Bændablaðið - 30.07.2020, Side 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 202030
Aldin fíkjukaktusa eru hluti af
daglegri fæðu fjölda fólks víða um
heim og blöð kaktussins eru sögð
góð á grillið. Plantan er upprunnin
í Mexíkó en hefur náð fótfestu á
þurrum svæðum um allan heim. Í
Ástralíu og víðar hefur henni verið
plantað út sem lifandi þyrnigirðing.
Áætluð heimsframleiðsla á
aldinum fíkjukaktusa er um 100
þúsund tonn á ári. Mexíkó er stærsti
fram leiðandinn og þar í landi er yfir
helmingur heimsframleiðslunnar.
Ítalía er í öðru sæti en af öðrum
löndum sem rækta aldinið má nefna
Sikileyjar, Síle, Argentínu, Kali
forníu ríki Bandaríkjanna Norður
Ameríku, Brasilíu, Perú og fleiri
lönd SuðurAmeríku, Jórdaníu,
Ísrael, Egyptaland, Marokkó, Spán,
Grikkland og Tyrkland.
Mest af framleiðslu allra þessara
landa er neytt innanlands og sem
dæmi flytur Mexíkó ekki út nema
um 10% framleiðslunnar.
Ekki fundust upplýsingar um
inn flutning á fíkjukaktusaldinum til
Ís lands á vef Hagstofunnar. Aldinið
hef ur samt sést annað slagið í
ávaxtaborðum verslana og kaktusinn
sjálfur er algengur sem pottaplanta til
sölu í gróð ur vöruverslunum.
Ættkvíslin Opuntia
og tegundin ficus-indica
Vel yfir eitt hundrað tegundir tilheyra
ættkvíslinni Opuntia, sem tilheyrir ætt
kaktusa, og eru þær allar upprunnar
í Mið og SuðurAmeríku. Þar sem
tegundir innan ættkvíslarinnar frjóv g
ast auðveldlega sín á milli getur verið
erfitt að greina þær í sundur. Allar
eru þær með þyrna en mismarga og
misstóra eftir tegundum og flestar
eiga þær það sameiginlegt að vera
með flatvaxin blöð og græn eða rauð
og æt aldin.
Algengasta tegundin sem ræktuð
er til manneldis er Opuntia ficus
indica og er tegundin jafnframt mest
ræktaði kaktus í heimi til átu.
Tegundin sem kallast fíkjukakt
us á íslensku er fjölær og nær fimm
til sjö metra hæð og allt að þrem
ur metrum að þvermáli. Plantan er
með stólparót sem vex um 30 sentí
metra niður í jarðveginn og mynd
ar hliðar rætur sem liggja grynnra.
Vaxtarlag plöntunnar einkennist af
mörgum stórum og þykkum skeið
ar eða árarlaga blöðum. Ung blöð
blágræn og vaxkennd viðkomu,
vatnsfráhrindandi og nánast glans
andi. Blöðin flatvaxin, stór, að allt
að metri að lengd, þykk og 15 sentí
metra breið, blöðin gildna með aldri,
verða trékennd og líkjast trjástofni
og sem er góður metri að ummáli.
Blaðkjötið er ljóst með rauðum blæ.
Þyrnar á blöðunum fáir en allt að 2,5
sentímetrar að lengd. Blómin um 8
sentímetra löng og 6 að þvermáli.
Sjálffrjóvgandi, græn í fyrstu en
blómstra hvítum, gulum eða rauðum
blómum. Aldinið, sem er ber, gult
eða rautt og inniheldur 150 til 400
lítil og hörð fræ.
Til er fjöldi afbrigða og yrkja
af fíkjukaktus sem eru ólík eftir
ræktunar og vaxtarstað og eru sum
fram ræktuð yrki þyrnalaus. Líftími
plönt unnar er um 20 ár.
Uppruni og útbreiðsla
Þrátt fyrir að ekki sé vitað fyrir víst
hvaðan O. ficusindica er upprunnin
bendir flest til þess að það sé á hásléttu
Mexíkó og að þaðan hafi plantan
breiðst út um MiðAmeríku, suður
að odda Padegóníu í SuðurAmeríku
og norður til Kanada fyrir tíma komu
Kristófers Kólumbusar, uppi 1451
til 1506, yfir Atlantshafsála. Eftir að
plantan hafði langt undir sig báðar
álfur Nýja heimsins fór hún í útrás í
öðrum heimsálfum.
Talið er að Kólumbus hafi flutt
með sér fíkjukaktus til Lissabon í
Portúgal árið 1493 við heimkomu úr
fyrsta leiðangri sínum til Ameríku.
Eftir að plantan barst til Evrópu
breiddist hún hratt út um löndin
kringum og á eyjum í Miðjarðarhafi
sem kúríósplanta og þaðan í norðan,
austan og sunnanverðri Afríku og
síðan hluta Asíu sem nytjajurt og sem
slæðingur frá ræktun.
Árið 1788 flutti Arthus Phillip,
uppi 1738 til 1814, landsstjóri í
Nýju SuðurWales fíkjukaktus
fyrstur manna til Sydney í Ástralíu
sem garð plöntu og komu plönturnar
frá Brasilíu. Bændur í Ástralíu
komust fljótlega upp á lagið með
Yfir eitt hundrað tegundir tilheyra ættkvíslinni Opuntia sem tilheyrir ætt kaktusa og eru þær allar upprunnar í Mið- og Suður-Ameríku. Algengasta tegundin til manneldis er O. ficus-indica og er
tegundin jafnframt mest ræktaði kaktus í heimi til átu.
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Fíkjukaktus er góður á grillið
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Kaktusablöð sem kálfafóður.
Víða, eins og á verndarsvæðum í Afríku og í Ástralíu, er litið á fíkjukaktus
sem ágenga tegund. /Mynd VH.
Sem pottaplanta þarf fíkjukaktus litla
vökvun en mikla sól.
Fíkjukaktusar eru notaðir sem lifandi girðing fyrir bæði menn og búfé.