Vinnan - 01.05.1966, Síða 97
Líney Kristinsdóttir
Verkakvennafélagið Báran, Hofsósi
Félagið er stofnað 14. febrúar
árið 1937 á Hofsósi.
Fyrsti formaður félagsins var
Líney Kristinsdóttir.
Með henni voru í stjórninni Björg
Guðmundsdóttir gjaldkeri og Jón-
ína Hermannsdóttir ritari.
Stofnendur félagsins voru 15 kon-
ur á Hofsósi.
Lengst hefur verið formaður
Líney Kristinsdóttir, eða í full 14
ár.
Samkvæmt lögum félagsins er
félagssvæðið Hofsóshreppur.
í Alþýðusambandið gekk félagið
18. marz árið 1944.
Tilgangur félagsins, eins og
annara verkakvennafélaga, er og
hefur alltaf verið sá að styðja og
efla hag verkakvenna með sam-
stöðu í kaupgjaldsmálum og að
ná viðunandi vinnuskilyrðum, og
má segja, að all vel hafi tekizt að
skapa bætt vinnuskilyrði.
Erfitt var þó oft um vik, eink-
um fyrstu árin, en félagið tók
fljótt framförum og náði vaxandi
árangri undir styrkri stjórn Lín-
eyjar Kristinsdóttur. — Með burt-
för hennar frá Hofsósi missti fé-
lagið ötulan formann og einlægan
vin. Henni fórst hvorttveggja vel
úr hendi, starfið útávið, og eins að
ganga svo frá málum innan félags,
að allir mættu vel við una.
Telja má, að sá árangur, sem
náðist, er hægt var að fá því fram-
gengt, að konur væru fluttar að og
frá vinnustað, væri með meirihátt-
ar vinningum okkar, þar sem frysti-
Vi
inncin
95
húsið er staðsett dálítið út úr, enda
ekki um aðra vinnu að ræða en
fiskvinnu.
Sú stjórn, sem starfaði aðallega
að þeim málum, sat að störfum
1960 og 1961, og komst þetta ekki á
fyrr en sumarið 1961. Formaður
þeirrar stjórnar var Margrét Guð-
mundsdóttir.
Hvað kaupgjaldsmálin snertir nú
hin síðari ár, hefur félagið haft
samvinnu við Verkakvennafélagið
Ölduna á Sauðárkróki, þar til á
síðastliðnu sumri, er nýir samn-
ingar voru gerðir á vegum Alþýðu-
sambands Norðurlands.
Aðal viðsemjandi félagsins er
Kaupfélag Austur-Skagfirðinga.
Verður ekki annað sagt með réttu,
en að kaupfélagsstjórinn hafi jafn-
an sýnt félaginu velvild, og góðan
Margrét Þorgrímsdóttir
skilning á málum þess. Hefur hann
og oftast komið á móts við kröfur
þess eftir því sem geta og ástæður
hafa leyft.
Verkakvennafélagið Báran hefur
talið sér skylt að leggja ýmsum
menningarmálum þorpsins lið eft-
ir getu. Það er meðeigandi í félags-
heimili, sem verið er að byggja.
Einnig hefur félagið lagt drjúgan
skerf til nýreistrar kirkju, og ýmis-
legt fleira mætti nefna.
Félagið hefur minnzt tíu og
tuttugu ára afmælis síns með mynd-
arlegum skemmtisamkomum, einn-
ig hafa verkalýðsfélögin á staðn-
um haldið 1. maí hátíðlegan ár
hvert.
Þá hafa verið farnar smá-
skemmtiferðir að sumrinu, sem
konur hafa haft bæði gagn og
gaman af.
Félagskonur eru nú nær fjöru-
tíu.
Núverandi stjórn félagsins skipa
þessar konur:
Margrét Þorgrímsdóttir form.,
Arnbjörg Jónsdóttir ritari, Svan-
hildur Guðjónsdóttir gjaldkeri.
Verkalýðsfélag Tálknafjarðar
Félagið er stofnað 28. nóvember
árið 1935 í barnaskölahúsinu á
Sveinseyri.
Fyrsti formaður var Jóhann L.
Einarsson nú hreppstjóri.
Með honum í stjórninni voru
þessir menn: Albert Guðmundsson,
ritari, Knútur Hákonarson féhirðir
og Bjarni E. Kristjánsson og Skúli
Guðmundsson meðstjórnendur.
Þannig segir frá aðdraganda að
stofnun félagsins:
Laugardaginn 9. nóvember árið
1935 var boðað til fundar í barna-
skólanum á Sveinseyri. Til fund-
arins höfðu boðað bréflega þeir
Albert Guðmundsson Sveinseyri,
Jóhann L. Einarsson Tungu, Guð-
mundur Þorsteinsson Hrauni og Jón
Guðmundsson Sveinseyri. Fundar-
efnið var stofnun verkalýðsfélags.
Lengst hefur Jóhann L. Einars-
son verið formaður félagsins.
Félagssvæðið er Tálknafjarðar-
hreppur.
í Alþýðusambandið mun félagið
hafa gengið 12. júlí árið 1944. Þó
verður ekki séð, að félagið sendi
fulltrúa á Alþýðusambandsþing
fyrr en haustið 1946.
Jóhann L. Einarsson