Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1932, Blaðsíða 61
59
anna í febrúar 1932 kom í ljós, að frá byrjun skólasársins (16. okt.
1931) hafði 1 barn létzt um 7 kgr., 5 börn um 3,5—5 kgr., 40 börn um
0,9—3,5 kgr., og 9 börn höfðu staðið í stað. Alls höfðu þá 55 börn, eða
nálega 12,2% af öllurn börnum i skólanum, létzt eða staðið í stað. Hinn
11. febr. 1933 voru einnig öll börn vegin og athuguð, og kom þá í ljós,
að frá byrjun skólaársins síðastl. haust höfðu 7 börn létzt um 1—3,4 kgr.,
16 börn létzt um 0,1—-0,9 kgr. og 5 börn staðið í stað, hin öll þyngzt.
Alls höfðu nú 33 börn, eða rúmlega 7 % allra skólabarnanna, létzt eða
staðið í stað. Má af þessum tölum sjá, að ástandið er stórum betra nú
en í fyrra. Aðeins 1 barn hefir nú léízt um 3,4 kgr., 6 um 1—2% kgr.
en 16 um að eins noltkur grömin hvert. Þakkar skólastjóri þetta bætta
ástand mjólkur- og lýsisgjöfinni i vetur. í skólanum er búið að drekka í
vetur 3500 iítra af mjólk og um 70 lítra lýsis.
Höfðahverfis. Mest bar á nit og tannskemmdum. Lús sé ég ekki nú
orðið. Aðrir kvillar ekki teljandi. Tiltölulega fá voru með eitlaþrota
og sárafá með stækkaða kokkirtla.
Húsavíkur. Af 139 börnum höfðu: Adenitis 58, adenoid vegetat. 5,
atrophia gl. thyreoid. 1, appendicit. chronic. 2, blepharitis 4, bursit.
sub- et infrapat. 1, cystoma reg. parotid. 1, defectio visus 15, ekzema 2,
macuia corneæ 2, hypertrophia tons. 40, rhinitis chronica 1, scoliosis 8,
sequ. fract. baseos. 1, urticaria 1, vestigia rachit. 26, anæmia 10,
hernia ingvinal. 1, mb. cordis 3, cicatric. post cornb. 1, ostit. tibiæ non
tbc. 1, conjunctivitis 2.
Vopnafj. Af 58 börnum höfðu 51 skemmdar tennur. Lítilfjörlegur
eitlaþroti, stafandi væntanlega frá höfði (lús), fannst í nokkrum börn-
um. Aðrir lcvillar helztir: Sjóngallar (2), hypertroph. tronsill. (5),
iðrakvef (3).
Fljótsdals. Lús og nit fannst í 15 börnum af 76 alls; fer það að lík-
indum heldur minnkandi en á þó langt í land, að því verði alveg út-
rýmt. Tannskemmdir voru í 37 börnum, og hefir það mikið farið vax-
andi síðan ég fyrst skoðaði hér skólabörn 1925.
SeyðisJJ. Af 78 börnum i kaupstaðnum höfðu aðeins 2 heilar tennur.
Reyðarfj. Heilbrigði skólabarna virðist góð; af kvillum bar mest á
tannskemmdum og blóðleysi. Áberandi sjóngallar fátíðir. Kunnugt
er um 3 tilfelli af enuresis noct. hjá börnum yfir 10 ára aldur.
Meðalþyngd og hæð skólabarna á Eskifirði haustið 1932, miðað við
töflu Camerers-Pirquets:
Af 47 stúlkum reyndust:
Hæð: Ofan meðallags 18 eða 38,3%, að jafnaði 5 cm.
I meðallagi 8 eða 17%.
Neðan meðallags 21 eða 44,7%, að jafnaði 5 cm.
Heildarútkoman 0,33 cm. neðan meðallags.
Þyngd: Ofan meðallags 18 eða 38,3%, að jafnaði 3,8 kg.
í meðallagi 1 eða 2,1%.
Neðan meðallags 28 eða 59,1%, að jafnaði 3,5 kg.
Heildarútkoman 0,420 kg. neðan meðallags.
Af 40 piltum reyndust:
Hæð: Ofan meðallags 25 eða 62,5%, að jafnaði 5,44 cm.
I meðallagi 2 eða 5%.