Bændablaðið - 30.07.2020, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 202022
Austur vegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
Vesturhrauni 3 // 210 Garðabær // 480 0000 // af lvelar. is // sala@aflvelar. is
Cobalt 550 Max ltd
Götuskráð tveggja manna
Kr. 1.680.000
Iron 450 Max ltd
Götuskráð tveggja manna
Kr. 1.480.000
með vsk. með vsk.
götuskráð
!
drIflæsIng fraMan og aftan / hátt og lágt drIf / rafléttIstýrI / dráttarkúla / spIl / stór dekk / stIllanleg fjöðrun
Breytingar á lögum um ökutækjatryggingar:
Haugsugulán varð bónda dýrkeypt
– Eftirvagnar ekki lengur tryggðir í gegnum ökutæki
Með nýjum lögum um ökutækja
tryggingar, sem tóku gildi 1.
janúar 2020, telst eftirvagn (t.d.
kerrur, hestakerrur, tjaldvagnar
og fellihýsi) eða annað tæki sem
fest er við ökutæki sem ein heild.
Hjá bændum geta þetta t.d. verið
rúlluvélar, vagnar, heyvinnuvélar,
haugsugur o.fl. sem dregið er af
dráttarvélum. Breytingin þýðir
að ábyrgðartrygging ökutækis
nær ekki yfir tjón sem verður á
eftirvagni óháð eignarhaldi. Áður
tók ábyrgðartryggingin á slíku
tjóni ef eigandi eftirvagns var ekki
ökumaður eða eigandi ökutækisins.
Haugsugan ótryggð
Bóndi nokkur lánaði haugsugu á
milli bæja eins og góðir nágrannar
gera. Haugsugan var ekki tryggð
sérstaklega en sá sem fékk hana lán
aða lenti í tjóni. Haugsugan sjálf var
ótryggð og lenti því tjónið á bónd
anum sem fékk haugsuguna lánaða.
Vátryggingafélag Íslands kynnti
breytingarnar með eftirfarandi
dæmi: A fær kerru lánaða hjá B og
lendir í ökutækjatjóni sem hann er
valdur að.
• Fyrir lagabreytingu:
Tjón á kerru greiðist úr
ábyrgðartryggingu ökutækis A.
• Eftir lagabreytingu:
Tjón á kerru greiðist ekki úr
ábyrgðartryggingu ökutækis A.
Ábyrgðartrygging ökutækis tekur
áfram á tjónum sem verða vegna
ökutækis sem dregur eftirvagn,
að vagni frátöldum. Til að tryggja
tengivagninn sjálfan þarf að
kaskótryggja hann. Þess ber að geta
að kaskótrygging ökutækis nær ekki
yfir tengivagninn.
Hálfkaskó getur dugað
Bændur eru margir hverjir með svo
kallaðar „hálfkaskótryggingar“ á
dráttarvélum til landbúnaðar starfa.
Undir þann skilmála falla landbún
aðartæki í eigu vátryggingataka
sem eru fast tengd við dráttarvél
ina þegar hún veltur eða hrapar.
Bótasvið tryggingarinnar innifelur
einnig bruna, skemmdir vegna
eldinga, rúðubrota og þjófnað
artilrauna en þessir þættir eiga ein
göngu við um dráttarvélina sjálfa.
Tryggingafélögin hafa hvatt sína
viðskiptavini til þess að fara yfir
trygginga málin og hafa samband
við sitt tryggingafélag ef þeir eiga
tengivagn.
/TB
Bændum er ráðlagt að fara yfir tryggingamálin og skoða hvort ökutækjatryggingar þeirra nái yfir eftirvagna eins
og haugsugur og heyvinnutæki. Mynd / TB
FRÉTTIR
Ferðaþjónustufyrirtækið Iceland Unlimited:
Boðnir afarkostir og okurvextir
Eigandi ferðaþjónustu fyrir
tækisins Iceland Unlimited þurfti
að hóta að setja fyrirtækið í þrot
eftir að hann lenti í skuld við
greiðslumiðlunarfyrirtæki í kjöl
far afbókana vegna COVID19.
Hann segir að sér hafi verið stillt
upp við vegg með afarkostum.
„Ég náði að lokum samningi við
mitt kortafyrirtæki en til þess að sá
samningur næðist þurfti ég að hóta
því að setja fyrirtækið mitt í þrot,“
segir Jón Gunnar Benjamínsson hjá
Iceland Unlimited. „Kortafyrirtækið
stillti mér hreinlega upp við vegg
og bauð í fyrstu upp á afarkosti og
okurvexti.“
Jón segir að það hafi komið
sér verulega á óvart að greiðslu
miðlunar fyrirtækið, sem hann hafi
verið í viðskiptum við í tíu ár, eða frá
stofnun þess, hafi boðið sér afarkosti
eftir að hann lenti í vandræðum með
greiðslur í kjölfar COVID19.
Afpantanir og endurgreiðslur
Jón segir að í kjölfar COVID19
hafi hann lent í skuld við greiðsl
umiðlunarfyrirtækið. „Skuldin
varð þannig til að einhverjir aðilar
voru búnir að greiða fyrir þjónustu
hjá okkur með greiðslukorti og
greiðsluþjónustan búin að áfram
greiða til okkar. Svo gerist það að
í kjölfar COVID19 afpanta sumir
ferðina og fá endurgreiðslu frá
greiðslumiðluninni og hún endur
krefur mig um það sem hún er búin
að borga mér. Það er því óumdeil
anlegt að ég er í skuld við greiðslu
miðlunina.
Vandinn hjá mér er aftur á móti
sá að ég er búinn að nota hluta af
peningunum í fjárfestingar sem
tengjast rekstrinum og er ekki að
fá neina innkomu á móti og get því
ekki greitt allt að fullu til baka.“
Afarkostir
„Fyrirtækið sem ég er í viðskiptum
við bauð í fyrstu hreina afarkosti
til að gera upp við sig og það sem
ég kalla okurlán. Samningurinn
sem mér var boðinn átti að bera
10% vexti, auk þess sem ég
átti að greiða helming af öllum
jákvæðum færslum til þeirra, sem
þýðir að greiðslumiðlunarfyrirtækið
átti að fá helminginn af öllum
kreditkortagreiðslum til mín sem
lið í að greiða niður skuldina. Auk
þess sem að í lok hvers mánaðar
átti ég að greiða þeim eina milljón
króna inn á skuldina og ofan á þetta
allt saman átti að bætast um 0,5%
álag á höfuðstólinn.“
Hótaði að setja fyrirtækið í þrot
„Með því að bjóða slíka afarkosti
er greiðslumiðlunin að nýta sér með
grófum hætti mjög erfiða stöðu hjá
mér og stilla mér upp við vegg og
ætlar sér um leið að græða á því.“
Jón segir að hann hafi neitað
þessum skilmálum og hótað að setja
Iceland Umlimited í þrot og að því
fylgdi að greiðslumiðlunin fengi
ekkert upp í sína skuld.
„Um leið og ég gerði það er
mér boðinn annar og betri samn
ingur og með 4% vöxtum. Greiðslu
miðlunarfyrirtækið var sem sagt
umsvifalaust tilbúið til að draga úr
kröfunum þegar ég hótaði að fara
með mitt fyrirtæki í þrot.
Satt best að segja taldi ég mig
eiga inni einhverja góðvild hjá
fyrirtæki sem ég er búinn að vera
í viðskiptum við í tíu ár en svo er
greinilega ekki.
Í framhaldi af þessu og rúmlega
100% hækkunar á þóknunargjaldi
greiðslumiðlunarinnar í október
á síðasta ári hef ég verið að
horfa í kringum mig eftir öðrum
kostum erlendis sem bjóða upp á
sams konar þjónustu,“ segir Jón
Gunnar Benjamínsson hjá Iceland
Unlimited. /VH
Jón Gunnar Benjamínsson, eigandi
Iceland Unlimited. Mynd / Aðsend
Bændur taka á móti gestum í Mosfellsdal:
Námskeið í dýrahirðingu
Á Hraðastöðum í Mosfellsdal er
tekið á móti margvíslegum hópum
allt árið um kring þar sem jafnt
ungir sem aldnir una sér í návígi
við dýrin á staðnum. Húsfreyjan,
Nína Baastad, sér um reksturinn
og segir það ákaflega skemmtilegt
að geta kynnt sveitina allt árið um
kring.
„Við byrjuðum að taka á móti
leikskólum fyrir 16 árum en fyrir
sex árum, þegar dætur okkar vantaði
sumarvinnu, kom upp sú hugmynd
að halda námskeiðin Sveitasælu
fyrir börn frá sex ára aldri. Þetta eru
vikulöng námskeið sem er tvískipt
fyrir og eftir hádegi. Þá hjálpa börnin
til við að hirða um dýrin og læra
að umgangast þau. Margir koma ár
eftir ár en þetta eru hátt í 400 börn
sem koma á ári hverju. Þessa návist
við dýrin vantar svo mikið í dag og
í raun að komast í sveit.
Opið um helgar fyrir gesti
Um helgar höfum við opið fyrir
almenning frá 11–17 og teymt er
undir krakka milli klukkan 13 og
14. Það eru alls kyns hópar sem
koma hingað og hefur verið vinsælt
hjá starfsmannafélögum að koma
ásamt dvalarheimilum aldraðra.
Við fengum einmitt hóp frá eldri
borgurum í fyrra sem var virkilega
skemmtilegt, þá var meðalaldurinn
um 90 ár og þau voru öll svo glöð að
koma. Þá fengum við góðar sögust
undir og minningar úr sveitinni frá
þeim,“ segir Nína.
/ehg
Um helgar er opið á Hraðastöðum
í Mosfellsdal frá kl. 11–17. Teymt er
undir krökkum milli klukkan 13 og
14. Mynd / Aðsend