Vinnan - 01.05.1966, Side 24

Vinnan - 01.05.1966, Side 24
innan fregn barst út um bæinn að bylting væri í aðsigi og kommúnistar undirbyggju að taka Stjórnarráðið og aðrar opinberar byggingar. Atburður þessi olli því að launalækkunartillagan var dregin til baka og kom aldrei fram síðar. Pyrir 1930 var aðeins lítill vísir að iðnaði á íslandi. En á næsta áratug reis hér upp allmikill verksmiðju- iðnaður í skjóli hátolla og innflutningshafta. Var langmestur hluti hans staðsettur í Reykjavík, en þó nokkur á Akureyri. Með því fjölgaði verkamönnum mjög, og stofnaði ófaglært verkafólk í verksmiðjum sérstakt verkalýðsfélag, „Iðju“, bæði í Reykjavík og Akureyri. Er Iðja í Reykjavík nú eitt af fjölmennustu verkalýðsfélögum á landinu. Telja má að með því hefjist nýr þáttur í íslenzkri verkalýðshreyfingu, þar eð verksmiðjuverkamanna hafði mjög lítið gætt áð- ur. Bílstjórum fjölgaði og mjög, og varð félag þeirra brátt mjög fjölmennt. Þrátt fyrir miklar deilur og sundrung innan verkalýðssamtakanna og hinar erf- iðu aðstæður kreppunnar, óx og dafnaði Alþýðusam- bandið ár frá ári og hin raunverulega þýðing þess í íslenzku þjóðfélagi fór sívaxandi. Á þingi A.S.Í. 1938 stóðu sakir þannig, að þá eru komin 122 félög í Al- þýðusambandið og tala félagsmanna var 15.384. Hafði það aukizt um ca. 10 þúsund félagsmenn á átta árum. Stjórnmálastarf Alþýðusambandsins 1916—1940 Eins og áður er getið var Alþýðusamband íslands ekki einungis tæki verkamanna í kjarabaráttunni heldur og stj órnmálaflokkur á grundvelli jafnaðar- stefnunnar — Alþýðuflokkurinn. Með þátttöku í landkjöri sumarið 1916 kom Al- þýðuflokkurinn í fyrsta sinn fram sem sjálfstæður stjórnmálaflokkur við Alþingiskosningar; vantaði þá aðeins herzlumun til þess að hann kæmi manni að. Við alþingiskosningar þá um haustið bauð flokkurinn fram 3 menn, 1 á Akureyri og 2 í Reykjavík. Náði ann- ar frambjóðandinn þar, Jörundur Brynjólfsson, kosn- ingu, en hinn frambjóðandann, Þorvarð Þorvarðar- son prentsmiðjustjóra, vantaði aðeins 25 atkvæði til að ná kosningu. Má því með sanni segja að hinn nýi flokkur færi vel af stað. Árið 1917 gaf Alþýðusambandið út bækling, þar sem lýst er tilgangi flokksins og jafnframt birt stefnu- skrá hans. Segir þar, að höfuðtilgangur hans sé að gera efnahag landsmanna sem jafnastan, gera fá- tæktina útlæga og koma á svo almennri velmegun, að hvert mannsbarn, sem fæðist hér á landi, hafi tækifæri til að þroska og fullkomna góða meðfædda hæfileika, og koma í veg fyrir að einstakir menn sölsi undir sig auðæfi á kostnað annarra. í stefnuskránni eru lang-mikilvægustu atriðin um stefnuna í efnahags- og fjármálum. Flokkurinn vill afnema alla tolla á aðfluttum vörum, fyrst og fremst sykurtoll, kaffitoll og vörutoll, en beinir skattar skulu lagðir á til að standast útgjöld landsins að svo miklu leyti sem arður af framleiðslu og verzlun, sem rekin sé fyrir hönd þjóðfélagsins, hrökkvi ekki til. Stig- hækkandi tekju- og eignaskattur skal lagður á, þar sem hæfilegur framfærzlueyrir fjölskyldumanna sé dreginn frá. Verðhækkunarskattur skal lagður á lóð- ir og lönd, þar sem verðhækkunin stafar af almenn- um framförum í landinu án tilverknaðar eigenda. Er hugmyndin um þennan skatt byggð á kenningu Henry Georges um jarðrentuna. Landið skal taka að sér einkasölu á ýmsum vörutegundum, svo sem steinolíu, kolum, salti og tóbaki, taka þátt í stórútgerð, stóriðnaði og hafa umráð yfir aðal-peningaverzlun landsins. Efla skal samvinnuhreyfinguna og leggja áherzlu á samstarf bænda og verkamanna. Stefnuskrá þessi er í flestum atriðum sniðin eftir stefnuskrá jafnaðarmanna á Norðurlöndum, þó með tilliti til íslenzkra staðhátta og stjórnmálaástands. Stefnt er að samvinnu við Framsóknarflokkinn, sem þá var nýstofnaður. í skýringu við stefnuskrána kem- ur það greinilega í ljós, hversu gott forystumenn Alþýðusambandsins hyggja til samvinnu við Fram- sókn. Þar segir að samvinnuhreyfingin hafi í mörg ár verið eina ljósið, sem lýst hafi í náttmyrkri fram- faraleysisins hér á landi. Þekking á eðli og gagnsemi samvinnufélagsskaparins sé enn skammt á veg komin nema máske í einstökum héruðum landsins. Leggja beri áherzlu á að útbreiða þekkingu á samvinnumál- um og verja skuli fé til þeirrar starfsemi. Forystumennirnir vonast auðsjáanlega eftir því að geta haft mikla samstöðu með samvinnuhreyfing- unni, bæði á sviði stjórnmála og efnahagsmála, enda leggja þeir mikla áherzlu á, að alþýðan við sjó og í sveitum eigi samleið og að ein alþýðustétt megi ekki láta egna sig upp á móti annarri. Enginn vafi er á því að Jónas Jónsson hefir haft mikil áhrif á mótun stefnuskrárinnar í samvinnu- málum. í greininni „Ræktun lands og lýðs“, er hann ritar árið 1916, kemur greinilega í ljós, að hann álít- ur að verkamenn og samvinnumenn geti fylgzt að í fjölmörgum málum, þótt honum sé það og fullkom- lega ljóst, að ekki geti farið hjá því að ágreiningur verði í mikilvægum málum, enda varð sú raunin á að á ýmsu gekk um sambúðina. Á árabilinu 1916—1927 átti Alþýðuflokkurinn lengst af einn fulltrúa á Alþingi og hafði þá raunar enga að- stöðu til að hafa áhrif á löggjöfina nema með stuðn- ingi þingmanna úr öðrum stjórnmálaflokkum, og kom þá Framsóknarflokkurinn helzt til greina. Nokkuð vannst þó á á þessum árum, t. d. lög um slysatrygg- ingar, er samþykkt voru á Alþingi 1925. Þau voru að vísu harla ófullkomin, en þó spor í áttina. Vafa- laust hafði það mikil áhrif til stuðnings við málstað flokksins, að hann hafði mikinn fjölda kjósenda, enda þótt hann ætti fáa fulltrúa á Alþingi vegna hinn- ar ranglátu kjördæmaskipunar. Mikilvægasta pólitíska krafa Alþýðuflokksins um þessar mundir var krafan um gagngera breytingu á kjördæmaskipuninni, er ítrekuð var á þingum A.S.Í. æ ofan í æ. Framsókn- arflokkurinn, er hafði langmestan hag af þáverandi kjördæmaskipun, var í þessu máli harðasti andstæð- ingur Alþýðuflokksins. Kjarabarátta Alþýðusam- bandsfélaganna var og mörgum samvinnumönn- um, einkum bændum, hinn mesti þyrnir í augum, þar eð þeir töldu — auðvitað réttilega — að bætt kjör verkamanna við sjávarsíðuna myndu draga fólk úr sveitum og e. t. v. valda landauðn á vissum svæðum. Þessi tvö mál, kjördæmamálið og kjaramálin, voru lang-hættulegustu deilumálin, enda hefur Fram-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Vinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.