Bændablaðið - 30.07.2020, Page 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 30. júlí 2020 39
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaðiTÚTTA
SIÐAÐUR
BLIKKA SLÆPIST
TÓNLIST
ÞUSA
TAK
STUTTUR
ÓBREYTT
ULLAR-
EFNI
ÖSLA
VÍSA LEIÐ
RÓRILLA
GEGNA
ÖÐLUÐUST
RÍKI Í
AMERÍKU
YFIR
SKRÁMA
FARFA
GREINI-
LEGUR
HVAÐ
LÆKNA
DÓTARÍGLYMJANDI
LEIÐSLA
VÍS-
BENDING
NÓTA
EFNI
SKRÆKJA REIÐIR AFKVEINI
NÆGILEGA
KAUPTÚN
AFHÓLFA
ÓVISS
RÍKI Í
AFRÍKU
RANNSAKA
SKÖRP
SKILJA
ELSKA
STRENGUR
MÝKING
HÁTTALAG
VAGN
ÁHRIF
LÉREFT
BLÁSA
LÖGSÓKN RÁNDÝRA
FÖR
TÓLG
MORA
NIÐURLAG
EFTIR-
MYND
MÆLING
SÓNN
TIL-
SAMANS
TVÍHLJÓÐI
FREYÐA
VORKENNA
MARG-
SINNISKAUPS
ÚTLIMIR
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
135
SKYNFÆRI
MESSINGS E VÆTA S RAKI SKRIÐAÁGENGNI H
KBURÐAR-KLÁR L Y F J A D Ý R ÁLITS
LKVK NAFN Á R A LÍKUM G E T U M
ÓURMULL T A TÆLAGNÆFA G I N N A
Ú UPPGANGAMÓÐINS S T I G I BRESTIR T
R STIG SKORTIRÞRÁTTA V A N T A R ÚTGENGINN L TVEIR EINSFÆLA S S
SVÍKJARISPA
RÓREIÐATÆPLEGA
RÝJA
L
U S K A STÖÐUGTGIMSTEINN S Í TJÓN Ó G A G N FUGLT
S K Ý R T STIKK-PRUFA S Ý N I ÓÐAGOTANDIN R A SLJÓST
L O T T Ó KVÖLD K AFOXAORÐSTÍR A F S Ý R A
HAPP-
DRÆTTI
AÐEINS
A R A PUKURBLANDAR P A U F
ÖNDUNAR-
FÆRI
HLUTDEILD T Á L K NB
K ANDVARI SEPIBRÚNIR L A F SÖNGLA R A U L A INNI-LEIKUR D
A B B A S T TIGNARINUDDA Æ Ð R I STINGHLJÓÐFÆRI A LÁREITAHLUTSKIPTI
R L Ö G TOTA A N G I SÖGNSKYLDIR N Ó L ÓÖ
F
A
Æ
R
R
Ð
A
R
HVEITI-
DEIGS
LENGJA
Æ
N
N
Ú
A
Ð
ÞOKKALEG
L
D
A
Á
DVELJAST
G
B
Ó
Ú
Ð
AFLYTJA
HLUNN-
FARA
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
134
Smáauglýsingar 56-30-300
Komið hefur fram í þessum
pistlum að ég er duglegur að
ferðast innanlands. Fyrir rúmri
viku skellti ég mér í hringferð
um landið með konunni á okkar
gamla húsbíl. Það sem vakti mesta
athygli mína í þessari ferð var hvað
fólk virðist vera orðið værukært
gagnvart pestinni sem plagar allt
og alla og nefnist COVID-19.
Íslenskar vegasjoppur njóta
góðs af ferðaþyrstum Íslendingum.
Þær eru fæstar hannaðar til að vera
með langar biðraðir við afgreiðsl-
una, nánast ógerningur er að halda
tveggja metra bilinu. Eitthvað virð-
ast stjórnendur vega sjoppanna hafa
misreiknað fjölda „sjoppuglaðra“
Íslendinga, en ekki var óalgengt
að bið eftir SS-pylsu væri allt að
klukkustund (hætt við að eitthvað
þurfi að endurskoða starfsmanna-
fjöldann fyrir komandi helgi). Þó að
til standi að létta á samkomureglum
þá eru nokkrir dagar í það enn sem
þarf að virða.
Tjaldstæðin misjöfn
Við hjónin gistum á tjaldsvæðum
eins og á að gera því að húsbílar
eiga að vera á tjaldsvæðum en ekki
almennum bílastæðum. Alltaf er þó
eitthvað um að húsbílum sé lagt yfir
nótt þar sem þeir eiga ekki að vera. Þó
fannst mér í tvígang, þegar ég horfði
yfir húsbíla- og tjaldborgina, að 500
hámarks fjöldinn væri svolítið í plús
(eitthvað sem huga þarf að fyrir
komandi helgi og virða eða gera ráð
fyrir). Almennt fannst mér verðlagið
ekki hátt, lægst 2.000 krónur nóttin
fyrir okkur tvö á húsbíl og ekkert
rafmagn. Hæsta verðið var frá 3.000
til 3.400 kr., en á þeim stöðum var
aðstaðan framúrskarandi góð, sturta,
þvottavél og fleira. Það vakti hins
vegar furðu mína að tjaldsvæði mega
ekki nota ferðagjöfina sem allir
Íslendingar fengu að upphæð 5.000
kr., en þessa gjöf má nota í bakaríum
og á hamborgarastöðum (satt best að
segja svolítið undarlegt!).
Umferðin flestum til sóma –
með örfáum undantekningum
Almennt var umferðin á þjóð-
vegunum til fyrirmyndar og
greinilegt að nýju umferðarlögin
sem tóku gildi um síðustu áramót,
að bílar með eftirvagna mættu vera
á sama hraða og aðrir, eru ekki að
skapa óþarfa framúrakstur. Umferðin
leið áfram tiltölulega örugg og
áhættulaus fyrir utan að of margir
voru ljóslausir, bæði að framan og
aftan. Þetta þarf að minna bílstjóra
á fyrir verslunarmannahelgina sem
alltaf er þung umferðarhelgi.
Vegmerkingar þarf að bæta
Eins og alltaf á sumrin eru
vegaframkvæmdir áberandi. Þar
þarf aðeins að bæta í merkingar. Á
Suðurlandi er verið að betrumbæta
á nokkrum stöðum einbreiðar
brýr (þó fyrr hefði verið), en á
nokkrum af þessum stöðum er
viðvörunarmerkingum verulega
ábótavant. Allt of seint er varað
við vinnu og hjáleiðum fram hjá
vinnusvæði. Sérstaklega tók ég
eftir þessu í tvígang þar sem að í
annað skiptið var fyrsta viðvörun
eftir blindhæð og í hitt skiptið eftir
blindbeygju. Einnig vantar oft
merki um að vegur sé ósléttur fram
undan og í a.m.k. tvígang þurfti
fjöðrunarkerfið að vinna vel fyrir
sínu (og konan að leita af prjónunum
á gólfinu eftir hossinginn).
Skelfingarsvipur á grískum
mótorhjólahjónum
Í ferðalaginu höfðum við stórt
mótorhjól með í bílnum og
keyrðum á því út frá áfangastöðum.
Frá Egilsstöðum fórum við, eins
og margir, á Borgarfjörð eystri,
en veginn þangað er verið að
betrumbæta. Það verður að segjast
eins og er að hann er afskaplega
óþægilegur fyrir tvíhjóla ökutæki,
en í lagi á vel dekkjuðu hjóli. Aðra
sögu sögðu okkur grísk hjón sem við
hittum fyrir neðan lausa malarkaflann
í Vatnsskarðinu. Þau höfðu ferðast
um allt landið í þrjár vikur og fundist
allir malarvegir skemmtilegir þar
til að þau komu að þessum þriggja
kílómetra kafla. Þau voru enn með
skelfingarsvipinn í andlitinu þegar
þau lýstu akstrinum og sögðu að þau
hefðu aldrei farið þessa leið ef þau
hefðu vitað hvað biði þeirra (spurning
um að finna upp skilti til að merkja
svona framkvæmdir sérstaklega).
Ekki gleyma okkur í gleðinni
Tjaldsvæðið í Vík í Mýrdal var þétt setið og stutt á milli tjalda og vagna.
Myndir / HLJr
Grísk hjón lýstu skelfilegum augnablikum í beygjunum þremur þarna uppi
í lausamölinni.
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is