Safnablaðið Kvistur - 2020, Side 46
til að velta vöngum yfir mikilvægi
ferskvatns, spjalla um útlit og lífs-
feril vatnadýra og vatnajurta, hvernig
lífverur aðlagast ólíkum aðstæðum
og til verður fjölbreytt lífríki. Með
þessu móti er reynt að vekja áhuga
nemendanna á náttúrinni og víkka
út þá þekkingu sem þau búa yfir og
færa hana í orð eða hugsun.
Þegar kynningu lýkur fá nemendur
verkefnablöð sem þau vinna með og
leita lausna inni í sýningarrýminu
um leið og þau njóta sýningarinn-
ar. Safnkennarar eru til staðar og
hjálpa nemendum ef á þarf að halda
og veita þeim upplýsingar um það
sem vekur áhuga þeirra. Verkefna-
blöðin eru sniðin að aldri nemenda
og eru fyrst og fremst hugsuð til
að halda einbeitingu þeirra. Yngri
Vatnið í
náttúru Íslands
SAFNFRÆÐSLA Á LIFANDI SÝNINGU
Vatn er algengasta efni jarðar og án
vatns væri ekkert líf! Ferskvatn er
viðfangsefni Náttúruminjasafns
Íslands á sýningu safnsins í Perlunni.
Vatnið er mikilvæg auðlind og á sýn-
ingunni er það skoðað frá ýmsum
sjónarhornum og fjallað um eðli þess
og gerð. Í safnfræðslu er fjallað um
fjölbreytt lífríki ferskvatns og hlut-
verk þess við mótun landsins.
Öll skólastig eru velkomin í leiðsögn
á sýninguna. Safnfræðslu er þó
aðallega beint til grunn- og fram-
haldsskóla enda er sýningin sérstak-
lega sniðin að þeim aldurshópum.
Safnkennarar eru tveir og eru með
menntun í jarðfræði og líffræði sem
tryggir faglega þekkingu.
Það fyrsta sem blasir við þegar hópar
koma í heimsókn er vatnsköttur í
120-faldri stækkun en vatnsköttur
er lirfa vatnabjöllu og einkennisdýr
sýningarinnar. Anddyrið hentar
vel til kynningar á efnistökum sýn-
ingarinnar því þar er mesta næðið.
Það hefur gefist vel að fá hópinn
til að setjast niður, þá færist ró yfir
hann og einbeiting verður betri.
Kynningin byrjar á vatnskettinum,
það er hann sem fangar athygli
nemenda og vekur upp spurningar.
Reynt er að hafa fræðsluna lifandi
og tengja hana við aldur gesta. Kynn-
ingin fer fram á óformlegan hátt
með fræðslu og spurningum sem
nemendur ýmist þekkja eða geta
giskað á rétt svar. Vatnskötturinn er
spennandi dýr sem fæstir þekkja og
er hann skoðaður í krók og kring,
fæturnir taldir og spáð í önnur sér-
kenni. Þá er fjallað um sérstakan
lífsferil skordýra og hann tengdur
við lífsskeið nemendanna (ungviði,
fullvaxta o.fl.). Margar spurningar
vakna og oft verða líflegar umræður.
Einnig er velt upp spurningunum:
Hvað er ferskvatn? og hvaðan kemur
vatnið? Hér fá nemendur að spreyta
sig og ýmsar hugmyndir skjóta upp
kollinum. Nemendur skoða þrjár
megingerðir ferskvatns í vatnssúlum
og ræða um eðlismun vatnsgerð-
anna, sem eru lindavatn, jökulvatn
og dragavatn, hvar líklegast er að
finna hverja gerð og hvað af þessu
nemendur vilja drekka! Yngri börn
fá í hendurnar hnattlíkan (sund-
bolta) þar sem þau sjá hvað hlutfall
ferskvatns er lítið borið saman
við magn sjávar. Meginmarkmið
kynningarinnar er að fá nemendur
48
Tjarnartítur eru meðal þeirra dýra sem sjá má í búrum sýningarinnar. Ljósm. Wim van Egmond.