Vinnan - 01.05.1966, Qupperneq 62
60
U
innan
Félagssvæðið nær yfir Súðavík-
urhrepp.
í Alþýðusambandið gekk félag-
ið strax við stofnun þess, árið 1928.
— Var félaginu boðin stórgjöf af
einum atvinnurekanda, ef það
gengi ekki í Alþýðusambandið, en
þvi höfnuðu verkamenn.
Félagið háði mjög harða baráttu
fyrir viðurkenningu sem samnings-
aðili. Kostaði það hin hörðustu
verkfallsátök. En árið 1930 náði
félagið samningum og fullri viður-
kenningu.
Nokkrum sinnum eftir það varð
félagið þó að knýja kröfur sínar
fram með verkfalli. Þegar félagið
var stofnað, var kaup verkafólks
í Súðavík um 20% lægra en á ísa-
firði. En nú er launajafnréttiskröf-
unni fyrir löngu fullnægt.
Félagið hefur jafnan látið flest
framfaramál Súðavíkurhrepps —
ekki sízt atvinnumálin — til sín
taka. Árið 1930 kom félagið upp
samkomuhúsi, sem lengi bætti úr
brýnni þörf fyrir skólahúsnæði,
húsnæði til guðsþjónustugjörðar í
kauptúninu og til hverskonar fé-
lagsstarfsemi.
Núverandi forseti Alþýðusam-
bandsins, Hannibal Valdimarsson,
var formaður félagsins árin 1929
og 1930, og var það upphaf að
störfum hans í verkalýðshreyfing-
unni.
Félagsmenn eru nú um 90.
Stjórn félagsins skipa nú Bjarni
Guðnason formaður, Friðbert Hall-
dórsson, Jörundur Engilbertsson,
Sigurður Benjamínsson, Albert
Kristjánsson, Guðmundur Guðna-
son og Edward M. Scott.
Verkalýðsfélag Austur Húnvetn-
inga
Félagið er stofnað 2. október ár-
ið 1930 á Blönduósi.
Fyrsti formaður þess var Jón
Einarsson verkamaður.
Með honum voru í stjórninni
Halldór Albertsson verzlunarmað-
ur ritari og Páll Geirmundsson
veitingamaður gjaldkeri.
Aðalhvatamenn að stofnun fé-
lagsins voru þeir, sem í fyrstu
stjórnina völdust. Einnig aðstoð-
aði Einar Olgeirsson alþingismað-
ur við stofnunina og samdi fyrstu
lög þess, sem enn eru í gildi í
meginatriðum.
Guðmundur Theódórsson
Lengst hefur verið formaður Jón
Einarsson, eða um 20 ár.
Félagssvæðið er frá sýslumörkum
Vestur- og Austur-Húnavatnssýslu
að lögsagnarumdæmi Höfðakaup-
staðar.
Félagið gekk í Alþýðusambandið
á fyrsta starfsári sínu 1931.
Jón Einarsson gefur eftirfarandi
upplýsingar:
Byrjunarárin voru erfið, sem
eðlilegt var — lítill skilningur hjá
atvinnurekendum á slíku nýmæli
sem stofnun verkalýðsfélags — og
verkamenn ófélagsvanir.
Aðalatvinnurekandinn, sem
verkalýðsfélagið þurfti að semja
við, var Kaupfélag Húnvetninga.
Hafði það afgreiðslu skipa með
höndum.
Minnisstæð er mörgum hin langa
deila, sem stóð um 11 vikur.
Eftir margítrekaðar tilraunir til
samkomulags, slitnaði upp úr
samningum milli félagsins og K.H.
Lýsti þá félagið yfir verkfalli.
Svar kaupfélagsins var að loka
reikningum verkalýðsfélagsmanna.
Verzlunarmátinn var í þá tíð
skuldaverzlun jafnt hjá verka-
mönnum sem öðrum. Flestallir
verkamenn skulduðu eitthvað við
áramót, þó misjafnlega. Enginn
mun þó hafa skuldað neitt verulega.
Þess vegna naumast ástæða til að
beita slíkum fantabrögðum.
Samheldni innanfélags í deil-
unni var með ágætum allt til
deiluloka.
Deiluefnið var tvíþætt: Um kaup
og kjör við skipaafgreiðslu hjá K.
H. — og þá ekki síður um hvort
verkamenn hefðu rétt til að verð-
leggja söluvöru sína, vinnuaflið.
Deila þessi leystist á mjög við-
unandi hátt, með sigri verkalýðs-
félagsins. í deilunni gekk Alþýðu-
samband íslands fram fyrir skjöldu
með samtakamætti sínum og ó-
brigðulu starfi. Ekki mun heldur
gleymast hin skörulega efnahags-
aðstoð, sem Verkalýðsfélagi Austur-
Húnvetninga var veitt með pen-
ingasendingum frá verkalýðsfé-
lögum víðsvegar að af landinu. Sú
hjálp mun óefað hafa átt veruleg-
an þátt í, að félaginu entist orka
og trú á sigur, allt til þess, er sigur
vannst.
Félagsmenn eru nú um 130.
Núverandi stjórn er skipuð þess-
um mönnum:
Guðmundur Theódórsson, form.,
Jón Stefánsson, Elenborg Guð-
mundsdóttir og Friðrik Indriðason.
VerkalýðsfélagiS Hvöt,
Hvammstanga
Hvöt er stofnuð 16. janúar árið
1926 í Þorsteinshúsi á Hvamms-
tanga.
Fyrsti formaður félagsins var
Eiríkur Hjartarson. Með honum
voru í fyrstu stjórninni Guðmund-
ur Þ. Sigurgeirsson nú á Drangs-
nesi og Magnús Þorleifsson.
Eiríkur Hjartarson beitti sér fyrir
stofnun félagsins.
Lengst allra hefur verið formað-
ur félagsins Björn Kr. Guðmunds-
son, eða alls í 17 ár.
í lögum félagsins er Vestur-