Bændablaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 37
LESENDABÁS
Í lok síðasta árs tók undirritaður
þátt í innlausnarmarkaði með
greiðslumark sauðfjár. Niðurstaða
markaðarins var kynnt snemma
í janúar en ég tel að framkvæmd
hans hafi ekki verið í samræmi
við reglugerð nr. 1009/2019 sem
kvað á um verklag markaðarins.
Í þessari grein ætla ég að rekja
samskipti mín við atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneyti og
Umboðsmann Alþingis í framhaldi
af markaðnum.
Samkvæmt reglugerðinni átti
ákveðinn hluti umsækjenda forgang
á 60% greiðslumarks sem var í
boði en hin 40% áttu að skiptast
milli allra umsækjenda. Ekki var
tekið fram hversu mikið hver
umsækjandi gat sótt um en ákvæði
um hámarksúthlutun sem nam 600
ærgildum.
Við framkvæmd markaðarins á
vefsvæðinu afurd.is var sett hámark
á fjölda ærgilda (600 ærgildi) sem
hver umsækjandi gat sótt um í
umsóknarformi en slíkt ákvæði er
ekki í reglugerð nr. 1009/2019. Sú
framkvæmd stenst ekki reglugerðina
því í henni var ekkert sem bannaði
að sækja um 200.000 ærgildi enda
úthlutun háð hlutfallsútreikningum
og þannig hefði umsækjandi
aðeins verið að tryggja sér stöðu
við úthlutun enda var 600 ærgilda
hámark í úthlutun. Markaðinn hefði
því með réttu átt að endurtaka þar
sem þessi framkvæmd var hvergi
kynnt.
Stjórnsýslukæra er ekki möguleg
vegna landbúnaðarmála
Í framhaldi af þessu vakti ég athygli
Umboðsmanns Alþingis á þessu. Í
stuttu máli sagt kynnti hann sér
málið ekki betur en svo að hann taldi
að reglugerð 1253/2019 ætti að gilda
sem mun gilda um innlausnarmarkað
á árinu 2020. Jafnframt benti
Umboðsmaður á að rökrétt fyrsta
skref hefði verið að leita beint til
ráðherra.
Í framhaldinu sendi ég stjórn
sýslukæru til landbúnaðar ráðherra
vegna framkvæmdar markaðarins
með vísan í 1. mgr. 3. gr. búvöru
laga nr. 99/1993, 31. gr. reglugerð
ar um stuðning við sauðfjárrækt nr.
1262/2018 og VII. kafla stjórnsýslu
laga nr. 37/1993. Í svari sem mér
barst 10. mars sl. var stjórnsýslu
kærunni vísað frá þar sem innlausn
armarkaðurinn var framkvæmdur af
atvinnuvega og nýsköpunarráðu
neytinu og niðurstaðan því ekki
kæranleg til ráðuneytis – þó framan
greindar laga og reglugerðargreinar
kveði skýrt á um það.
En ráðuneytið bregst við gagn
rýni á framkvæmdina með þessum
hætti:
Hver framleiðandi getur ekki
fengið hærri úthlutun en sem nemur
600 ærgildum. Í reglugerðinni er
þannig kveðið á um að hámarks
úthlutun séu 600 ærgildi og ekki er
tekið fram að kaupandi geti óskað
eftir fleiri ærgildum en sem því
nemur. Því er talið rétt og eðlilegt
við framkvæmd innlausnarmark
aðar að hámarksbeiðni sé jöfn því
hámarki sem hverjum einstökum
umsækjanda er heimilt að kaupa.
Breyta frétt án þess
að skoða forsendur
Fyrir mér er svarið ekkert annað
en yfirklór af hálfum ráðuneytisins
til að réttlæta þeirra framkvæmd.
En þar með er ekki öll sagan
sögð. Því undirritaður sótti sjálfur
um 200 ærgildi og fékk 12,5
ærgildum úthlutað. Það gera 6,2%
af kaupósk. Sú niðurstaða passaði
ekki miðað við frétt um framkvæmd
markaðarins sem sagði að almennur
hópur hefði fengið 5,7% af kaupósk
úthlutað. Ráðuneytið brást við þeirri
ábendingu á þann hátt að breyta
fréttinni sem er svona í dag á vef
Stjórnarráðsins.
„Óskir um innlausn á greiðslu
marki voru 97 talsins og er inn
leysir ríkið greiðslumark samtals
sem nemur 6.625 ærgildum. Óskir
um kaup á greiðslumarki voru 182
talsins og var óskað alls eftir 46.493
ærgildum. Í heildina er hlutfall til
úthlutunar 14,2% af óskum um kaup.
Óskir um kaup í forgangshópi nema
39.500 ærgildum og er 3.975 ærgild
um ráðstafað til forgangshóps (60%).
Þá var 2.650 ærgildum úthlutað til
alls hópsins sem er þá 6,2% af ósk
um kaup. Hver framleiðandi í for
gangshópi fær því alls 15,7% af kau
pósk sinni úthlutað en framleiðandi
í almennum hópi fær úthlutað 6,2%
af kaupósk sinni.“
Síðast þegar ég vissi var 3.975
deilt með 39.500 jafnt og 0,100 eða
10%. Að sama skapi eru 2.650 deilt
með 46.493 jafnt og 0,0569 eða
5,7%. Út frá þessu er vel skiljanlegt
að forgangshópur fái úthlutað 15,7%
af kaupósk (10% + 5,7% = 15,7%)
en óskiljanlegt að almennur hópur
fái 6,2% kaupóskar úthlutað þar sem
6,2% er 0,5% hærra en niðurstaða
útreiknings fyrir almennan hóp.
Með öðrum orðum þá fékk
ég hærri úthlutun en mér bar og
ráðuneytið sér ekkert athugavert.
Það er mitt mat að framkvæmdin
sé skólabókardæmi um lélega
stjórnsýslu og það að breyta frétt og
ekki skoða forsendur útreikninga eru
ámælisverð vinnubrögð.
Ég leitaði því aftur til Umboðs
manns Alþingis þar sem ég vakti
athygli á þessu misræmi og óskaði
jafnframt leiðbeininga um hvern
ig fara ætti með stjórnsýslukærur
tengdum stjórnvaldsákvörðunum
landbúnaðar. Umboðsmaður sá ekk
ert athugavert við úthlutun greiðslu
marks þó bent hafi verið á misræmið.
Varðandi stjórnsýslukærurnar þá taldi
Umboðsmaður að ekki sé þörf á leið
beiningum þar sem ég hafi sett mig
í samband við ráðuneytið og fengið
fullnægjandi svör.
Ráðherra kastar
steinum úr glerhúsi
Að þessu sögðu þá finnst mér sjáv
arútvegs og landbúnaðarráðherra
kasta steinum úr glerhúsi þegar hann
ávarpar Búnaðarþing með þessum
orðum í mars sl.
Eitt af því furðulegra sem hendir
þann sem hér stendur er að funda oft
í viku með öflugu starfsfólki á land
búnaðarskrifstofu ráðuneytisins, en
lesa svo á sama tíma fullyrðingar frá
ýmsum velgjörðarmönnum íslensks
landbúnaðar um að þetta sama
starfsfólk sé ekki til. Þannig er ýmist
fullyrt að landbúnaður sé í skúffu í
ráðuneytinu eða að skrif stofan hafi
verið lögð niður. Menn virðast halda
að ef þeir fullyrði þessa þvælu nógu
oft að þá verði til nýr sannleikur.
Það er réttmæt gagnrýni á land
búnaðar skrifstofu ráðuneytisins að
hún sé varla til þegar vinnulagið
er ekki betra en þetta og menn sjá
ekki að sér að viðurkenna mistök
sín. Nú er spurning hvort sjávarút
vegs og landbúnaðarráðherra ráði
við reikningsdæmið hér að ofan og
sjái muninn á réttu og röngu en
í ræðu á Alþingi fyrr á þessu ári
sagði hann að fimm mínus tveir
væru þrír.
Jafnframt benti ég ráðuneytinu
á að gefa út reikning (fullgilt bók
haldsgagn) fyrir viðskipti með
greiðslumark á innlausnarmarkaði
en greiðslumark skal eignfæra í
eignaskrá sbr. 48. gr. laga um tekju
skatt nr. 90/2003. Svar hefur ekki
borist við þessari ábendingu og svo
virðist sem þeir telji að umsóknar
formið sé fullgilt. Ég bar það skjal
undir löggiltan endurskoðenda sem
telur svo ekki vera því umsóknar
formið gefur ekki til kynna hvort af
viðskiptum hafi orðið eða á hvaða
bókhaldsári viðskipti eigi sér stað.
Þarna hefðu nú verið hæg heima
tökin fyrir ráðuneytið að vita hvað
er rétt og hvað rangt því það ber
ábyrgð á viðurkenningu bókara
skv. 43. gr. laga um bókhald nr.
145/1994.
Nýverið auglýsti ráðuneytið svo
störf þriggja skrifstofustjóra undir
fyrirsögninni: „Við leitum að for
ystufé“. Ég vona innilega að ráðu
neytinu farnist að ráða einstakling í
starf skrifstofustjóra land búnaðarmála
sem hefur þekkingu á málaflokknum.
Sem sauðfjárbóndi veit ég að forystufé
er misjafnt að gæðum og fer oft og
tíðum eigin leiðir og allt annað en eig
andi vill að það fari. Vonandi verður
skrifstofustjóri landbúnaðarmála ekki
þannig „forystufé“ í því krefjandi ver
kefni að byggja upp traust á stjórn
sýslu landbúnaðarmála meðal bænda
og annarra velgjörðarmanna íslensks
landbúnaðar.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
sauðfjárbóndi,
Ásgarði í Hvammssveit
Eyjólfur Ingvi Bjarnason í bústörfum. Mynd / Daníel Þór Ágústsson
Hugleiðingar um stjórnsýslu landbúnaðarmála
PRONAR T663/4
11 tonna sturtuvagn
með tandemhásingum.
480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
Kr. 2.490.000 án vsk.
LANDBÚNAÐARDEILD AFLVÉLA
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Opnar stöðvar
Stöðvar í húsi
Stöðvar í gám
Aukabúnaður eins og sjálfvirkur
skiptirofi og fleira
Öflug og góð þjónusta
Gerðu kröfur — hafðu samband við
Karl í síma 590 5125 eða sendu línu
á kg@klettur.is og kynntu þér þína
möguleika.
Allar stærðir
af CAT raf-
stöðvum: