Vinnan - 01.05.1966, Blaðsíða 44
fellum, kaupið hækki a. m. k. í
kr. 3.70 á klst. og vinna verði felld
niður á laugardögum yfir sumar-
mánuðina.
Samningar tókust 4. marz. Kaup
hækkaði í kr. 3.80. Vinnuvikan
varð 48 stundir með greiddum
kaffitímum, svo að raunverulega
varð hún 43 stundir. Þá fengust
líka 12 veikindadagar viðurkennd-
ir.
Þetta var tvímælalaust stærsti
sigurinn, sem félagið hafði unnið
fram til þessa.
Margt hefur félagið aðhafzt til
að treysta og vernda réttindi raf-
virkj astéttarinnar og til bættrar
menntunaraðstöðu, og er máske
ekki minna um það vert, en sjálfa
kjarabaráttuna í þrengri merkingu.
Að öðru leyti vísast um sögu
félagsins til Tímarits rafvirkja og
annarra prentaðra heimilda.
Félagatala er nú um 450.
Núverandi félagsstjórn skipa:
Óskar Hallgrímsson, formaður,
Magnús Geirsson, Sigurður Sigur-
jónsson, Kristinn K. Ólafsson og
Sveinn Lýðsson.
Félag garðyrkjumanna
Félagið er stofnað 30. maí árið
1943 í Baðstofu iðnaðarmanna í
Reykjavík.
Fyrsti formaður þess var Hauk-
ur Kristófersson.
Með honum í fyrstu stjórn voru:
Ásgeir Ásgeirsson, ritari, Jónas Sig-
urður Jónsson, gjaldkeri.
Aðalhvatamenn að stofnun fé-
lagsins voru Agnar Gunnlaugsson,
Haukur Kristófersson
---------- winnan -------------
Bjarnhéðinn Hallgrímsson, Hafliði
Jónsson og Jónas Sigurður Jónsson,
allir til heimilis í Reykjavík. Enn-
fremur Sigurður P. Guðlaugsson,
Bíldsfelli, Grafningi.
Stofnfund sátu alls 17 menn.
Lengst hefur verið formaður
Agnar Gunnlaugsson.
Félagssvæðið er landið allt.
Félagið gekk í Alþýðusambandið
28. júní 1943.
Eitt höfuðbaráttumál Félags
garðyrkjumanna, auk hinna al-
mennu hagsmunamála, hefur verið
að fá garðyrkju lögfesta sem iðn-
grein, en iðnaðarmannasamtökin í
landinu hafa allt til þessa verið
því andsnúin.
Af þessum sökum hefur mál þetta
ekki náð fram að ganga. En á
seinasta Alþingi örlaði á nokkrum
Agnar Gunnlaugsson
skilningi á þessu baráttumáli fé-
lagsins. Vonir standa því til, að nú
muni rætast á næstunni úr þessu
máli.
Einn merkasti atburður í sögu
félagsins er sá, að á seinasta ári
festi félagið kaup á efstu hæð húss-
ins að Óðinsgötu 7 ásamt með 7
öðrum verkalýðsfélögum. Fær fé-
lagið með því stórbætta aðstöðu
fyrir alla starfsemi sína.
Sá félagsmaður, sem lengst hef-
ur átt sæti í stjórn félagsins, er
Agnar Gunnlaugsson, eða alls í
14 ár. Hann hefur unnið mikið og
óeigingjarnt starf í þágu félagsins.
Eru honum því færðar sérstakar
þakkir fyrir störfin með óskum um,
að félagið megi njóta starfskrafta
hans enn um langt skeið.
Steingrímur Benediktsson
Félagsmenn eru nú nær 50.
Núverandi formaður er Stein-
grimur Benediktsson. Aðrir í stjórn
eru: Þórður Þórðarson, Guðjón
Bjarnfreðsson og Theódór Hall-
dórsson.
Mjólkurfræðingafálag íslands
Félagið er stofnað 19. nóvember
árið 1945 í skrifstofu Alþýðusam-
bands íslands.
Fyrsti formaður félagsins var
Sigurður Runólfsson.
Með honum voru í fyrstu stjórn
Malling Andreasson á Selfossi og
Skúli Bergstað, sem nú (1966) er
látinn.
Auk fyrrnefndra forustumanna
Þórarinn Sigmundsson