Bændablaðið - 30.07.2020, Síða 36
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 202036
112.765.594 ástæður til að elska hitaveitur!
„Pabbi, það kemur ekkert heitt
vatn úr krananum!“ sagði sonur
minn við mig í töluverðri geðs
hræringu þegar hann átti að þvo
hendurnar fyrir svefninn, fyrsta
kvöldið sitt í heimsókn til heima
lands móður sinnar. Þar vorum
við stödd í Perú, landi þar sem
heimsklassa jarðvar maauðlind er
til staðar – en skrefið hefur ekki
verið tekið að fara í stórfellda nýt
ingu á henni.
Besta tæknilega lausnin
Fyrir okkur sem lifum og hrærumst
í orku- og veitumálum er það oft
sérstakt að upplifa hversu litla
athygli og umræðu það fær nú-
orðið hversu mikil lífsgæði nýt-
ing jarðvarmaauðlindarinnar
færir Íslendingum. Hérlendis eru
rúmlega 90% híbýla á Íslandi
kynt með hitaveitu sem byggir á
beinni nýtingu jarðhita, en einnig
eru starfræktar nokkrar sem nota
raforku sem orkugjafa. Þannig er
nær öll húshitun á Íslandi byggð
á endur nýjanlegum orkugjöfum.
Þessi staða sem við búum við á
Íslandi er e-ð sem aðrar þjóðir
dreymir um að ná. Í Hollandi er
til dæmis fram undan risastórt átak
í að byggja upp nýtingu jarðhita
til húshitunar. Þegar Hollendingar
leita sér fyrirmyndar, sérþekkingar
og almennt aðstoðar við verkefnið,
þá leita þeir hingað – til okkar.
Hagstæð lausn fyrir heimili og
fyrirtæki
Húshitun með jarðhita er ekki
bara almennt viðurkennt sem
besta verkfræðilega lausnin í
þeim geira, heldur er hún líka
ákaflega hagstæð fyrir heimili og
fyrirtæki. Ef við berum til dæmis
saman húshitunarkostnað í höfuð-
borgum á Norðurlöndum kemur í
ljós að hann er afgerandi lægstur
á Íslandi. Þar er kostnaðurinn hér-
lendis að meðaltali þrefalt lægri en
í öðrum höfuðborgum á Norður-
löndum.
Lífsgæði og atvinnusköpun
Annað umkvörtunarefni barnanna
minna þegar við vorum í Suður-
Ameríku var að komast ekki í sund,
því börnin eru vön því að geta valið úr
10 frábærum og heitum sundlaugum
um helgar. Þegar heim var komið
var það eitt fyrsta verkið að fara í
Lágafellslaugina. Auk sundlaug-
anna okkar frægu hefur undanfarin
ár verið mikil uppbygging hringinn
í kringum landið hjá ferðaþjónustu-
fyrirtækjum sem byggja á nýtingu
heita vatnsins. Má þar t.d. nefna
Bláa lónið, Sjóböðin á Húsavík,
Bjórböðin á Árskógssandi, Vök
Baths í Fljótsdalshéraði og Fontana
í Bláskógabyggð. Þá má ekki gleyma
hátæknifyrirtækjunum okkar sem
nýta heita vatnið til ræktunar í gróð-
urhúsum, fiskeldis, framleiðslu á há-
tækni lækninga og snyrtivörum og
alls kyns atvinnusköpunar.
Risastórt framlag í
loftslagsmálum
Mér telst til að ég sé kominn með sjö
ástæður til að elska hitaveitur. Sem
þýðir að mig vantar 112.765.587
ástæður, ef ég ætla að ná því sem
boðað var í titli greinar minnar. Það
næst með því að skoða hversu mikið
hitaveiturnar spara okkur í losun
gróðurhúsalofttegunda. Húshitun
(og rafmagnsframleiðsla) með
endurnýjanlegum orkuauðlindum
er langstærsta framlag Íslands í
loftslagsmálum. Samkvæmt tölum
frá Orkustofnun er uppsafnaður
sparnaður Íslendinga í losun gróð-
urhúsalofttegunda í gegnum árin,
með því að notast við endurnýjan-
lega orku til húshitunar í stað jarð-
efnaeldsneyta, 112.765.587 tonn. Til
samanburðar við þessi 112 milljón
tonn, þá má nefna að árlega losun frá
landbúnaði á Íslandi er 0,6 milljón
tonn.
Förum vel með auðlindina
Þessi árangur er ekki sjálfsagður.
Það var og er gríðarlega kostnað-
arsamt og flókið verkefni að byggja
upp og viðhalda íslenska hitaveitu-
kerfinu. Sú staðreynd kallar á að
við kunnum að meta heita vatnið
og hitaveiturnar og förum sparlega
með þessa verðmætu auðlind. Þar
er margt sem við getum öll gert. Á
heimasíðu Veitna má t.d finna mörg
góð hollráð um heitt vatn:
• Berum saman okkar notkun
við meðalnotkun sambæri-
legs heimilis og skoðum
hvernig við getum nýtt heita
vatnið sem best.
• Látum fagmann stilla hita-
kerfið.
• Notum lofthitastýrða ofn-
loka til að jafna innihitann.
• Förum yfir þéttleika og ein-
angrun glugga og hurða.
• Lokum gluggum þegar kalt
er úti.
• Förum yfir hitakerfi hússins
og jafnvægisstillum þegar
kólna fer í veðri.
Ég lofaði 112.765.594 ástæðum
til að elska hitaveitur og vona að
ég hafi sýnt fram á það. Þær eru
samt miklu fleiri. Ef þið höfðuð
nb. gaman af þessari grein minni
þá bendi ég á næstu grein mína:
320.680.342 ástæður til að elska
endurnýjanlega raforku!
Höfundur er forstöðumaður fags-
viða hjá Samorku
LESENDABÁS
Sigurjón Norberg Kjærnested.
FISKNYTJAR&NÁTTÚRA
Vöktun er mikilvæg til að fylgjast
með því hvort eldislax sé að ganga
upp í veiðiár og er grunnforsenda
þess að hægt sé að taka upplýstar
ákvarðanir. Hafrannsóknastofnun
hefur ekkert minnst á haustvöktun
og lætur þannig hjá líða að
upplýsa stjórnvöld um virkustu
vöktunaraðferðina sem er forsendan
fyrir því að hægt verði að meta
hlutfall eldislaxa í veiðivötnum hér
á landi á hagkvæman og skilvirkan
hátt. Haustvöktun gengur út á að
kafað er í veiðiár að hausti og taldir
villtir laxar og eldislaxar.
Í Áhættumati erfðablöndunar
er megináhersla lögð á að vakta
erfðablöndun, þ.e.a.s. staðfesta að
atburðurinn erfðablöndun hafi átt sér
stað. Hér er ,,lokaafurð“ mæld og
metin, aðferðafærði sem var lögð
af í sjávarútvegi fyrir áratugum.
Nú er lögð áhersla á í sjávarútvegi
að vera með eftirlitið sem næst
þeim stað sem galli eða áhættan
getur hugsanlega myndast. Þar er
markmiðið að uppgötva og leiðrétta
það sem aflaga fer sem fyrst til að
lágmarka tjónið.
Sýnatökur sem gefa
takmarkaðar upplýsingar
Til að staðfesta erfðablöndun er lagt til
í Áhættumati erfðablöndunar að raf-
veitt verði á hverju ári í um 20 veiðiám
en aðeins sex þeirra er að finna á eld-
issvæðum. Það er því aðeins verið að
vakta lítinn hluta af veiðiám á eld-
issvæðum sem getur staðfest hvort
erfðablöndun hafi átt sér stað. Hér er
um kostnaðarsama aðferðafærði og af
skiljanlegum ástæðum s.s. í Noregi er
ekki lagt mikið upp úr þessum DNA-
sýnatöku til að ákvarða hlutfall eld-
islaxa í veiðivötnum. Vöktunin felur
því í sér að verið er að staðfesta tjónið,
erfðablöndun, en áherslan ætti að vera
að koma í veg fyrir slíkt og nota aðeins
þegar grunur er um erfðablöndun til
staðfestingar.
Sýnatökur og villandi niðurstöður
Í áhættumati erfðablöndunar er gert
ráð fyrir því að senda til helstu lax-
veiðiáa strokusýni (DNA-sýnatöku)
og jafnframt óskað eftir hreistursýni
til að meta hlutfall eldislaxa. Það
eru ákveðin vandkvæði við notkun
á þessari aðferð, ef sýnin eru tekin
á stangveiðitímabilinu mælist lágt
hlutfall eldislaxa sem gefur ekki raun-
hæft viðmið um hlutfall eldislaxa á
hrygningartímanum. Þetta er ástæðan
fyrir því að Norðmenn leggja mikla
áherslu á haustvöktun sem gefur
góðar og raunhæfar upplýsingar um
hlutfall eldislaxa í veiðiám.
Haustvöktun
Í Noregi hefur haustvöktun verið
framkvæmd með góðum árangri
síðustu ár í um 200 veiðiám. Meira
finnst af eldislaxi í veiðiám að hausti
en í stangaveiði að sumri. Það er
ástæðan fyrir því að Norðmenn
leggja mikla áherslu á að kortleggja
hlutfall eldislaxa í veiðiám að hausti.
Með haustvöktun fást áreiðanleg
gögn til að leggja mat á hvort hugs-
anleg erfðablöndun geti átt sér stað.
Samfara auknu umfangi laxeldis á
Vestfjörðum og umfangsmiklum
áformum er skynsamlegt að vera
með árlega haustvöktun til að meta
stofnstærð villtra laxfiska og hlutfall
eldislaxa eins og gert er í Noregi.
Af hverju ekki haustvöktun?
Það er athyglisvert að Hafrann-
sóknastofnun forðast að nefna á nafn
haustvöktun – hver ætli ástæðan sé
fyrir því? Stundum er því haldið
fram að veiðiréttareigendur muni
ekki samþykkja að farið verði í
þeirra veiðiár og leitað að eldislaxi.
Staðan er sú að veiðiréttareigendur
á Vestfjöðrum standa nú frammi
fyrir því að í fyrsta áhættumati
erfðablöndunar var lagt til 50.000
tonna eldi á frjóum laxi í sjókvíum
á Vestfjörðum. Í nýju áhættumati
á þessu ári voru framleiðsluheim-
ildir hækkaðar í um 65.000 tonn.
Ein sviðsmynd sem blasir við
veiðiréttar eigendum er að eldislax
getur leitað í töluverðum mæli upp
í veiðiár ef stórar slysasleppingar
eiga sér stað. Af hverju ættu þeir
að vera á móti slíku inngripi sem
fælist í haustvöktun? Það væri hlut-
verk Umhverfissjóðs sjókvíaeldis,
sem laxeldisfyrirtækin fjármagna,
að greiða kostnaðinn og ávinningur
veiðiréttareigenda væri að þeir
fengju upplýsingar:
• Um stofnstærð laxastofns í
veiðivatninu og hvort hæfilegt veiði-
álaga væri á stofninum.
• Um hlutfall eldislaxa í veiði-
vatninu og hugsanlegar líkur á erfða-
blöndun áður en hrygning á sér stað.
Árvaki
Í áhættumati erfðablöndunar er
lögð mikil áhersla á notkun árvaka.
Stór kostur við árvaka er að þar
kemur strax fram hvort eldislax
er að ganga upp í veiðiár og geta
þannig upplýst um slysasleppingar
sem ekki hafa verið tilkynntar.
Með að skoða erfðaefni stroku-
laxanna er síðan hægt að staðfesta
uppruna þeirra. Gallinn við vöktun
með árvökum skv. upphaflegu
áhættumati erfðablöndunar er að
gert er ráð fyrir að staðsetning
flestra þeirra verði langt frá eld-
issvæðum þar sem eldi á frjóum
laxi er heimilað. Eftir því sem
fjær dregur þeim stað sem slysa-
slepping hefur átt sér stað eru færri
og færri eldislaxar sem leita upp í
veiðiár og munu því flestir árvak-
arnir skila litlu er varðar vöktun á
hlutfalli eldislaxa í veiðivötnum.
Slysaslepping getur því átt sér stað
t.d. á sunnanverðum Vestfjörðum
án þess að strokulax komi upp í
árvökum. Þeir fjármunir sem fyr-
irhugað er að verja í árvaka sem
eru í jafnvel hundruða km fjarlægð
er betur varið með að koma fyrir
í meiri nálægð við eldissvæðin.
Árvakar mæla þó aðeins hlutfall
eldislaxa í örfáum veiðivötnum og
ekki raunhæf leið til að vakta öll
veiðivötn vegna mikils kostnaðar.
Það er aftur á móti hægt að gera
fyrir flestar eða allar veiðiár með
haustvöktun sem er hagkvæmasta
og besta aðferðafræðin til að vakta
hlutfall eldislaxa í veiðiám.
Höfundur er sjávarútvegs-
fræðingur og hefur m.a. unnið
við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm
þrjátíu ár.
Valdimar Ingi Gunnarsson.
Áhættumat erfðablöndunar og vöktun laxastofna
Laxá í Kjós. Mynd / Aðsend
Oft heyrum við talað um
ferðamannastaði sem eftir
sóknarverða áfangastaði, t.d.
Tenerife. Þarna finnst mér að
orðið „áfangi“ sé misskilið.
Áfangi er hluti af lengri leið.
Grunnbúðir 1 eru einn áfangastað-
ur á leið þeirra sem ætla upp á topp
Everest-fjalls, grunnbúðir 2 eru
næsti áfangastaður o.s.frv. Þegar
komið er á toppinn er hann ekki
áfangastaður því lengra verður
ekki komist, heldur er þá komið á
leiðarenda eða ákvörðunarstað.
Á toppnum er ekki hægt að setj-
ast að þannig að hann er bara við
komustaður. Þannig er það með
flesta ferðamannastaði, þeir eru
viðkomustaðir eða dvalarstaðir
til skamms tíma. Oft er hægt að
komast á ákvörðunarstað í einum
áfanga en annars verðum við að
stoppa á einhverjum áfangastað
og halda síðan áfram seinna.
Þorsteinn Guðmundsson
MÁLFAR&MÁLNOTKUN
Áfangastaður
Er kroppurinn
í lagi?
Mörg búverk krefjast þess að bóndinn
sé í líkamlega góðu formi. Hann verður
að búa yfir styrk, lipurð og þoli til að
mæta ólíkum verkefnum dagsins.
Þess vegna er mikilvægt að halda
sér í formi, gera reglulega æfingar
og leggja áherslu á að styrkja alla
vöðva líkamans.
Er þitt bú
öruggur
og góður
vinnustaður?
Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi
og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
PO
RT
h
ön
nu
n
Sporléttur ferðamaður. Mynd / TB