Vinnan - 01.05.1966, Page 51

Vinnan - 01.05.1966, Page 51
inntin Sverrir Gunnarsson Þegar Baldur er stofnaður, er dagkaup verkamanna 3 krónur fyr- ir 12—14 stunda vinnu. Félagið lætur kaupgjaldsmálin liggja um sinn, ræðir um bjargræð- is- og mannúðarmál, sjúkra- og slysatryggingar og stofnar sjúkra- sjóð. Þvínæst tekur það fyrir stytt- ingu vinnudagsins og fær að lok- um viðurkenndan 10 tíma vinnu- dag. Vorið 1921 gera atvinnurekendur tilraun til að lækka kaupið. Þeirri árás er hrundið. En ekki fæst þó nema munnlegur samningur. „Orð eru orð — og menn eru menn“, sagði aðalatvinnurekandinn. En hvort tveggja brást. Samningurinn var svikinn. Atvinnurekendur kváð- ust mundu hækka eða lækka kaup- ið eins og þeim sýndist, án þess að spyrja verkalýðsfélagið um slíkt. Tuttugu og fimm verkamenn voru settir á svartan lista. Skyldu þeir hvergi fá vinnu. Neyddust sumir verkamenn til að skrifa undir skuldbindingu um að segja sig úr félaginu, til þess að fá vinnu. Heilsutæpur verkamaður sendi úr- sögn og félagsgjaldið. Bað um, að úrsögnin yrði lesin á fundi, en jafnframt bað hann formann að strika ekki nafn sitt úr bókum fé- lagsins. Þá var hætt að lýsa úr- sögnum á félagsfundum. Var fé- lagið þannig orðið einskonar leyni- félag. Félagið háði langa og harða baráttu fyrir tilveru sinni. Árið 1926 lagði það til höfuðorustu og sigraði. Atvinnurekendur höfðu auglýst mikla kauplækkun. Þá hófst eitt harðasta verkfall, sem íslenzkur verkalýður hafði háð fram að þeim tíma. Því lauk þann- ig, að nokkur kauphækkun fékkst fram, skriflegur samningur var gerður, og félagið þannig að fullu viðurkennt, sem samningsaðili. Sú barátta hafði tekið 10 ár. Nú var Baldur orðið sterkt félag. Samt varð það hvað eftir annað að beita verkfallsvopninu. Þannig fór 1930, 1931, 1932 og 1934. En eftir það fór að kyrrast um. Félagið var búið að kenna atvinnurekendum betri siði. Eins og fyrr getur, komu konurn- ar í félagið 1924. Næsta ár ósk- uðu bílstjórar að mynda deild í fé- laginu. Stúlkur á klæðskeraverk- stæðum mynduðu deildina Dyngju árið 1941. Síðar á sama ári óskuðu stúlkur á sjúkrahúsinu og elliheim- ilinu að mynda deild í Baldri. Var þá stofnuð starfsstúlknadeildin Sjöfn, og árið 1945 gengu neta- og nótavinnumenn í félagið og höfðu sína sérstöku deild, er nefndist Dröfn. Félagið varð þannig samtaka- heild flestra starfsstétta í bænum og gerði, auk hinna almennu kjara- samninga, jafnframt samninga fyrir allar deildirnar. Fjöldi framfara- og nytjamála bæjarfélagsins hafa verið reifuð á Baldursfundum og ýtt þaðan úr vör. Meðal slíkra mála má nefna stofnun útgerðarfélaganna, Sam- vinnufélags ísfirðinga og Njarðar. Myndarlegt átak gerði félagið, er það hafði forustu um byggingu Al- þýðuhúss ísfirðinga. Baldur hafði forustu um stofn- un Alþýðusambands Vestfjarða, og ýmis verkalýðsfélög beitti það sér fyrir að stofna. Má þar nefna Verkalýðsfélög Hnífsdælinga, Bol- víkinga, Patreksfjarðar, Álftfirð- inga, Súganda á Suðureyri, Skjöld á Flateyri og Verkalýðsfélag Sléttu- hrepps. Þess er rétt að geta hér, að árið 1906 var stofnað verkamannafélag á ísafirði. Formaður þess var Ólaf- ur Ólafsson. Því var fljótlega á kné komið af kaupmannavaldinu. Félagsmenn eru nú um 370 að tölu. Núverandi stjórn Baldurs skipa þessir menn: Sverrir Guðmundsson, formaður, Pétur Pétursson, Guðmundur Eð- varðsson, Jón Magnússon, Sigurð- ur Jóhannsson. Valgeir Guðbjartsson Verkamannafélagið „Árvakur", Eskifirði Félagið er stofnað haustið 1916. Fyrsti formaður þess var Val- geir Guðbjartsson. Aðrir í stjórn voru: Jón Kr. Aust- fjörð, Þórarinn Jóhannesson, Bjarni Kemp og Helgi Þorláksson. Skömmu eftir aldamótin stofnaði Jón Kr. Jónsson, sem verið hafði í Noregi, verkalýðsfélag á Eskifirði, mætti það mikilli mótstöðu kaup- manna og varð ekki langlíft. Einn þeirra, sem á fyrstu árum „Árvakurs“ var formaður félags- ins, er Richard Beck prófessor. Lengst allra hefur verið formað- ur félagsins Arnfinnur Jónsson skólastjóri, og á hann þar mikla og góða sögu. Félagssvæðið er Eskifjarðar- hreppur. Félagið gekk í Alþýðusamband íslands 11. apríl 1917. Árvakur hefur lengstum látið flest framfaramál Eskfirðinga til sín taka. Árið 1917 stofnaði félagið kaup- félag, hlaut það nafnið Kaupfélag verkamanna. Starfaði það í tvö ár. Þá átti félagið þátt í stofnun togarafélagsins Andra, og árið 1932 hafði félagið forgöngu um stofnun Samvinnufélagsins „Kakali“, er gerði út þrjá 17 tonna báta og einn 48 tonna. Félagið bar nokkrum sinnum fram lista við hreppsnefndarkosn- ingar og tvisvar lýsti félagið yfir stuðningi við pólitíska flokka í al-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.