Morgunblaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
TILBOÐ
20%afmælis afslátturí október
Áhudfegrun.is máfinna upplýsingar umallarmeðferðirnar!
20 ára
farsæl
reynsla
Af því tilefni bjóðumvið ykkur
20% afsláttaf öllummeðferðum
Húðslípun – Laserlyfting –Gelísprautun
Dermapen –Húðþétting –Háreyðing...
...sannarlega eitthvað fyrir alla!
Nýttu þér afmælistilboð okkar
bókaðu þínameðferð núna! Marta Maríamm@mbl.is
Nýja járnið frá HH Simonsen
heitir ROD XXL og er lengri út-
gáfa af ROD VS4-krullujárninu
sem hefur notið mikilla vinsælda
hérlendis. Þessi nýja lengd gerir
það að verkum að síðhærðir eiga
mun auðveldara með að krulla hár
sitt.
„Fyrir nokkrum árum fór ég
með þá hugmynd til HH Simonsen
að það væri geggjað að gera lengri
ROD VS4 sem er alltaf vinsælasta
keilan á landinu. Lengra járn fyrir
síðara og þykkara hár eða fyrir
styttra hár þar sem hægt væri að
dreifa hárinu betur á járnið og fá
lengri liði sem myndu þá auðvitað
ekki stytta hárið eins. Þeim fannst
hugmyndin góð og eftir samræður
við fagfólk og aðra dygga aðdá-
endur HH Simonsen hér á landi
var ákveðið að láta þennan draum
okkar rætast. Undanfarin ár höf-
um við því verið í beinu sambandi
við HH Simonsen til að hjálpa
þeim að gera þetta að veruleika og
erum við að sjálfsögðu sjúklega
stolt af þessu verkefni sem er
loksins tilbúið,“ segir hann.
Það er þó ekki bara nýtt krullu-
járn komið á markað heldur
splunkunýr blásari sem kallast
XS. Hann er lítill en jafnframt öfl-
ugasti blásarinn eða með 2.000
vatta mótor.
„Hann er með jónatækni sem
gerir hárið silkimjúkt og glans-
andi, auk þess sem hann er ein-
staklega þægilegur og hljóðlátur.“
Krullujárnið
sem síðhærðir
hafa beðið eftir
Það er fátt eins mikilvægt þessa dagana og að
reyna að lifa sem eðlilegustu lífi. Þvo á sér hárið,
blása það og krulla (ef fólk er með lengd í það) því
lífsvilji fólks fjarar út þegar það er ekki búið að fara
í bað í marga daga í röð og er kannski heima hjá
sér að vinna á sloppnum. Baldur Rafn Gylfason,
eigandi heildsölunnar bpro, lét hanna nýtt krullu-
járn í samvinnu við fyrirtækið HH Simonsen sem er
afar sterkt í krullujárnum.
Frábært hár! Tanja Ýr Ástþórsdóttir er með sítt og mikið hár og kann að meta nýja XXL-járnið frá HH Simonsen.
Meðfærilegra Járnið
er lengra en hefð-
bundið keilukrullujárn.