Morgunblaðið - 12.03.2020, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRFormúla-1
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MARS 2020
því að segja að það væri veikleika-
merki að skaka vopnin með þeim
hætti sem hann gerði.
„Eina raunverulega keppnin sem
hann hefur fengið síðustu árin er
frá liðsfélaga sínum,“ segir Ver-
stappen. „Bíll þeirra hefur verið um
of drottnandi vertíðina út í gegn til
að aðrir gætu gert eitthvað við því.
Það hefur verið nokkuð óþægileg
og mér finnst við ekki hafa getað
sett hann í álagspróf. Ég er orðinn
volgur og ólmur í að takast á við
hann og hann veit af því. Liðið allt
er áfram um að standa sig vel og
velgja þeim [Mercedes] verulega
undir uggum. Hafi maður ekki eld-
móð til þess er eins gott bara að
sitja heima.“
Gamall refur glottir
Við þróunarakstur í aðdraganda
keppnistíðarinnar birtust bílar
Mercedes með tveggja öxla stýri
(DAS) við hefðbundinn skarkala
keppinauta þeirra í bílskúrarein-
inni. Með því útspili vonast liðið til
að standa betur að vígi er það
freistar þess að vinna heimsmeist-
aratign bílsmiða sjöunda árið í röð.
Keppnisstjóri formúlunnar, Ross
Brawn, gamall refur þegar bíltækni
er annars vegar, sagði útspil Merce-
des „klassískt fyrir Formúlu-1“.
Brawn stýrði á sínum tíma Benetton
og Ferrari til fjölda titla og síðan með
eigin liði árið 2009. Hann segir að
gera megi ráð fyrir formlegum mót-
mælum gegn nýrri tækni Mercedes í
fyrsta móti og að búnaðurinn verði
bannaður á næsta ári. „Ég hef verið
þátttakandi í fullt af rifrildismálum
um dagana. Nú horfi ég á þræturnar
með glotti,“ segir hann.
Brawn segir að Hamilton verði
áfram sá sem leggja verði að velli ætli
aðrir ökumenn sér titilinn. Þeirri
skoðun deilir fyrrverandi heims-
meistari, Damon Hill, sem líkir stöðu
landa síns í Formúlu-1 við ríki Roger
Federer í tennisíþróttinni.
„Hann kemst aftur og aftur fremst
í fylkingu,“ segir Hill. „Til þess þarf
óhemju hæfileika en ekki þó bara það.
Hann hefur ræktað þá, beitt þeim,
ekki sóað þeim í óþarfa. Hann er
undur,“ bætti landi Hamiltons við.
Titil ökumanna hefur Hamilton
unnið sex sinnum (2008, 2014, 2015,
2017, 2018 og 2019) og hampi hann
honum á ný undir árslok jafnar hann
metin við Schumacher. Blasir þá við
að stökkva inn í ókannaðar lendur til
frekari sigra og mögulega áttunda
titlsins. Hvað sem öðru líður gæti
árið 2020 allt eins markað upphaf
drottnunarskeiðs.
AFP
Á fullri ferð Franski ökuþórinn Romain Grosjean, sem ekur fyrir Haas, á fullri ferð á æfingu á Circuit de Catalunya í Barcelona fyrr á þessu ári.
25
24
26
10
Daniil
Kvyat (Rússland)
Pierre
Gasly (Frakkland
)
AlphaTaur
i
30
21
11
18
Sergio
Perez (Mexíkó)
Racing Po
int
Lance
Stroll (Kanada)
HACKETT
Claro
Heimild: Formula1.com
Aldur
Númer ökum
anns
Lið og ökum
enn 2020
32
22
5 1
6
Sebastian
Vettel (Þýskalan
d)
Ferrar i
Charles
Leclerc (Mónakó
)
23
303
Daniel
Ricciardo (Ástra
lía)
31Esteban
Ocon (Frakkland
)
Renault
22
23
33
23
Red Bul l
Max
Verstappen (Hol
l.)
Alexander
Albon (Taíland)
33
27
8 20
Haas
Romain
Grosjean (Frakk
l.)
Kevin
Magnussen (Da
n.)
splunk
>
Klipsch
20
2555
4
McLaren
Carlos
Sainz Jr (Spánn
)
Lando
Norris (Bretland
)
35
30
Mercedes
Lewis
Hamilton (Bre
tl.)
44
77
Valtteri
Bottas (Finnland
)
40
26
7
99
Kimi
Räikkönen (Fin.
)
Antonio
Giovinazzi (Ítalí
a)
Alfa Rome
o
24
22
6
63
Wil l iams
Nicholas
Latifi (Kanada)
George
Russell (Bretlan
d)
AFP
Mörg handtök Það eru mörg handtökin við undirbúning fyrir kappakstur.
Hér bjástra starfsmenn McLaren-liðsins við vélarhluta í Melbourne.
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
ALLT Í FERMINGAR-
VEISLUNA
Smiðjuvegi 9 • 200 Kópavogur • s. 567 9911 • www.alltikoku.is
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á ALLTIKOKU.IS
Frábært úrval af
fermingarstyttum
sykurskreytingum
servíettum – löberum
Sjón er sögu ríkari, kíktu við !
Yfir 12.000 vörunúmer