Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1932, Blaðsíða 36
34
23. Mænusótt (poliomyelitis anterior acuta).
Töflur II, III og IV, 23.
Sjúklingafjöldi 1923—1932:
1923 1924 1925 192fi 1927 1928 1929 1930 1931 1932
Sjúkl............ 2 463 26 2 12 4 8 9 11 81
Dánir ........... „ 89 „ 2 3 6 1 1 „ 15
Nokkur faraldur var að mænusótt og meiri en verið hefir síðan
1924. Flest tilfelli eru skráð í Reykjavík (þó engan veginn að til-
tölu við fólksfjölda), en einnig kvað talsvert að henni á Norður-
landi, einkum á Akureyri og þar vestur undan. Þá stakk hún sér og
niður á Austfjörðum, í Keflavík og víðar. Dánartalan miðuð við
skráð tilfelli eru mjög svipuð og í faraldrinum 1924. Ekki mun
veikin almennt hafa verið mjög skæð á þeim, sem lifðu. Þó varð
einstaka maður allhart úti og hlaut varanlegar lamanir eins og
gengur.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Stingur sér talsvert niður hér, einkum fimm fyrstu mánuði
ársins, og eru taldir fram á skýrslum læknanna 28 sjúklingar. Þar af
5 dánir. Sóttvarnir voru reyndar, þó ekki væri sannanlegt, að þær
kæmu að neinu haldi, enda var mér vitanlega ekki hægt að finna
neitt beint samband milli hinna einstöku tilfella.
Skipaskaga. Kom fyrir þrisvar á árinu. Mjög væg, og lamanir hurfu
að mestu leyti eftir rúman mánuð. Eitt barn átti þó nokkuð lengi í
veikinni, og' héldust lamanir frarn undir áramótin. Engin mök höfðu
sjúklingar þessir haft hver við annan, og' ekki getum við sagt um,
hvaðan hún hefir borizt.
Borgarnes. Eitt barn varð sjúkt af mænusótt hér í sumar; það var
frá Reykjavík, og var brátt flutt á sjúkrahús þar.
Flategrar. Barnalömun rnjög svæsna fékk telpa ein í Súganda-
firði siðastliðið haust. Hún andaðist. Grunur um annað (abortivt)
tilfelli þar.
Sauðárkróks. Kom upp á tveim bæjum seint á árinu utarlega á
Skaga. Leit út fyrir, að veikin hefði borizt þangað með mönnum af
fiskiskipum, er höfðu mök við þessa bæi.
Hofsós. Hefir stungið sér niður við og við í Skagafirði síðan 1924,
að hinn mikli mænusóttarfaraldur gekk um landið. Um mánaðamót-
in ágúst—september fór að bera á mænusótt í héraðinu. Það leikur
talsverður grunur á, að hún hafi kornið frá Siglufirði. Bæði var það,
að nokkur tilfelli höfðu komið fyrir á Siglufirði fyrri hluta sumars-
ins, og auk þess kom veikin einna fyrst fyrir hjá fólki, sem nýlega
hafði haft samg'öngur við Siglufjörð. Alls eru skrásettir 6, en sjálf-
sagt hafa miklu fleiri veikzt. Ég veit að minnsta kosti um 3, sem
hefðu átt að vera á skrá, auk fjölda abortiv tilfella. 1 sjúklingur dó,
8 ára drengur. Fór á fætur, eftir eins dags legu, en sló svo niður aftur
og dó fljótlega. Ég var svo óheppinn að veikjast, og var það með
þeim fyrstu. Ég fékk allmiklar lamanir. Lömuðust flexorar á vinstri
upphandlegg og axlarvöðvar, musculus deltoideus, musculus supra-
spinatus, musculus infraspinatus. Auk þess lömuðust bæði neðri