Bændablaðið - 30.07.2020, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 202034
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Dulinn doði er algengt vandamál
Doði er líklega einn þekktasti
sjúk dómurinn sem kýr fá, fyrir
utan júgurbólgu, og er tíðni hans
um það bil 5%. Tíðnin hækkar
venjulega með aukinni nyt og
aukinni tíðni mjaltaskeiða en kýr
á fyrsta mjaltaskeiði fá sjaldan
þennan sjúkdóm þar sem þær
mjólka minna og líkami þeirra
er betur fær um að takast á við
breyttar aðstæður en líkamar eldri
kúa.
Bandarísk rannsókn á Holstein
kúm bendir til þess að tíðni sýnilegs
doða sé 1% hjá kúm á fyrsta
mjaltaskeiði, 4% hjá kúm á öðru
mjaltaskeiði, 7% hjá kúm á þriðja
mjalta skeiði og 10% hjá kúm á fjórða
mjaltaskeiði. Dulinn doði er aftur á
móti minna þekktur sjúkdómur en
einföld þumalputtaregla segir að
fyrir hvert sýnilegt tilfelli af doða
séu jafnvel allt að því 10 önnur sem
eru dulin og með öðrum orðum þá
séu flestar eldri kýrnar að takast á
við þetta vandamál með einum eða
öðrum hætti.
Toppurinn á vandamálinu
Skömmu fyrir burð fara 8-10 g/dag
af kalki frá kúnni yfir í kálfinn og
þegar hún ber flyst mikið af kalki
frá henni yfir í broddinn og síðar
mjólkina. Þessi mikla þörf líkamans
til að skilja út kalk er allt að því 10
sinnum meiri en líkaminn þarf til
viðhalds án mjólkurframleiðslu.
Þessi mikla breyting á kalkþörf
líkamans á ein ungis örfáum dögum
gerir það að verk um að efnaskipti
kýrinnar þurfa að aðlagast hratt
breyttum aðstæðum til þess að
styðja við aukna þörf fyrir kalk. Ef
það gerist ekki nógu fljótt, eða af
nægilegri stærðargráðu, getur styrkur
kalks í blóði kýrinnar lækkað og
farið undir krítísk viðmiðunarmörk
og það getur leitt til sýnilegs doða
en oft ná einkennin ekki að verða
sýnileg. Það má því segja að hvert
sýnilegt tilfelli sé aðeins toppurinn á
vandamálinu. Þetta sýna niður stöður
bandarískrar rannsóknar sem einnig
sýna að fóðrun síðustu vikurnar fyrir
burð hafi mikil áhrif á fjölda kúa
sem fái doða, bæði klínísk og dulin
einkenni.
Dulinn doði
Rannsóknir benda til þess að dulinn
doði geti verið í beinu sambandi við
aðra efnaskiptasjúkdóma og geti
verið aðal- eða afleidd orsök slakra
afurða. Kýr með dulinn doða sýna
ekki hefðbundin einkenni en hafa
lágan styrk kalks í blóði, venjulega
innan sólarhrings eftir burð. Þetta
þýðir að eina leiðin til að vita hvort
kýr eru að upplifa dulinn doða er
að greina styrk kalks í blóði þeirra
og þetta þarf að gera á fyrstu 1-2
dögunum eftir burð.
Þegar verið er að meta hvort
kýr er með dulinn doða, þ.e. sýnir
ekki sýnileg einkenni, er erlendis
miðað við að kalkstyrkurinn í
blóði sé 8,0 mg/100 ml eða lægri.
Hins vegar sýndi nýleg rannsókn í
Bandaríkjunum að ef viðmiðið er
hækkað í 8,5 mg/100 ml þá er mun
líklegra að finna kýr sem þurfa á
aðstoð að halda og í þessari rannsókn
komust vísindamennirnir að því að á
þessum skurðpunkti séu í raun 60%
eldri kúa og um helmingur fyrsta
kálfs kvígna að upplifa dulinn doða
með einhverjum hætti.
Hlutverk kalks
Kalk er lífsnauðsynlegt fyrir lík-
amann og tengist m.a. stoðgrind,
vöðva- og taugastarfsemi og lægsti
styrkur kalks í blóði verður venju-
lega 12-24 klukkustundum eftir burð
og fer venjulega aftur í eðlilegt horf
hjá heilbrigðum kúm innan 2-3 daga
eftir burð.
Styrkur kalks í blóði er stjórnað
með frásogi kalks úr fæðunni og
losun eða upptöku kalks úr beinum.
Tvö skjaldkirtilshormón, þekkt sem
PTH, stjórna þessum ferlum og þegar
styrkur kalks lækkar í blóði hefur
PTH áhrif á nýrun til að draga úr
útskilnaði kalks í þvag. Þessi breyt-
ing gerir þó aðeins kleift að aðlagast
litlum breytingum á styrk kalks í
blóði og ef þörf er á meira magni af
kalki hefur PTH áhrif á beinin og kalk
er þá losað þaðan og yfir í blóðið.
Til þess að PTH sé seytt frá
kirtlinum og til þess að það geti unnið
með réttum hætti þarf að vera til stað-
ar nægilegt magn af magnesíum auk
þess sem blóðsýrustigið þarf að vera
aðeins minna basískt en venju lega.
Þessar kröfur hafa áhrif á nauðsyn
þess að gefa kúm kórrétt fóður á
réttum tíma svo kýrnar hafi rétt og
gott aðgengi að öll nauðsynleg um
næringarefnum þegar þær þurfa á
þeim að halda.
Að hverju á að leita?
Skipta má doða í þrjú stig miðað við
alvarleika:
Fyrsta stig
Fyrsta stig doða er það sem
venjulega er talið vera dulið ástand
sjúkdómsins. Þetta getur oft verið
afar erfitt að greina vegna þess að
þetta stig stendur yfir í skamman tíma
og einkennin geta verið breytileg.
Þetta stig stendur yfirleitt í innan
við klukkustund og meðal einkenna
eru lystarleysi, taugaveiklun, riða og
óeirð í afturfótum.
Annað stig
Annað stig doða varir venjulega allt
frá 1-12 klukkustundum og sýnileg
einkenni eru daufleiki til augna, köld
eyru, skjálfti í vöðvum, óregla á
göngu og óvirk melting. Líkamshiti
kýrinnar gæti einnig lækkað.
Þriðja stig
Þriðja stigi doða er alvarlegast og nú
getur kýrin ekki staðið upp og mun
missa meðvitund sem svo leiðir til
þess að hún fellur í dá. Hjartsláttur
getur aukist hratt og gæti farið
yfir 120 slög á mínútu. Venjulega
lifa kýr í þriðja stigi, sem ekki fá
meðhöndlun, ekki lengur en nokkrar
klukku stundir.
Áhrif doða
Doði hefur áhrif á heilsu nýbæra og
mjólkurframleiðslu þeirra í heildina
tekið sem og frjósemi. Rannsóknir
hafa sýnt að ónæmisstarfsemin er
einnig í hættu hjá kúm með lága
kalkþéttni í blóði og ef það á sér stað
á fyrsta degi eftir burð er líklegra að
kýrin fái vinstrarsnúning, súrdoða,
alvarlegar sýkingar vegna fastra
hilda eða jafnvel júgurbólgu. Kýr
í of miklum holdum eru líklegri til
að fá doða.
Forvarnir
Forvarnir gegn lágum styrk kalks í
blóði við burð er mikilvægur þáttur
þegar hugað er að meðhöndlun kúa
á þessu mikla umbreytingaskeiði
þ.e. þegar kýr fara úr því að vera
í geldstöðu og yfir í að hefja
mjólkurframleiðslu á ný. Öll kúabú
ættu að hafa áætlun um það hvernig
staðið skuli að meðferð kúnna á
þessu tímabili svo þær nái sem bestri
heilsu eftir burðinn og haldi góðri
frjó- og afurðasemi. Eins og er með
alla efnaskiptasjúkdóma þá eru réttar
forvarnir lykillinn að góðum árangri
og almennt gerist það með því að
gefa þeim rétt fóður síðustu þrjár
vikurnar fyrir burð.
Með því að gefa kúnni rétt
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Eftir burð eru kýr yfirleitt mjög þyrstar og þá er upplagt að gefa þeim sérstaka steinefna-, vítamín- og orkublöndu
sem hjálpar þeim að komast vel frá burðinum og því efnaójafnvægi sem myndast í kringum breytingaskeiðið.
Nýja-Sjáland:
Hærra verð fyrir
umhverfisvænni mjólk
Nýsjálenska afurðafélagið Font erra
hefur nú ákveðið að stíga skref í
átt að aukinni sjálfbærni með því
að breyta útreikningi á afurða
stöðvaverði til eigenda sinna og
greiða álag til þeirra bænda sem
framleiða mjólk sem er metin
umhverfis vænni.
Fonterra er nánast einstakt á heims-
vísu fyrir þær sakir að 95% af fram-
leiðslu þess fer til útflutnings og er
félagið umsvifamesta fyrirtækið á
hinum alþjóðlega heimsmarkaði með
mjólkurvörur. Það er einmitt vegna
breytinga á heimsmarkaðinum sem
Fonterra fetar sig nú í átt að kerfi sem
er þekkt frá sumum öðrum löndum
þar sem bændur fá greitt meira fyrir
að framleiða mjólk við skilyrði sem
hafa minni áhrif á umhverfið en gerist
og gengur.
Greitt fyrir efnainnihald
Hingað til hafa nýsjálenskir bændur
fengið borgað fyrir mjólkina í
samræmi við efnainnihald hennar
og í samræmi við það verð sem
Fonterra hefur fengið fyrir annars
vegar mjólkurfitu og hins vegar
mjólkur prótein við sölu afurðanna.
Nú eru hins vegar nýir tímar og
sumir kaup endur eru tilbúnir að
greiða álag á mjólkurvörurnar séu
þær framleiddar við ákveðin skilyrði
sem áður var lítið sem ekkert hugsað
um.
Til þess að mæta þessu hefur
Fonterra nú útbúið sérstakar
leiðbeiningar fyrir bændur varðandi
umhverfisvæna framleiðslu og ef
búin uppfylla skilyrðin og eru
jafnframt með góð mjólkurgæði
fá þau bónus. Þessi bónus getur
numið allt að 9 íslenskum krónum
á hvert kíló þurr efnis og kemur
þessi bónusgreiðsla með tilfærslu
innan afurðastöðvaverðsins,
þ.e. heildarútgjöld Fonterra
munu ekki aukast heldur verður
afurðastöðvaverð lækkað hjá þeim
sem verst standa sig.
/SNS
Kasakstan hyggst auka
kornframleiðslu til muna
Kasakstan er níunda stærsta land í
heimi í ferkílómetrum talið og eru
stór landsvæði þar sem nýtast vel
til kornframleiðslu. Nú hyggjast
stjórnvöld þar í landi auka korn
framleiðsluna til muna og horfa
til nýrra útflutnings markaða og
fjárfesta til að koma inn í land
búnaðinn.
Árlega framleiða bændur í land-
inu 19,5 milljónir tonna af korni
en innlend eftirspurn er í kringum
níu milljónir tonna. Uppskera
undanfarin ár hefur verið í jafnvægi
og helstu lönd sem korn er flutt út
til eru nágrannalöndin Kákasus,
Afganistan og Íran. Þar að auki hefur
útflutningur til Kína, Tyrklands,
Ítalíu og Spánar aukist hin síðustu ár.
Ný tækni og fleiri styrkir
Í Kasakstan er meginlandsveðurfar
þar sem meðalhiti yfir sumartímann
er í kringum 30 gráður en getur farið
niður í mínus 20 yfir vetrartímann.
Í norðurhluta landsins er frjósöm
jörð og rigning á köflum. Stór
svæði landsins eru þakin skógi en í
suðurhluta landsins eru þurrar sléttur
og eyðimerkur. Næstum engin á í
landinu rennur til hafs heldur renna
þær flestar í vötn eins og Kaspíahaf
eða gufar upp í eyðimörkinni. Flestir
árfarvegir eru uppþornaðir stóran
hluta ársins.
Í stórum hlutum landsins gera
náttúru legar og veðurfarslegar
aðstæður það að verkum að gott er
að rækta korn, sérstaklega hveiti.
Nú er einnig unnið að því að þróa
ræktun á fleiri tegundum með nýrri
tækni og auknum styrkjum til bænda.
Rúmlega 250 þúsund bændur eru í
landinu og öll kornframleiðsla er í
einkaeigu. Svæði bænda eru mis-
stór, allt frá fimm þúsund hekturum
í suðurhluta landsins til upp undir
70 þúsund hektarar í mið- og norð-
urhluta landsins.
Erlendir fjárfestar streyma að
Fjárfestar víða um heim líta nú
landið hýru auga enda er það að-
laðandi vegna legu þess, stuðn-
ingskerfis og réttindum fjárfesta.
Fjárfestinga verkefni í landinu njóta
hagstæðra skattareglna. Umhverfið
hefur leitt til þess að erlendir fjár-
festar hafa veðjað á landið en fastar
fjármagnsfjárfestingar jukust á
síðasta ári um tæp 30 prósent og
samsvaraði 1,4 milljörðum dollara.
Yfirvöld bjóða fjárfestum upp á alla
þá aðstoð sem þeir þurfa hyggist þeir
fjárfesta í landbúnaði
/ehg - Bondebladet
Amerískir kúabændur fá
1 milljarð dollara í krísustuðning
Kúabændur í Ameríku hafa farið
illa út úr afleiðingum kórónufar
aldursins og hafa stjórnvöld nú
veitt greininni einn milljarð dollara
í krísuhjálp sem deilist á tæp lega
18 þúsund kúabændur þar í landi.
Hvert kúabú fær því að meðaltali
um 60 þúsund dollara í stuðning
frá ríkinu vegna áhrifa heims
farald ursins.
Mjólkurverð í landinu hefur ekki
verið lægra í tíu ár og því er erfitt
um vik fyrir kúabændur og skýrist
það helst af COVID-19 en einnig af
viðskiptastríði milli Bandaríkjanna
og Kína sem hefur áhrif á verð land-
búnaðarvara. Haft er eftir forseta
landsins, Donald Trump, að sam-
band landanna
hafi kólnað
enn frekar í
kjölfar kór-
ónu-veirunn-
ar. Þar að
auki hefur
meðhöndlun
Kínverja á
Hong Kong og múslímskum minni-
hluta hópum í landinu slæm áhrif.
Kínversk stjórnvöld hafa gefið út að
fyrsti viðskiptasamningurinn milli
landanna, sem er upp á um 500
milljarða norskra króna, sé í hættu
ef Bandaríkin láti ekki af gagnrýni
sinni.
/ehg - Bondebladet
Mynd / Gunnhildur Gísladóttir
Amerískur bóndi.