Morgunblaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020
Stefán Birnir Sverrisson hjá
Tækniviti segir að stefnt sé að því
að stöðvarnar sem fyrirtækið er
með í pípunum komi upp næsta
sumar eða um haustið. Sigurður
Ástgeirsson, framkvæmdastjóri Ís-
orku, upplýsir að stefnan hafi verið
sett á að koma upp stöðvum á
Blönduósi og í Mosfellsbæ síðast-
liðið sumar. Hins vegar hafi sam-
starfsaðilar þeirra bakkað út úr
verkefninu sökum útbreiðslu kór-
ónuveirunnar og vegna þess að ON
hafi ákveðið að bjóða tímabundið
upp á 40% afslátt af rafmagni og
tímagjaldi í sínum stöðvum. Sá af-
sláttur hafi átt að renna út í byrjun
sumars en hafi verið framlengdur
út þetta ár.
„Við sáum engan rekstrargrund-
völl fyrir stöðvunum á meðan ON
væri með stöðvar á báðum þessum
svæðum þrátt fyrir styrk Orku-
sjóðs,“ segir í skriflegu svari Sig-
urðar.
Samkeppniseftirlitið skoðar
Bendir hann á að Samkeppn-
iseftirirlitið hafi nú hafið formlega
rannsókn á afsláttarkjörum ON,
auk annarra aðgerða fyrirtækisins
á hleðslu- og raforkumarkaði.
Sigurður segir að þrátt fyrir
fyrrnefnt bakslag sé stefnan sett á
að koma stöðvunum upp næsta
sumar. Sé það gert í von um að ON
muni ekki framlengja tilboðið sem
á að standa út þetta ár.
Stórtæk áform ON
ON hefur frá upphafi rafbílavæð-
ingar verið umsvifamest allra fyr-
irtækja í uppsetningu hraðhleðslu-
stöðva hér á landi. Hefur
fyrirtækið uppi áætlanir um enn
frekari uppbyggingu þjónustunnar.
Hefur fyrirtækið hlotið styrki úr
Orkusjóði til að byggja upp 17 nýj-
ar 150 kW hleðslur á 10 staðsetn-
ingum auk fleiri stöðva með 50 og
20 kW hleðslum sem m.a. verða
staðsettar við hótel og gististaði
víða um landið.
Upphaflegar áætlanir ON fólust í
að byggja upp fjórar stöðvar á leið-
inni milli Akureyrar og Reykjavík-
ur í Varmahlíð og Staðarskála og
byggði sú áætlun á samstarfi fyrir-
tækisins við N1. Í kjölfar þess að
síðarnefnda fyrirtækið festi kaup á
Íslenskri orkumiðlun var ljóst að
ekki yrði framhald á samstarfinu
við ON og var þá ákveðið að nýta
styrkinn frá Orkusjóði í að byggja
upp tvær 150 kW hleðslur í Víði-
gerði í stað Staðarskála.
Verða ekki of margar
Morgunblaðið leitaði viðbragða
Sigurðar Inga Friðleifssonar, fram-
kvæmdastjóra Orkuseturs, við
þeim tíðindum að Tesla væri nú við
það að taka í notkun ofurhleðslu-
stöð sína í Staðarskála. Vakna þar
m.a. spurningar um hvort aðrir
bílaframleiðendur muni feta í sömu
spor og hvort það kalli á offjárfest-
ingu innviða í tengslum við rafbíla-
notkun hér á landi.
„Enginn annar bílaframleiðandi
hefur kosið að fara þessa leið og því
er sennilegra að aðrir framleiðend-
ur muni áfram stóla á uppbyggingu
þriðja aðila. Ósennilegt er þó að
það skapist þörf á gríðarlegum
fjölda stöðva á einum stað, t.d. á
leiðinni milli Akureyrar og Reykja-
víkur. Það skýrist helst af því að
bílarnir verða sífellt langdrægari
og hraðhleðslustöðvar geti risið
víða á leiðinni og fjölgað svo ein-
faldlega samhliða fjölgun rafbíla.“
Önnur hugsun
Bendir hann á að þeir sem notist
við rafbíla hugsi sína orkunotkun
með allt öðrum hætti en þeir sem
aka um á benín- eða díselbíl. Hugað
sé að því hvað þurfi mikið rafmagn
til þess að komast leiðar sinnar og
þá skipti ekki öllu máli hvort bætt
sé á rafhlöðuna í Varmahlíð, Víði-
gerði, Blönduósi eða Staðarskála.
Val um staðsetningu sé einfaldlega
tekið á grundvelli þess hvaða stöðv-
ar eru lausar á hverjum tíma. Sig-
urður Ingi bendir einnig á að upp-
bygging háhraðahleðslustöðva feli
ekki í sér eins mikið inngrip eða
fjárfestingu og þegar um bensín-
stöðvar sé að ræða.
„Það er tiltölulega einfalt að
bæta við stöðvum eftir því sem
þörfin eykst. Þá er heldur ekki
endilega nauðsynlegt að byggja
upp sífellt öflugra flutningskerfi
raforku vegna þessara stöðva. Sú
tækni er líka fyrir hendi að stöðv-
arnar búi yfir rafhlöðu sem safnar
inn á sig rafmagni sem svo er skot-
ið inn á bíla þegar þeir koma og
tengjast á viðkomandi stöð.
Tækninni fleygir fram í þessu sem
gerir hlutina sífellt einfaldari.“
Þarfir rafbílaflotans breytast
Átta hraðhleðslustöðvar á teikniborðinu milli Reykjavíkur og Akureyrar Tesla nú þegar með átta
Framkvæmdastjóri Orkuseturs segir litla hættu á of mörgum stöðvum Hræringar á markaðnum
Hleðslustöðvar milli Reykjavíkur og Akureyrar
Fjöldi 50, 150* og 250 kW stöðva
Mosfellsbær
50 kW
150 kW
Borganes
50 kW
150 kW
Staðarskáli
50 kW
250 kW
Víðigerði
150 kW
Blönduós
50 kW
150 kW
Varmahlíð
50 kW
150 kW
Fjöldi hleðslustöðva:
50 kW 150 kW* 250 kW
*Væntanlegar stöðvar
Vegalengdir frá Reykjavík
Reykjavík – Borgarnes 72 km
Reykjavík – Staðarskáli 163 km
Reykjavík – Blönduós 240 km
Reykjavík – Varmahlíð 291 km
Reykjavík – Akureyri 386 km
Vegalengdir milli hleðslustöðva
Borgarnes – Staðarskáli 91 km
Staðarskáli – Blönduós 77 km
Blönduós – Varmahlíð 51 km
Varmahlíð – Akureyri 95 km
Reykjavík
Akureyri
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þrjú fyrirtæki stefna að uppbygg-
ingu háhraðahleðslustöðva á leið-
inni milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst. Hafa þau öll sótt um
og hlotið styrki úr Orkusjóði og
samkvæmt gögnum þaðan má gera
ráð fyrir að stöðvarnar verði fimm
talsins og geti samanlagt annað
átta bifreiðum á hverjum tíma.
Munu þessar stöðvar bætast við
sex aflminni stöðvar sem nú þegar
eru fyrir á þjóðveginum og átta
stöðvar sem Tesla hyggst taka í
notkun í Hrútafirði í næstu viku.
Um uppbyggingu bandaríska bíla-
framleiðandans var fjallað í Við-
skiptaMogganum í gær.
Dreift net á leiðinni
Líkt og meðfylgjandi kort sýnir
er fyrirhuguð uppbygging háhraða-
hleðslustöðvanna fimm í Mos-
fellsbæ, Borgarnesi, Víðigerði, á
Blönduósi og í Varmahlíð. Er það
Orka náttúrunnar sem hyggst reisa
tvær stöðvar í Víðigerði og tvær í
Varmahlíð, Ísorka sem hyggst
reisa sitthvora stöðina í Mosfellsbæ
og á Blönduósi og Tæknivit sem
ætlar að reisa tvær stöðvar í Borg-
arnesi.
Stöðvarnar sem um ræðir verða
150 kW en stöðvarnar sem fyrir eru
á stöðunum sem taldir eru upp hér
að ofan eru 50 kW. Því mun afl
nýju stöðvanna verða þrefalt á við
það sem hingað til hefur verið í
boði fyrir rafbílaeigendur á leiðinni
milli Reykjavíkur og Akureyrar.
Stöðvarnar sem Tesla er nú að taka
í notkun eru hins vegar sér á báti.
Þær eru 250 kW og eru aðeins opn-
ar fyrir Tesla-bifreiðar.
Snjallari lausnir í
greiðslumiðlun á
Íslandi
Fjártæknilausnir Rapyd bjóða þér
upp á snjallari greiðslumiðlun.
Við bjóðum upp á fjölmargar
greiðsluleiðir og virðisaukandi
þjónustur sem henta þínum
rekstri. Við setjum þjónustu
við söluaðila í fyrsta sæti.
Vertu í sambandi
558 8000 | hallo@rapyd.net | rapyd.net/is
Einfaldari
Snjallari
Betri
Leyfðu okkur að
þjónusta þig.
NETKAST 7.- 12. okt.
Outdoor Ultra / Verð 17.995.-
Stærðir: 36-41
LÉTTIR OG VATNSHELDIR
DÖMU KULDASKÓR
FRÍ HEIMSENDING
SKECHERS
SMÁRALIND - KRINGLAN
Vantar þig
pípara?
FINNA.is