefur einkum verið
að súta lambsskinn, en hefur prófað
önnur, hefur sútað kálfsskinn, ref og
þá bíða folaldaskinn eftir sútun og
eins segir hún að sig langi að prófa
hreindýraskinn einhvern daginn. „Þó
handbragðið sé svipað þá hefur hvert
og eitt skinn sín séreinkenni,“ segir
hún.
Þóra bendir á að gærur hafi eink-
um verið nýttar til skrauts í híbýl-
um fólks en ekki megi gleyma því
að þær eru prýðis nytjahlutur líka.
„Gærurnar eru hlýrri en nokkur
teppi, góðar yfir kaldar tær og það
er gott að nýta þær sem undirlag til
að sitja á í bílum. Möguleikarnir
eru margir til að nýta þær og hafa
af þeim gagn, en flestir hafa keypt
þær til skrauts inni í stofu.“
Draumur að opna vinnustofu
og taka á móti gestum
Þóra vinnur einnig með t.d. ull
og þvær hana sjálf heima við og
spinnur. Eins er hún að vinna með
horn og þá er kjöt selt frá býlinu,
ærkjöt er nýtt í kjötbollur á vin-
sælum veitingastað og aðrir hlutar
seldir beint frá býlinu.Hún segir að
draumurinn sé að opna vinnustofu
heima við í Ystu-Görðum til að sinna
sínu og geta tekið á móti gestum þar.
Nú sútar hún í fjárhúsunum og er
með stóran gám úti á hlaði sem hún
vinnur í. Vörur sínar selur hún undir
nafninu Eldborgar kind
Hægt er að fylgjast með Þóru, líf-
inu í sveitinni og því sem þar er verið
að fást við á samfélagsmiðlum, t.d.
thorakops á Snappinu og kopsdottir
á Instagram. Þá er hún með síðu á
Facebook. /MÞÞ
Húsið á Akbraut, sem var byggt árið 1929, stóð í ljósum logum eftir að
slökkviliðsmenn höfðu kveikt í því. Sextán kúa fjós var sambyggt við
íbúðarhúsið. Mynd / Anton Kári Halldórsson
Kveikt í gamla húsinu í Akbraut
Það logaði glatt í gömlu íbúðar-
húsi á bænum Akbraut í Holtum
þriðjudagskvöldið 21. júlí en þá
var kveikt í húsinu þannig að
slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum
Rangárvallasýslu gætu æft við-
brögð við bruna. Æfingin gekk vel.
Landsvirkjun átti húsið en fyrir-
tækið ætlar sér að byggja stöðvarhús
Holtavirkjunar þar sem húsið stóð.
Virkjunin verður staðsett á stærsta
afsvæði Landsvirkjunar á Þjórs-
og Tungnáasvæðinu og mun nýta
fall Þjórsár neðan Búrfellsstöðvar.
„Það var sorlegt og erfitt að sjá húsið
og fjósið brenna en svona er þetta
bara, þetta er búið og gert, þetta var
góð æfing fyrir slökkviliðið,“ segir
Daníel Magnússon, bóndi í Akbraut.
/MHH
Þóra Sif Kópsdóttir, bóndi á Ystu-Görðum í Borgarbyggð, hefur nóg að gera
við að súta skinn, eftirspurn hefur aukist hin síðari ár. Það er í tísku að eiga
gæru. Myndir / Úr einkasafni
Þóra hefur unnið með horn og ull í sínu handverki og selur varninginn undir
nafninu Eldborgar kind.
Gæruskinn saumuð upp í ramma úti á hlaði við Ystu-Garða.
Handverk og hönnun
fær 5 milljónir króna
Ríkisstjórnin hefur veitt fimm
milljónum króna af ráðstöfunarfé
sínu til sjálfseignarstofnunarinnar
Handverks og hönnunar.
Hlutverk henn-
ar er að stuðla að
eflingu handverks
og listiðnaðar,
auka gæðavitund
með ráðgjöf og
upplýsingagjöf;
auka skilning á
menningarlegu, listrænu og hagnýtu
gildi handverks og listiðnaðar með
fjölbreyttri kynningarstarfsemi, og
kynna íslenskt handverk og íslensk-
an listiðnað. Þetta kemur fram í frétt
á vef Stjórnarráðsins.
Handverk og hönnun hefur frá
upphafi sinnt markaðs- og kynningar-
starfi, námskeiða- og sýninga haldi,
fræðslu og ráðgjöf og þjónar tugum
ef ekki hundruðum smárra fyrirtækja
eða einyrkja sem mörg eru á lands-
byggðinni og konur þar í meirihluta.
Verkefninu var upphaflega hrint
af stað af forsætisráðuneytinu árið
1994 en síðar rekið sem samstarfs-
verkefni forsætisráðuneytis, iðnað-
ar-ráðuneytis, landbúnaðarráðu-
neytis og félagsmálaráðuneytis og
fjármagnað af þeim. Árið 2007
var Handverk og hönnun gerð að
sjálfseignarstofnun og mennta- og
menningarmálaráðuneyti falið að
gera samning við stofnunina um ráð-
stöfun rekstrarframlags sem greiðast
skyldi af fjárlögum hvers árs. /MÞÞ
Ný lína frá Massey Ferguson
væntanleg til landsins í haust
Í vikunni sem leið var ný dráttar-
véla lína frá Massey Ferguson
kynnt til sögunnar sem ber
heitið 8S. Mikið var um dýrð-
ir í Ferguson-verksmiðjunum í
Beauvais í Frakklandi þar sem vél-
arnar voru kynntar á alheimsfrum-
sýningu.
Um er að ræða vélar á stærðar-
bilinu 200–300 hestöfl. Í þeim er
háþróuð gírskipting sem mun gjör-
bylta upplifun ökumanns að sögn
framleiðenda. Meðal annars er ný
sjö þrepa gírskipting í nýju línunni
sem kallast Dyna 7.
Vélarnar eru búnar einu hljóð-
látasta ökumannshúsi á markaðn-
um en hávaðinn þar inni á ekki að
fara yfir 68 desibel. Húsið er slitið
frá vélarrýminu sem á bæði að lág-
marka titring og hávaða. Heil rúða er
að framan og ekkert mælaborð sem
skyggir á útsýni ökumanns.
Að sögn þeirra Össurar Björnssonar
og Friðriks Inga Friðrikssonar hjá
Jötni eru nýju vélarnar væntanlegar
með haustinu hingað til lands en
íslenskir bændur verða með þeim
fyrstu til að geta keypt vélar úr nýju
Ferguson-línunni. /TB
Össur Björnsson sölumaður og Friðrik Ingi Friðriksson, framkvæmdastjóri
Jötuns og Aflvéla. Mynd / TB