Morgunblaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020
ÞAÐ TEKUR AÐEINS UM 30 SEK.
AÐ SKIPTA UM POKA
Paxxo Longopac flokkunarkerfið er byltingarkennd lausn
í sjálfbærri flokkun. Paxxo er sænskur framleiðandi
í fremstu röð á sínu sviði í heiminum.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
COMMERZ
H: 100 cm
B: 107,5 cm
D: 44 cm
MINI BULLET
H: 86 cm
B: 38 cm
D: 20 cm
LONGOSTAND MINI
H: 100 cm
B: 107,5 cm
D: 44 cm
VERÐ
188.900 KR.
VERÐ
39.890 KR.
VERÐ
12.890 KR.
SJÁLFBÆR FLOKKUN
SORPS ER KRAFA
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Hofsjökull minnkar enn að flatarmáli
og rúmmáli, enda þótt leysing á jökl-
inum á liðnu sumri hafi mælst heldur
minni en oft áður. Neðan við 1.000 m
hæð á jöklinum
bráðnuðu 1-2 m
vetrarsnævar og
víðast 3-4 m jökul-
íss til viðbótar en
fyrningar söfn-
uðust víðast hvar
ofan við 1.300 m
hæð. Þar leysti
því minna í sumar
en á bættist vet-
urinn 2019-2020.
Þetta sýna mæl-
ingar jarðvísindafólks Veðurstofu Ís-
lands sem fór á jökulinn í rannsókn-
arskyni nú í byrjun október.
Nýr vetrarsnjór er fallinn
Í Hofsjökulsferð nú voru Bergur
Einarsson, Hrafnhildur Hannesdóttir
og Þorsteinn Þorsteinsson sem komu
að jöklinum úr norðri og óku upp úr
Skagafirði. Farið var á vélsleðum
milli mælipunkta á Hofsjökli, lesið af
stikum og skrið jökulsins mælt með
GPS-tæki. Nýr vetrarsnjór er fallinn
um allan jökul, mest um 1,5 metrar á
hábungunni í tæplega 1.800 m hæð.
Þorsteinn segir að yfirleitt sé gott
samhengi milli sumarhita og jökla-
leysingar og séu veðurgögn frá
Hveravöllum gagnleg í þeim saman-
burði. Þar reyndist meðalhiti sumars-
ins, það er tímabilsins frá maí til sept-
ember, 5,1 gráða sem er einni gráðu
lægra en meðaltal sl. áratugar og 1,5
gráðum minna en meðaltalið 2001-
2010 segir hann. „Með hitastig á
Hveravöllum til hliðsjónar kom ekki á
óvart að leysing á jöklinum nú í sum-
ar mældist heldur í minna lagi en að
jafnaði gerist,“ sagði Þorsteinn þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í gær.
Að jafnaði bættist 1,1 m af snjó,
umreiknað í vatn, á Hofsjökul vet-
urinn 2019-2020 og 2 m runnu burt
sem leysingarvatn sl. sumar. Samtals
rýrnaði Hofsjökull því um 0,9 metra á
þessu ári, sem er litlu minni rýrnun
en í meðalári. Hefur jökullinn nú tap-
að nær 15% af rúmmáli sínu frá upp-
hafi afkomumælinganna árið 1988 og
virðist lítið lát á rýrnuninni, þótt hún
hafi á síðustu árum ekki verið jafn ör
og á fyrsta áratug þessarar aldar.
Sporðar jökulsins hörfa stöðugt og
styttist nú í að flatarmálið fari niður
fyrir 800 km2. Jón Eyþórsson veð-
urfræðingur hóf mælingar á stöðu
jökulsporða við Hofsjökul árið 1932
og hefur hann nú alls hörfað um 1.400
m frá þeim tíma, samkvæmt fyrir-
liggjandi gögnum Jöklarannsókna-
félags Íslands.
Múlajökull verður svipminni
„Múlajökull, sem gengur sunnan
úr Hofjökli, norðan við Þjórsárver,
verður smám saman svipminni þegar
hann hörfar á aurunum norður af
Þjórsárverum. Fjöldi smálóna hefur
myndast á milli jökulkamba, sem orð-
ið hafa til undir jöklinum og nú eru
þessi lón tekin að renna saman í
stærri vötn við jaðar jökulsins. Botn
Múlajökuls er lægri en landið framan
hans og má þarna greina fyrstu stig í
myndun stöðuvatns, sem fylla mun
dalinn sem jökullinn hefur grafið þeg-
ar jökullinn hörfar meira. Samkvæmt
útreikningi jöklafræðinga mun vatnið
myndast á þessari öld.“
Hofsjökull heldur áfram að hopa
Rýrnaði um 90 cm milli ára skv. nýrri mælingu Minna undanhald en oft áður Fylgir hita á
Hveravöllum 15 % af rúmmáli jökulsins hafa tapast frá árinu 1988 Nýtt jökullón er að myndast
Ljósmynd/Þorsteinn Þorsteinsson
Flugsýn Horft til norðvesturs að sunnanverðum Hofsjökli. Fremst er Múlajökull, sem er rétt norðan við Þjórsárver.
Fyrir jökulsporðinum eru nú að myndast jökullón sem er upphaf þess að þarna verði stöðuvatn í fyllingu tímans.
Þorsteinn
Þorsteinsson
Verkefnið Svefnbyltingin, leitt af
Ernu Sif Arnardóttur, lektor við Há-
skólann í Reykjavík, hefur fengið vil-
yrði fyrir 2,5 milljarða króna styrk til
fjögurra ára úr Horizon 2020-
rammaáætlun ESB. Íslensku fyrir-
tækin Nox Medical og Sidekick
Health, vísindamenn í Háskólanum í
Reykjavík og samstarfsaðilar í evr-
ópskum háskólum, heilbrigðisstofn-
unum og fyrirtækjum ásamt ástr-
ölskum háskóla koma að málinu. Um
helmingur styrkfjárins verður nýtt-
ur meðal annars til að byggja á Ís-
landi upp gagnagrunn með niður-
stöðum úr svefnmælingum á 30
þúsund manns.
Erna Sif segir að nú eigi að færa
áhersluna í greiningu og meðferð
stefntruflana yfir á daglegt líf fólks,
stuðla að persónubundinni heilbrigð-
isþjónustu. Þátt-
takendur hafi að-
gang að sínum
gögnum í gegnum
notendavæn kerfi
sem hvetja eigi
fólk til lífsstíls-
breytinga.
Í rannsókninni
nú verða notuð
lækningatæki
sem fólk setur á
sig sjálft heima. Með þeim tækjum
er hægt að fylgjast með raunveru-
legum svefni fólks í þrjár nætur.
Áhrif tveggja meðferða við kæfi-
svefni sem miða að breytingum á lífs-
stíl verða könnuð, sem og gildi snjall-
úra við greiningu og meðferð.
„Að baki umsókninni var mikil
vinna og styrkurinn er til fjögurra
ára. Hér í HR munu 25-30 manns
vinna einvörðungu við þessa rann-
sókn en margir fleiri koma að mál-
um. Kæfisvefn og svefnháðar öndun-
artruflanir, sem eru mjög algengar,
eru áherslumál í rannsókninni og út
frá niðurstöðunum er ætlunin að
bæta meðferð og greiningu,“ sagði
Erna Sif í samtali við Morgunblaðið.
Hörð samkeppni um styrki
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR,
segir styrkinn enn eina staðfestingu
á sterkri stöðu skólans í alþjóðlegu
rannsóknastarfi.
„Samkeppnin um svona styrki er
gríðarlega hörð og mikil. Það er því
mikið afrek hjá ungum vísindamanni
að fá styrk í fyrstu tilraun og það
með fullt hús stiga hjá matsnefnd.“
sbs@mbl.is
Ætla að rannsaka kæfisvefn og öndun
Svefnbylting í HR 2,5 milljarða styrkur Niðurstöður
bæti greiningu og meðferð Mikið afrek vísindamanns
Morgunblaðið/Ernir
HR Staðfestir sterka stöðu skólans í alþjóðlegum rannsóknum segir rektor.
Erna Sif
Arnardóttir