Bændablaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 17
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Reki ehf Sími: 562 2950
Höfðabakka 9 110 Reykjavík
Netfang: tryggvi@reki.is Vefsíða: www.reki.is
BJÓÐUM MIKIÐ ÚRVAL SÆTA Í HVERS KYNS
VINNUTÆKI FRÁ UNITEDSEATS.
Þjóðminjasafn Íslands:
Safnar frásögnum
um ísbirni
Ísbjarnasögur er heiti á nýrri
spurningaskrá sem Þjóðminjasafn
Íslands sendir út um þessar
mundir. Tilgangurinn með henni
er að safna minningum fólks um
ísbirni með áherslu á að rannsaka
ferðir þeirra til Íslands í sögulegu
og samtímalegu samhengi.
Spurningaskráin er hluti af
þriggja ára rannsóknarverkefni,
Ís birnir á villigötum, sem unnið er
í samstarfi íslenskra og alþjóðlegra
háskóla og safna.
Tengsl dýra, fólks og umhverfis
Kristinn Schram þjóðfræðingur, sem
vinnur að verkefninu ásamt fleirum,
segir að með því að safna minningum
fólks fáist innsýn í líf þess og reynslu.
„Það er mikilvægt að fá innsýn í
reynslu þeirra sem með einhverjum
hætti lifa í návist hvítabjarnarins.
Sú þekking á að nokkru leyti rætur
aftur í aldir með sagnaarfi sem ríkur
er af bjarndýrum sem tignargjöfum
og andvaragestum. Oft vísa þessar
sögur til óljósra marka bjarna og
manna og þá ekki síst berserkja.
Samtímafrásagnir geta líka varpað
ljósi á fjölþætt tengsl dýra, fólks og
umhverfis á tímum loftslagshlýn
unar, bráðnandi íss og hækkandi
sjávarmáls.“
Ísbirnir á villigötum
Spurningaskráin er hluti af þriggja
ára rannsóknarverkefni, Ísbirnir
á villigötum, sem unnið er í
samstarfi íslenskra og alþjóðlegra
háskóla og safna. Það er styrkt af
Rannsóknasjóði Rannís og leitt
af myndlistarfólkinu Bryndísi
Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson í
samstarfi við Kristin og Æsu Sigur
jóns dóttur listfræðing.
„Auk þjóðfræðilegra rannsókna er
unnið út frá sjónarhorni samtímalista
og listfræði,“ segir Kristinn, „þannig
að í verkefninu verða mörk fólks og
dýra, menningar og raunveruleika
skoðuð, ásamt samverkandi áhrifum
loftslagsbreytinga á fólksflutninga
og umhverfisrof sem því miður
færist í aukana.“
Frásagnir varðveittar
til framtíðar
Spurningaskránni er svarað á vefsíðu
menningarsögulega gagnasafnsins
Sarpur, www.sarpur.is.
Þær frásagnir sem berast verða
varðveittar um ókominn tíma
og gerðar öllum aðgengilegar,
nema annað sé tekið fram. Nöfn
heimildarmanna birtast ekki. /VH
Ísbjörn á gangi í Kaktovik, Alaska. Mynd / Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson
Kristinn Schram þjóðfræðingur
vinnur að söfnun upplýsinga um
ísbirniásamtfleirum. Mynd / KÓP
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237