Morgunblaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
KÓÐI í VEFVERSLUN
“HREKKUR”
Hrekkjavökutilboð
30%
AFÖLLUMVÖRUM
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Mest eru þetta Bretar, Þjóðverjar
og Svíar sem eru að koma hingað.
Ég held að það sé 171 flug hingað til
Kanaríeyja í vikunni,“ segir Sigvaldi
Kaldalóns, eða Svali eins og hann er
jafnan kallaður. Vísar hann þar til
straums ferðamanna til spænsku
eyjunnar Tenerife. Svali hefur verið
búsettur á eyjunni í rúm tvö ár, en
hann er nýfluttur aftur til Tenerife
eftir að hafa dvalið á Íslandi í sumar.
Var það sökum heimsfaraldurs kór-
ónuveiru, en hann hefur rekið fyrir-
tækið Tenerife-ferðir.
Að sögn Svala var nýverið opnað á
ferðir til eyjunnar, en til að koma í
veg fyrir smit er öllum sem þangað
koma gert að fara í sýnatöku. „Fyrst
var ferðamönnum ekki skylt að láta
taka úr sér sýni. Núna er hins vegar
neikvætt próf orðið skilyrði til að þú
komist inn á eyjuna. Flugfélög og
ferðaþjónustufyrirtæki hafa í mörg-
um tilfellum greitt sýnatökuna fyrir
ferðamennina og það hjálpar til,“
segir Svali.
Fá margar fyrirspurnir
Aðspurður segir hann að ýmsar
takmarkanir séu í gildi en þó þannig
að fólk geti lifað tiltölulega eðlilegu
lífi. „Það er grímuskylda og þú verð-
ur að virða fjarlægðarmörk. Aftur á
móti mega hundrað manns koma
saman á veitingastöðum, en örygg-
isverðir fylgjast með að allt fari vel
og rétt fram,“ segir Svali en tekur
fram að skiptar skoðanir séu meðal
eyjarskeggja um hvort opna eigi
Tenerife að nýju. „Það gengur svo
vel og það eru fá smit þannig að ég
held að íbúum hér sé ekkert endi-
lega vel við að hleypa fólki inn.“
Sjálfur rekur Svali fyrirtækið
Tenerife-ferðir, sem líkt og nafnið
gefur til kynna sérhæfir sig í ferðum
til eyjunnar. Spurður hvort mikill
áhugi sé meðal Íslendinga á að
ferðast til eyjunnar kveður Svali já
við. Hins vegar sé þess beðið að ís-
lensk flugfélög hefji flug þangað að
nýju. „Ég veit ekki hvað flugfélögin
ætla að gera heima. Ég held að þau
séu í biðstöðu enda er dýrt að hefja
flug og þurfa svo að hætta við. Hing-
að til hef ég verið að senda fólk í
gegnum Manchester, en við fáum al-
veg svakalega mikið af fyrir-
spurnum,“ segir Svali sem vonast til
þess að fljótlega geti fleiri Íslend-
ingar komið.
„Ef ástandið helst gott held ég að
hægt verði að hefja flug í lok nóv-
ember. Einhverjir segja hins vegar
að páskarnir séu raunhæfur mögu-
leiki. Fólk þarf að fá ferðakjarkinn
aftur og byrja að lifa með veirunni.“
Erlendum ferðamönnum
fjölgar hratt á Tenerife
Faraldurinn í rénun Mikill áhugi meðal Íslendinga
Ferðamenn Skiptar skoðanir eru meðal íbúa á komu ferðamanna.
Ljósmyndir/Svali
Tenerife Erlendum ferðamönnum hefur fjölgað hratt á Tenerife undanfarið. Myndin er tekin síðdegis í gær.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þriðji fjórðungur ársins reyndist
Íslandsbanka og Arion banka hag-
felldari en fyrri tveir fjórðungar
ársins.
Þannig sneri Íslandsbanki tæp-
lega fjögurra milljarða tapi á fyrri
árshelmingi í dálítinn hagnað með
því að skila jákvæðri afkomu upp á
3,4 milljarða á fjórðungnum. Skiptir
þar miklu að virðisbreyting útlána-
safns bankans var aðeins neikvæð
um 1,1 milljarð en hafði verið 2,4
milljarðar á öðrum fjórðungi.
Hreinar vaxtatekjur jukust um
1,4% á fjórðungnum miðað við sama
fjórðung í fyrra en vaxtamunur
dróst saman og reyndist 2,5% sam-
anborið við 2,6% á ársfjórðungnum
á undan.
Arðsemi eigin fjár á ársgrund-
velli reyndist 7,4%.
Arion banki hagnaðist um tæpa 4
milljarða á fjórðungnum en hagn-
aður bankans á sama fjórðungi í
fyrra nam 761 milljón króna. Hagn-
aður bankans af áframhaldandi
starfsemi var hins vegar betri og
nam tæpum 5 milljörðum. Tap af
rekstri dótturfélagsins Sólbjargs
ehf. var hins vegar neikvæð um
tæpan 1,1 milljarð en það er félagið
eignarhaldsfélagið TravelCo, sem
stofnað var í kjölfar falls Primera
air ehf. og Primera Travel Group
hf. Félagið er til sölu líkt og Valitor
en ekki varð tap af rekstri þess
fyrirtækis á fjórðungnum líkt og
verið hefur síðustu tvö ár og valdið
hefur neikvæðum áhrifum á afkomu
bankans.
Hreinn vaxtamunur var 2,9% og
hækkaði milli ára þrátt fyrir lækk-
andi vexti á markaði.
Neikvæð virðisbreyting útlána-
safns bankans varð meiri en á fyrri
fjórðungi, einkum vegna kórónu-
veirunnar og nam 5,1 milljarði,
samanborið við 1,6 milljarða á öðr-
um fjórðungi.
Arðsemi eigin fjár reyndist 4,7%
á fjórðungnum en sé aðeins horft til
áframhaldandi starfsemi var hún
6,1%.
Rekstrarkostnaðurinn lækkar
Stjórnunarkostnaður Íslands-
banka dróst saman um 7,6% miðað
við sama tímabil í fyrra. Segir í til-
kynningu frá bankanum að það
skýrist af fækkun stöðugilda, hóf-
legum launahækkunum og lækkun
á flestum kostnaðarliðum. Var
kostnaðarhlutfall bankans 46,7% og
lækkaði úr 56,3% frá fyrra ári.
Rekstrarkostnaður Arion banka
lækkaði um 25% miðað við sama
fjórðung fyrra árs. Segir í tilkynn-
ingu frá bankanum að þar ráði
mestu hagræðingaraðgerðir sem
bankinn réðst í fyrir ári. Kostn-
aðarhlutfall Arion banka lækkaði
verulega frá fyrra ári, líkt og í til-
felli Íslandsbanka. Stóð það í 40,2%,
samanborið við 56,2% í lok sama
fjórðungs í fyrra.
Íslandsbanki og Arion auka hagnaðinn
Íslandsbanki snýr tapi í hagnað Arion banki skilar 4 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi
Rekstrarkostnaður beggja stofnana lækkar talsvert Milljarða niðurfærslur útlánasafnanna
Morgunblaðið/ÞÖK
Eftirhreytur Gjaldþrot Primera hefur neikvæð áhrif á afkomu Arion banka.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
segir að líklega muni hann leggja til
harðari sóttvarnaaðgerðir í dag eða á
morgun. Ljóst sé að núverandi árang-
ur sé ekki nægilegur til þess að ekk-
ert verði að gert. Á þriðjudag greind-
ust 86 kórónuveirusmit á landsvísu,
þar af voru 72% í sóttkví. Á Landspít-
ala er 61 sjúklingur með kórónuveir-
una og af þeim eru tveir á gjörgæslu
og einn á öndunarvél. Þá eru 1.086
manns undir eftirliti lækna á Covid-
göngudeild Landspítala, að því er
fram kemur í yfirliti farsóttanefndar
og viðbragðsstjórnar Landspítala.
Einn lést vegna kórónuveirunnar á
síðastliðnum tveimur dögum og hafa
alls 12 látist frá upphafi faraldursins
hér á landi.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn
segir að líklega komi ekki til lögreglu-
rannsóknar vegna hópsmitisins á
Landakotsspítala. Til þess að svo
verði þurfi að liggja fyrir ásetningur
eða stórkostlegt gáleysi.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr-
ar erfðagreiningar, segir að hann
teldi æskilegast að aðgerðir yrðu
hertar fyrir helgi. Hann sagði í Kast-
ljósi í gær að hann vildi loka öllum
verslunum nema matvöruverslunum,
banna íþróttastarf bæði innan- og ut-
anhúss og loka veitingahúsum. Eftir
að til mildra aðgerða var gripið í kjöl-
far hópsmita á skemmtistöðum í lok
september, segir Kári að það sé full-
reynt að grípa ekki til harðra aðgerða
til þess að bregðast við stórum hóp-
smitum. Vegna smitsins á Landa-
kotsspítala verði að hans mati að
grípa til harðra ráðstafana strax.
Hertari aðgerðir
þykja líklegar
Kynna nýjar aðgerðir innan skamms
Kórónu-
veirusmit
H
e
im
ild
: c
o
vi
d
.is
Nýgengi innanlands
27. október:
221,4 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
1.062 eru með virkt
smit og í einangrun
1.667 einstaklingar eru í sóttkví
58 eru á sjúkrahúsi, þar af 1 á gjörgæslu
Nýgengi, landamæri: 27,5
Einn lést
í gær
86 ný inn an lands smit greindust 27. október
12 einstaklingar eru látnir