Bændablaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 202018
Löng hefð er fyrir skólastarfi
á Bifröst í Borgarfirði en sögu
þess má rekja allt aftur til ársins
1955 þegar Samvinnuskólinn var
fluttur að Hreðavatni. Árið 1988
hóf skólinn að bjóða upp á nám
á háskóla stigi og brátt hófst mikil
uppbygging á staðnum, mikið var
byggt og nemendur skólans bjuggu
víða um Borgarfjörð. Síðustu ár
hefur fólki fækkað mjög á Bifröst
þó að nemendum við skólann
hafi fjölgað. Breytingin er sú að
nú stunda fleiri fjarnám en áður
var og segja má að styrkur skólans
felist í öflugu og kraftmiklu fjar
námi með vinnuhelgum inni á milli
sem jafnan fara fram á Bifröst.
Nýr rektor tekur við búi
Skagfirðingurinn Vilhjálmur
Egils son, sem stýrt hefur Háskól
anum á Bifröst allt frá 2013,
lætur nú af störfum. Undir hans
stjórn hefur rekstur skólans tekið
miklum stakkaskiptum og sterkt
fjarnám orðið aðalsmerki hans.
Við keflinu á Bifröst tekur Margrét
Jónsdóttir Njarðvík, sem er dóttir
hjónanna Kristínar Njarðvík
og Jóns Bergþórssonar. Hún er
því Borgfirðingur í föðurætt en
faðir hennar var frá Fljótstungu í
Hvítársíðu. Margrét segist vera full
tilhlökkunar og telur ekki skorta
tækifæri á Bifröst. „Skólahald
stendur vel um þessar mundir,
námið er vandað og markmið mitt
er að gera góðan skóla enn betri.
Ég legg áherslu á að efla búsetu á
Bifröst og tel mikilvægt að fjölga
hér íbúum. Þegar mest var bjuggu
yfir sex hundruð manns á staðnum,
nú eru íbúarnir rétt ríflega tvö
hundruð.“
Margrét segir það vissulega
tímanna tákn að nú séu flestir
nemendur skólans í fjarnámi, „hins
vegar er það svo að fjarnám og
staðnám geta farið ágætlega saman,
hér er ekki um tvær andstæður að
ræða. Þó að námið á Bifröst sé byggt
upp með fjarnámssniði er það góður
kostur að búa á staðnum, stunda
nám í öflugu lærdómssamfélagi
þar sem vinnuaðstæður eru góðar,
finna stuðning annarra nemenda og
eiga greiðan aðgang að kennurum.“
Öflugt lærdómssamfélag
„Í stað þess að tala um fjarnám og
staðnám tel ég nærtækara að tala um
nám,“ segir Margrét.
„Fyrirlestrar eru aðgengilegir
á netinu og þeir nemendur sem
búa á staðnum verða hluti af
öflugu lærdóms samfélagi þar
sem nemendur fá vinnuaðstöðu í
skólanum.“
Þá áformar Margrét að bjóða
reglu lega upp á fyrirlestra fyrir
bæði nemendur og starfsfólk þar
sem sjónum er beint að hinum ýmsu
við fangs efnum, meginmarkmiðið sé
að skapa líflegt samfélag þar sem
öflugt menningar auðmagn verði
límið sem haldi námssamfélaginu
saman.
„Ég vonast til þess að staðurinn
eflist, íbúum fjölgi en síðast en
ekki síst að sá mikli fjöldi fjarnema
sem stundar nám við skólann fái
tækifæri til að mæta á öflugar og
árangursríkar vinnuhelgar. Þeir sem
það vilja eiga að fá tækifæri til að
dveljast í frítíma sínum á Bifröst,
eiga möguleika á að taka með sér
fjölskylduna og verða nokkurs konar
farfuglar á staðnum. Gamla góða
Bifrastarandann er hægt að höndla
hvort sem menn eru í fjar eða
staðnámi. Eðlilegra er að tala um
nám sem rammað er inn af sterku
lærdómssamfélagi. Birkiilminn í
hrauninu má líka fanga í gegnum
öfluga netfyrirlestra.“
Einn mikilvægur kostur við það
að búa á Bifröst er hagstætt húsnæði
og ekki spillir fyrir falleg náttúran
í hrauninu sem strax á fyrsta degi
nær að valdefla alla þá sem komast
í tæri við hana. Margrét áréttar í
lokin að staðurinn sé í raun ósvikið
náttúrulegt leikhús þar sem hraunið
og kjarrið leggja til litina, lyktina og
leiktjöldin.
Borgarfjörður – miðstöð
háskólanáms og símenntunar
Nágrönnum Bifrastar í Norður ár
dalnum líst vel á áform Margrétar
um eflingu búsetu á staðnum. Á Glit
stöðum í Norðurárdal býr Guðrún
Sigurjónsdóttir ásamt fjölskyldu
sinni. Þau búa með kýr og kind ur
og reka litla ferðaþjónustu sam hliða
búskapnum. Guðrún fagnar mjög
sýn Margrétar og áformum hennar
um að efla byggðina á Bifröst enda
mikilvægt að þar þrífist fjölskyldu
vænt námssamfélag.
„Fyrir samfélagið í Borgarfirði
skiptir miklu máli að öflugt samfélag
sé til staðar á Bifröst,“ segir Guðrún.
„Það treystir ekki síst innviðina þegar
kemur að rekstri leik og grunnskóla.
Skól inn er mikilvæg stoð í atvinnulífi
hér í héraðinu og ég bind vonir við
það að skólinn eflist og bjóði sem
fyrr upp á nám sem treyst geti búsetu
í hinni dreifðu byggð. Í því sambandi
vil ég nefna að nám til löggilts
bókara ætti vel heima á Bifröst en
einn ig þyrfti að mennta fólk til starfa
innan ferðaþjónustunnar. Mikilvægt
er að efla tengslin milli Bifrastar og
næsta umhverfis og treysta enn frekar
grundvöll Borgarfjarðar sem mið
stöðvar háskólanáms og sím ennt unar.“
Fjölskyldvænt samfélag
Fyrir réttum þremur árum ákváðu
Bjarni Heiðar Halldórsson og
Fanney Lilja Vignisdóttir að flytjast
á Bifröst en áður bjuggu þau í Ósló.
Bjarni starfaði sem rekstrarstjóri
hjá Dominoʼs en Fanney er lærður
einkaþjálfari. Taugin var römm og
heim vildu þau, vildu að börnin
fengju tækifæri til að alast upp á
Íslandi.
„Ég vildi líka afla mér mennt
unar,“ segir Bjarni, „ég hafði unnið
hjá sama fyrirtæki frá því ég var 17
ára, í hartnær 14 ár, að mestu án
skólamenntunar en sérfræðingur í
öllu sem viðkom Dominoʼs. Ef ég
ætlaði einhvern tíma að starfa við
eitthvað annað eða fara út í eigin
rekstur þá þurfti ég á meiri menntun
að halda.“
Um líkt leyti og ungu hjónin
fluttust heim var eldri bróðir Bjarna
að ljúki námi á Bifröst og þau sáu
hversu vel staðurinn fóstraði hann
og fjölskyldu hans. „Staðurinn
var paradís fyrir börnin og námið
uppfyllti allar væntingar bróður
míns. Ekki spillti að leigan á Bifröst
var mjög hagstæð og enginn var
heldur biðlistinn í leikskólann.“
Gáttin – upphaf námsins
Bjarni hóf nám í Háskólagáttinni
sem hann telur einhvern besta
undirbúning sem hægt er að hugsa
sér fyrir háskólanám. Að því námi
loknu taldi hann sig vel í stakk búinn
til að takast á við nám í háskóla. „Í
gáttinni náði ég í fyrsta sinn á ævinni
góðum tökum á stærðfræðinni en líkt
og hjá mörgum sem hverfa frá námi
var stærðfræðin ástæða þess að ég
hvarf úr skóla á sínum tíma. Nú er
svo komið að allir þeir áfangar sem
lúta að tölum eru í uppáhaldi hjá mér
og ég hef meðal annars sinnt starfi
aðstoðarkennara í stærðfræði.“
Í upphafi óttuðust þau að Fanney
fengi ekki vinnu í nágrenninu. Sá
ótti reyndist þó með öllu ástæðulaus
því að í fyrstu vikunni á Bifröst fékk
hún tvö atvinnutilboð og starfar nú á
sveitahótelinu á Hraunsnefi.
Lífið og námið á Bifröst
Líkt og heyra má á þeim hjónum
er lífið á Bifröst ljúft. Ekki spillir
heldur að leikskólinn er góður.
Hann er fámennur og samfélagið
í kringum hann náið og gott. Ekki
spillir heldur að umhverfið á svæðinu
er einstaklega barnvænt og öruggt í
alla staði enda eru allir bara sendir út
að leika sér eins og tíðkaðist forðum.
Íbúðirnar á Bifröst eru líka
ótrúlega vel úr garði gerðar og til í
öllum stærðum og gerðum. Innifalið
í leigunni er internet, hiti og rafmagn.
Ekki spillir heldur að gæludýrahald
er leyfilegt á staðnum og því létu þau
hjón gamlan draum rætast og fengu
sér Labradorhund.
Þegar Bjarni hóf nám á Bifröst var
skólahaldið í vaxandi mæli að færast
yfir í fjarnám. Það hindraði hann ekki
í að búa á svæðinu. „Ég er þeirrar
skoðunar,“ segir Bjarni, „að þeir sem
búa á staðnum standi betur að vígi en
hinn dæmigerði fjarnemi. Staðarbúar
mynda sterk tengsl og samheldnin er
mikil. Þótt ekki séu formlegir tímar
í kennslustofu í skólanum þá hittast
nemendur á tilsettum tíma hvern
dag og hafa sína vinnuaðstöðu í
skólanum enda er tækjakostur
þar mjög góður. Nemendur horfa
saman á fyrirlestra, ræða málin
og læra saman. Á Bifröst er gott
námssamfélag, nemendafélagið
hefur þar sérstakt hús til umráða og
heldur uppi ótrúlega góðu félagslífi.
Alltaf er eitthvað um að vera.“
Að endingu áréttuðu þau Bjarni
og Fanney að á Bifröst sé gott að búa.
„Hér er góð líkams ræktar aðstaða
með heitum pottum og gufubaði,
náttúran er líka hreint út sagt mögnuð
með fossa og fjöll í bakgarðinum
og umhverfið kallar eiginlega á
mann í létt skokk eða göngutúr með
hundinn.“ Bjarni og Fanney taka
heilshugar undir orð Margrétar
um að umhverfið á Bifröst sé svo
sannarlega ósvikið náttúruleikhús.
/GRJ
LÍF &STARF
Háskólinn á Bifröst:
Búseta á Bifröst
– Styrkur skólans felst í öflugu og kraftmiklu fjarnámi
Fanney Lilja Vignisdóttir og Bjarni Heiðar Halldórsson búa á Bifröst með börnum sínum. Bjarni vildi bæta við
sig menntun en áður starfaði hann sem rekstrarstjóri hjá Domino's. Fanney er lærður einkaþjálfari og starfar á
sveitahótelinu á Hraunsnefi. Myndir / Bifröst
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor
á Bifröst.
Náttúran er engu lík á Bifröst í Borgarfirði – sannkallað náttúruleikhús!
Fyrir samfélagið í Borgarfirði skiptir miklu máli að öflugt samfélag sé til
staðar á Bifröst,“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir, bóndi á Glitstöðum.