Bændablaðið - 30.07.2020, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 25
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
Bænda
Auglýsingar Hafa áhrif
Ný 49 km ferðaleið á Suðurlandi:
Vitaleiðin – á
milli þriggja vita
Vitaleiðin er nafn á nýrri ferða-
leið á Suðurlandi þar sem ferða-
mönnum og heimamönnum gefst
kostur á að fara á milli þriggja vita.
Leiðin nær frá Selvogi í Ölfusi að
Knarrarósvita rétt hjá Stokkseyri
með stoppi í Hafnarnesvita í
Þorlákshöfn.
„Hugmyndin að leiðinni kom
upp fyrir um ári en Markaðsstofa
Suðurlands er
að vinna að ver-
kefnum í tengsl-
um við ferða-
leiðir og fannst
okkur tilvalið
að horfa á vit-
ana sem marka
Vi ta le ið ina .
Við höfðum
samband við
sveitarfélögin
Árborg og Ölfus
til að vinna verkefnið með okkur og
það var vel tekið í hugmyndina,“
segir Laufey Guðmunds dóttir, verk-
efnisstjóri hjá Markaðs stofunni.
Hún segir Vitaleiðina skemmti-
lega og bjóða upp á fjölbreytta ferða-
máta, hvort sem þú ert göngugarpur,
hlaupari, hestamaður, hjólreiðamaður
eða vilt bara heimsækja helstu stað-
ina og aka veginn. „Þarna getur þú
valið þér þinn uppáhalds ferðamáta
og farið eins hægt eða hratt og hentar
þér. Vegleiðin er um 45 km löng en
ef þú velur að ferðast á umhverfis-
vænni hátt með því að ganga, hlaupa,
hjóla eða fara ríðandi á hestum þá er
leiðin um 49 km meðfram strand-
lengjunni,“ segir Laufey. Heimasíða
Vitaleiðarinnar er www.south.is/
vitaleidin.
Vitaleiðin er fyrir alla
Þegar Laufey er spurð hver sé mark-
hópur Vitaleiðarinnar segir hún að
leiðin sé fyrir alla sem eiga auðvelt
með ganga. „Já, þú gengur hana samt
tæplega á einum degi þar sem hún er
tæplega 50 km löng en er fín þriggja
daga gönguleið þar sem þú stoppar
og nýtur þín í þorpunum þremur á
leiðinni, Þorlákshöfn, Eyrarbakka
og Stokkseyri. Það er engin hækkun
á leiðinni en undirlagið getur verið
mismunandi eftir því hvar þú ert
staddur á leiðinni. Það er einmitt
ein af upplifunum leiðarinnar að
sjá fjölbreytileikann í fjörunum,
hraunafjara með tjörnum eða svört
sandfjara. Á milli Stokkseyrar og
Eyrarbakka er malbikaður stígur,
á Eyrarbakka er hægt að ganga á
sjóvarnargarðinum og leiðin frá
Þorlákshöfn að Selvogi er slóði,“
segir Laufey. /MHH
Verkefninu um Vitaleiðina var formlega hleypt af stokkunum í byrjun júlí en
hér eru forsvarsmenn verkefnisins með kortið af leiðinni. Myndir / Aðsendar
Laufey
Guðmundsdóttir.
Kort af Vitaleiðinni sem Þórarinn Gylfason teiknaði fyrir verkefnið verða
sett upp á gönguleiðinni.