Vinnan - 01.05.1966, Page 63

Vinnan - 01.05.1966, Page 63
u uinan 61 Húnavatnssýsla ákveðin félags- svæði Verkalýðsfélagsins Hvatar. í Alþýðusambandið gekk félag- ið árið 1931. Félagið varð árum saman að heyja baráttu fyrir tilveru sinni. Haustið 1931 varð félagið að hefja verkfall til að knýja fram samn- inga. Að verkfallslokum náðust samningar, og hlaut félagið þar með loks viðurkenningu á samn- ingsrétti sínum vegna meðlima sinna. I félaginu eru nú um 80 félagar. Núverandi félagsstjórn skipa þessir menn: Sigurður Gestsson, form., Sigurð- ur Eiríksson, Jakob Bjarnason, Baldur Ingvarsson, Gústav Hall- dórsson og Sigurður Sigurðsson. Eiríkur Hjartarson Sigurður Gestsson Verkakvennafélagið Snót, Vestmannaeyjum Félagið er stofnað 6. nóvember árið 1932 að Breiðabliki í Vest- mannaeyjum. Fyrsti formaður þess var Kristín Ólafsdóttir. Ásamt henni voru í fyrstu stjórn Margrét Sigurþórs- dóttir, Oddný Erlendsdóttir, Vil- borg Þórðardóttir og Sigríður Sig- urðardóttir. Stofnendurnir voru þessar fyrr- nefndu konur, er skipuðu fyrstu stjórn félagsins. Auk þess gengu 15 aðrar konur í félagið á stofn- fundinum. Lengst hefur verið formaður Guðmunda Gunnarsdóttir. Félagssvæði er Vestmannaeyjar. í Alþýðusambandið gekk félag- ið í nóvember 1932. Sundrung hafði ríkt meðal verkakvenna í Vestmannaeyjum, og um tíma voru þær skiptar í tvö stéttarfélög. Verkakvennafélag Vestmannaeyja var miklu fjöl- mennara en Snót, en fékk ekki inn- göngu í Alþýðusambandið, þar eð Snót var þar fyrir. Haustið 1937, þann 25. október, sameinast þessi tvö félög. Tildrög þessarar sameiningar voru hin brýna nauðsyn verkakvenna á stéttarlegri einingu í skjóli Al- þýðusambands íslands. Eflist nú starfsemin mjög, og kjarabaráttan þó mest. En það er við ramman reip að draga, og enn líða rúm 4 ár, eða þar til snemma árs 1942, að tekst að ná raunverulegum samningum við nokkra af atvinnurekendum í Eyjum. Svo þungur var róðurinn hjá verkakonum að fá samtök sín viðurkennd af atvinnurekendum. En sóknin hélt áfram. Haustið 1947 háði félagið harða kaupgjalds- baráttu. Vinnustöðvun var boðuð, og tókust þá samningar við alla atvinnurekendur á staðnum. Sá atburður markaði tímamót í sögu félagsins. Snemma árs 1961 háði Snót 5 vikna verkfall við hlið Verkalýðs- félags Vestmannaeyja. í þeim erf- iðu átökum nutu félögin öflugs stuðnings Alþýðusambandsins og fjölmargra verkalýðsfélaga úti um land. Var það ekki sízt þeim stuðn- ingi að þakka, að þau komu sterk út úr verkfallinu og náðu fram verulegum kjarabótum. Auk hinnar beinu kjarabaráttu Kristín Ólafsdóttir Guðmunda Gunnarsdóttir hefur Snót jafnan stutt eftir megni almenn framfara- og menningar- mál á félagssvæðinu. Má þar t. d. nefna forystu félagsins um stofnun barnaheimilis, er tók til starfa vor- ið 1946. Forsjá þess hafði lengst af Margrét Sigurþórsdóttir Frumkvæði að stofnun Mæðra- styrksnefndar hafði félagið einn- ig árið 1946. Hefur sú nefnd jafn- an starfað síðan og unnið mikið og þarft verk. Þá hefur Snót lengi verið aðili að Sambandi sunn- lenzkra kvenna, og hefur ávallt lát- ið kvenréttindamálin til sín taka. Nú eru í Snót hátt á þriðja hundrað félagskonur. Stjórnina skipa nú: Guðmunda Gunnarsdóttir formaður, Vilborg Sigurðardóttir, Kristín Pétursdótt- ir, Lóa Sigurðardóttir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Vinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.