Vinnan - 01.05.1966, Blaðsíða 25

Vinnan - 01.05.1966, Blaðsíða 25
Vi tnnan 23 sóknarflokkurinn bæði fyrr og síðar oftast haft sam- stöðu með Sjálfstæðisflokknum í kjaramálum. Árið 1927 fékk Alþýðuflokkurinn 5 fulltrúa á Al- þingi og fékk þar með oddaaðstöðu. Sneri þá Fram- sóknarflokkurinn sér til stjórnar Alþýðusambandsins og spurðist fyrir um afstöðu hennar til ríkisstjórnar Framsóknar, ef mynduð yrði. Lofaði sambandsstjórnin hlutleysi um óákveðinn tíma en setti engin skilyrði. Taldi forseti Alþýðusambandsins, Jón Baldvinsson, aðstöðu flokksins góða til þess að geta fengið meiri áhrif á löggjöfina en áður; en þó lýsti hann því yfir, að Framsóknarflokkurinn væri i stefnu sinni andvígur Alþýðusambandinu í öllu, sem verulegu máli skipti. Á árabilinu 1927—1931 sat Framsókn að völdum með hlutleysi Alþýðuflokksins. Á því tímabili kom Alþýðu- flokkurinn ýmsum lögum gegn um þingið. Merkust þeirra voru lögin um hvíldartíma togaraháseta, en með þeim var hvíldartími háseta lengdur úr 6 í 8 tíma á sólarhring. Lög um verkamannabústaði 1929 voru og mikilvæg. Ennfremur voru sett ný ákvæði um kosningarrétt, þar sem kosningaraldur var mið- aður við 21 árs aldur, og ákvæði um, að þeir sem skuld- uðu sveitarsjóði skyldu halda kosningarrétti. Annars gekk Framsóknarflokkurinn furðu skammt til móts við Alþýðuflokkinn á þessu tímabili, og döguðu því mörg mikilvæg frumvörp hans uppi þing eftir þing, enda magnaðist óánægja innan Alþýðusambandsins með hlutleysið gagnvart Framsóknarstjórninni, og átti sú óánægja sinn þátt í sundrung þeirri, er varð innan verkalýðshreyfingarinnar á þessum árum. Fram til 1934 blés ekki byrlega fyrir Alþýðuflokknum, bæði vegna hinnar miklu kreppu og vegna deilunnar inn- an verkalýðshreyfingarinnar. En á því tímabili gat flokkurinn i samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn fengið því framgengt að kjördæmaskipuninni var breytt. Það gerðist með stjórnarskrárbreytingunni 1933. Þegar kosið var eftir hinum nýju kosningalögum vorið 1934, hlaut Alþýðuflokkurinn 10 þingsæti og tvöfaldaði þar með þingmannatölu sína. Eftir þær kosningar mynd- aði hann stjórn með Framsóknarflokknum, og var Haraldur Guðmundsson fyrsti ráðherra hans. Var þá gerður málefnasamningur milli flokkanna og var höfuðkrafa Alþýðuflokksmanna sú, að sett yrðu lög um alþýðutryggingar. Náði sú krafa fram að ganga og mun vera merkasti sigur, sem Alþýðusambandið vann á sviði stjórnmála meðan það var stjórnmála- flokkur. Breyting var og gerð á fátækralöggjöfinni, er horfði til mikilla réttarbóta. Á tímabilinu 1934—1940 voru efnahagsmálin efst á baugi, og var einatt við mikla örðugleika að etja. Ýms lög voru þó sett, er til hagsbóta horfðu fyrir vinnandi fólk. Deilur innan verkalýðshreyfingarinnar Þótt það væri hagkvæmt í fyrstu að Alþýðusam- bandið væri bæði verkalýðssamtök og stjórnmálaflokk- ur, komu snemma fram gallar á þessu skipulagi. Innan sjálfra verkalýðsfélaganna kom þó ekki nein veruleg andstaða fram í fyrstu. Þótt margir verkamenn hefðu þá litla hugmynd um sósíalisma, fylgdu þeir jafnað- armönnum vegna stefnu þeirra í kjaramálum, enda voru þá tiltölulega fá félög í Alþýðusambandinu. Eftir byltinguna í Rússlandi 1917 klofnaði hin al- Hannibal Valdimarsson setur 25. þing A.S.f. 1956. þjóðlega verkalýðshreyfing og kommúnistar stofnuðu 3. alþjóðasambandið. Gerðust þeir þegar mjög um- svifamiklir og barst hreyfing þeirra á skömmum tíma víðsvegar um heim. Hér á landi hallaðist brátt nokk- ur hópur manna að stefnu þeirra, og lentu þeir þá í andstöðu við meirihluta forustuliðs Alþýðusambands- ins, er fylgdi stefnu jafnaðarmanna. í þeim hóp er hallaðist að kommúnisma var Ólafur Friðriksson, er var einn af helztu áhrifamönnum í forustuliðinu. Sá ágreiningur olli þó ekki miklum deilum i bráð, enda hneygðist Ólafur brátt aftur að stefnu jafnaðarmanna og gerðist andvígur kommúnistum. En þegar frá leið og Alþýðusambandinu óx fiskur um hrygg, fjölgaði þeim félagsmönnum, er ekki vildu fylgja stefnu- skrá jafnaðarmanna en vildu þó starfa í Alþýðusam- bandinu og voru í verkalýðsfélögum eða jafnaðar- mannafélögum. Þóttust þeir órétti beittir vegna þess ákvæðis í lögum sambandsins, að jafnaðarmenn einir mættu vera fulltrúar þess á Alþingi, í bæja- og sveita- stjórnum og á þingi A.S.Í. Á Alþýðusambandsþingi 1926 lét forseti sambandsins, Jón Baldvinsson, í ljós efa um að heppilegt væri, að yfirstjórn stjórnmála og verkalýðsmála væri hin sama og benti á þá stað- reynd, að í nágrannalöndum okkar væri hún að- greind. í því sambandi minntist hann á hin ný- stofnuðu fjórðungssambönd á Norður- og Austur- landi og taldi vel til fallið að þau sinntu aðallega verkalýðsmálum og áleit, að þegar þau væru komin um allt land, myndu þau hvert á sínu svæði taka að sér verkalýðsmálin. Þannig myndi komast á nokkur aðgreining stjórnar verkalýðsmála og stjórnmála. Nokkur félög innan fjórðungssambandanna voru þá ekki komin í Alþýðusambandið vegna stjórnmálaá- greinings.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.