Morgunblaðið - 29.10.2020, Blaðsíða 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. OKTÓBER 2020
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Talaðu út um hlutina, þannig að
enginn þurfi að efast um tilgang þinn. Leit-
aðu að stærri og betri tækifærum – þau
eru ekki of langt undan.
20. apríl - 20. maí
Naut Alls konar tækifæri til aukinnar
menntunar og ferðalaga eru í spilunum
fyrir komandi ár. Segðu vinum þínum hvað
þig dreymir um.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur gott tækifæri til þess
að skoða samskipti þín við aðra. Stingdu
þér í djúpu laugina! Ekki leysa hlutina illa
af hendi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hláturinn lengir lífið svo það er
nauðsynlegt að hlæja öðru hvoru. Reyndu
að losa þig endanlega við samviskubit
sem þú hefur haft lengi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst að þú þurfir að leiða mál í
tengslum við ástarsamband til lykta. Eitt-
hvað er að brjótast um í þér og nauðsyn
að þú fáir málin á hreint sem fyrst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vegur ástar og rómantíkur er grýtt-
ur í dag. Sýndu umburðarlyndi í umgengni
við aðra. Komdu makanum á óvart.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur milljón hugmyndir. Gefðu
þér tíma til þess að skipuleggja hlutina og
þá muntu ná mun betri árangri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þegar þú hefur ekki efni á
einhverju sem þig langar í skaltu einfald-
lega byrja að safna. Víkkaðu sjóndeild-
arhringinn.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Áætlanir sem lúta að breyt-
ingum á heimilinu eru af hinu góða. Maki
þinn er í góðum málum, fær líklega launa-
hækkun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú veist að þú ert á réttri leið
og gefur ekkert eftir. Farðu vel með sann-
færingarkraftinn sem þú býrð yfir. Sá á
nóg sem sér nægja lætur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hafðu samband við þá sem
skulda þér peninga eða hafa enn ekki skil-
að hlutum sem eru í þinni eigu. Reyndu að
forðast deilur ef þú getur og skiptu þér
ekki af skoðunum annarra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt veraldleg gæði séu nauðsyn-
leg, snýst lífið um fleira en þau. Hvað sam-
keppnina áhrærir er bara best að láta sem
endurnýjuð. Hún segir skemmtilegt
að hugsa til sín þrítugrar og hvað hún
bjó yfir mikilli orku á þeim tíma enda
fannst henni hún þá orðin svo gömul
að hún yrði að drífa sig ægilega áður
en hún yrði fertug. Hún gleðjist þó yf-
ir því að yfir hana hafi færst ögn meiri
ró síðasta áratuginn.
Viðskiptalífið
Karen er af kynslóð sem hefur
sveigjanleikann að leiðarljósi og teng-
ir marga þræði saman í vinnuferl-
inum. Árið 2013 tók Karen nýjum
áskorunum og breytti um starf. „Ég
fékk símtal frá atvinnumiðlun þar
sem verið var að leita að manneskju
fyrir Landssamtök íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ). Þetta var skömmu eftir
hrun og samtökin ekki þau vinsæl-
ustu á þessum tíma. Ég sá samt mörg
tækifæri þarna og ákvað að slá til.
Þetta var fyrsta stóra ráðgjafarverk-
efnið mitt og það ekki af minni gerð-
inni og það tókst mjög vel.“ Karen var
einn skipuleggjenda sameiningar
sig. „Ég losnaði svo ekkert úr fjöl-
miðlunum fyrr en tíu árum síðar,“
segir Karen en hún var í tvö ár á DV
og hluta tímans var hún með umsjón
Helgarblaðs DV. Síðan tóku við fjög-
ur ár í innlendum fréttum á Frétta-
blaðinu og síðan þrjú ár á Stöð 2, síð-
ast sem varafréttastjóri.
„Fyrirfram hefði ég séð fyrir mér
að leita í efnið á menningar- og dæg-
ursíðunum, en þegar til kom og ég fór
að vinna á fjölmiðlum sást fljótt hvar
áhuginn lá. Ég hellti mér af fullum
krafti í innlendar fréttir.“
Karen hafði alltaf í huga að bæta
við sig meistaragráðu, en var ekki
viss í hvaða fagi. Þegar hún var að
verða þrítug, þriggja barna móðir og í
fæðingarorlofi með yngsta barnið,
fannst henni hún hafa svo lítið að gera
að hún skráði sig í nám í lýðheilsuvís-
indum, því hún vildi dýpka þekkingu
sína á heilbrigðismálum. Hún var í
náminu eina önn, en þá kallaði vinnan
og náminu slegið á frest. Hún telur þó
að vel geti farið svo að þau kynni verði
K
aren Dröfn Kjart-
ansdóttir fæddist í
Reykjavík 29. október
1980. Hún ólst upp á
bænum Köldukinn í
Holta- og Landsveit. Þegar hún var
fjögurra ára flutti fjölskyldan að
Efra-Seli í Árnessýslu, síðan á
Stokkseyri, til Hemlu í Vestur-
Landeyjum og til Hvolsvallar. „Pabbi
var alltaf með annan fótinn í búskap
og hinn í sjómennsku. Ég grínast
stundum með það að ég standi á
mörkum nútímavæðingar á Íslandi
þegar allt er að breytast svo hratt.
Búskapur er að breytast og sjávar-
útvegurinn líka og þetta búsetu-
mynstur dregur svolítið dám af því.“
Byrjuðu saman á síðustu öld
Karen útskrifaðist frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni árið 2000 og
hefur eftir það að mestu búið í
Reykjavík og Garðabæ með vetrar-
dvöl í Grindavík.
„Ég útskrifaðist ekki bara sem
stúdent heldur sem heitur Sunnlend-
ingur.“ Karen kynntist eiginmanni
sínum, Hannesi Inga Geirssyni, á
Laugarvatni. „Við Hannes höfum ver-
ið saman frá því ég var í menntaskóla
og hann í Íþróttakennaraháskólanum
á Laugarvatni, byrjuðum sum sé
saman skömmu fyrir aldamót. Hins
vegar er maðurinn minn þriðja kyn-
slóð Garðbæinga og núna börnin okk-
ar sú fjórða.“
Bókmenntafræðingur í fréttum
Eftir Laugarvatn fór Karen í bók-
menntafræði við Háskóla Íslands og
útskrifaðist þaðan árið 2004. Síðan
lauk hún MBA-gráðu við Háskólann
í Reykjavík árið 2016. „Á mennta-
skólaárum mínum sá ég sjálfa mig í
framtíðinni fyrir mér sem mikinn
menningarfrömuð, mögulega rit-
stjóra á Lesbók Morgunblaðsins, en
hlutir fóru aðeins öðruvísi. Verði
Lesbókin endurlífguð veit maður
samt aldrei hvað verður.“
Eftir bókmenntafræðina skráði
Karen sig í fjölmiðlafræði, en í fyrsta
verklega verkefninu hafði DV sam-
band við hana og bauð henni starf
sem hún ákvað að prófa til að sjá
hvort þetta væri vettvangur fyrir
LÍÚ við Samtök fiskvinnslunnar (SF)
og vann að uppbyggingu Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), þar
sem hún starfaði sem samskipta-
stjóri. Hún segir að þessi tími hafi
verið mjög lærdómsríkur og bætt
miklu í reynslupottinn. „Ég var búin
að setja mér nokkur markmið sem ég
vildi ná fyrir fertugt, og eitt af þeim
var að prófa annan starfsvettvang og
hitt að ljúka meistaragráðu og það
hafðist.“
Stjórnmálasamtökin
Eftir eitt ár hjá ráðgjafarfyrirtæk-
inu Aton fékk Karen nýtt verkefni inn
á borð sem hún ákvað að taka. Árið
2018 varð hún framkvæmdastjóri
Samfylkingarinnar. „Það hefur geng-
ið mjög vel og það er bjartur tónn inn-
anborðs í Samfylkingunni. Samfylk-
ingin á svo mörg tækifæri inni ónotuð
og það eru spennandi tímar fram und-
an.“ Þegar hún er spurð hvort alltaf
birti til þar sem hún er, hvort sem um
er að ræða í sjávarútvegi eða stjórn-
Karen Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar – 40 ára
Lífskraftur 2020 Karen á Grímsfjalli á Vatnajökli á töfrastundu. Hún fór í tíu daga ferð á jökulinn í sumar með vin-
konum sínum í útivistarhópnum Snjódrífunum þar sem þær söfnuðu áheitum fyrir krabbameinssjúka.
Óttalaus og leitar lausna
Til hamingju með daginn
30 ára Sigrún ólst upp
á Seltjarnarnesi en hún
býr núna í Reykjavík.
Hún er í fæðingarorlofi
eins og er, en hún er
menntaður þroskaþjálfi
og starfar í fé-
lagsmiðstöðinni Öskju
við Klettaskóla. Helstu áhugamál Sigrún-
ar eru söngur, dans, bakstur og handa-
vinna. Hún er í sönghópnum Lyrika.
Maki: Þórir Bergsson, f. 1988, læknir á
Landspítala.
Börn: Freyja Björg, f. 2016, og Sólveig
Matthildur, f. 2020.
Foreldrar: Sigríður Nanna Egilsdóttir, f.
1966, starfar á leikskóla í Reykjavík, og
Jóhannes Rúnar Jóhannesson, f. 1960.
Hann býr erlendis.
Sigrún Ósk
Jóhannesdóttir
40 ára Ólöf er Vest-
urbæingur í húð og
hár. Hún er líffræð-
ingur og starfar sem
sérfræðingur í lyfja-
skráningum hjá Vistor
hf. Helstu áhugamál
Ólafar eru ferðalög,
útivist og hlaup og einnig hefur hún
gaman af lestri góðra bóka, því að prjóna
og að elda góðan mat.
Maki: Helgi Snær Sigurðsson, f. 1974,
blaðamaður á Morgunblaðinu.
Börn: Ólafur Þór, f. 2006, og Pétur
Bragi, f. 2011. Áður átti Helgi Andreas
Mána, f. 1997.
Foreldrar: Helga Kjaran, f. 1947, kennari
og Ólafur Sigurðsson, f. 1946, verkfræð-
ingur. Þau búa á Seltjarnarnesi.
Ólöf
Ólafsdóttir
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
www.danco.is
Heildsöludreifing
vPappír
vBorðar
vPokar
vBönd
vPakkaskraut
vKort
vSkreytingarefni
vTeyjur
vSellófan
Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Fyrirtæki og verslanir
Heildarlausnir
í umbúðum