Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1969, Page 112
1969
— 110 —
nemendum og vera tengiliður milli lækna í Húsavík og sjúklinga. Hafði
hún eftirlit með lyfjakassa og sáraumbúðum, fylgdist með lyfjagjöfum
og heilsufari. Auðveldaði þetta verulega þjónustuna við þennan fjöl-
menniskjarna.
Tcmnlæknar.
Tannlæknar, sem hafa tannlækningaleyfi á Islandi, töldust 107 í
árslok. Af þeim voru búsettir og starfandi í Reykjavík 71 (búsettir
74), búsettir í öðrum kaupstöðum 14, utan kaupstaða 4, erlendis 11
og án fasts aðseturs (bráðabirgðastörf erlendis) 4. Starfandi tann-
læknar töldust 89 alls.
Tannlækningaleyfi (takmarkað lækningaleyfi) veitt á árinu:
1. Börkur Thoroddsen
2. Einar Magnússon
3. Gunnar Helgason
4. Jón Ólafsson
(17. júlí)
(27. nóvember)
(15. júlí)
(31. október)
Hjúkrunarkonur.
Starfandi hjúkrunarkonur eru taldar 493 í árslok. 338 störfuðu í
Reykjavík, 133 í öðrum kaupstöðum og 22 utan kaupstaða. Samkvæmt
þessu voru 413 íbúar um hverja starfandi hjúkrunarkonu.
Sjúkrali'öar.
Starfandi sjúkraliðar eru taldir 139 í árslok. 97 störfuðu í Reykja-
vík, 39 í öðrum kaupstöðum og 3 utan kaupstaða.
Sjúkraþjálfarar.
Sjúkraþjálfarar, með leyfi og starfandi, eru taldir 21 í árslok. 14
eru búsettir í Reykjavík, 5 í öðrum kaupstöðum og 2 utan kaupstaða.
Ekkert þess háttar leyfi var veitt á árinu.
Meinatæknar.
Starfandi meinatæknar eru taldir 62 í árslok. 54 störfuðu í Reykja-
vík, 6 í öðrum kaupstöðum og 2 utan kaupstaða. Framtal þetta er eftir
upplýsingum héraðslækna.
Ljósmæöur.
Skipaðar ljósmæður eru taldar 86 í árslok, en aðrar starfandi ljós-
mæður voru 47. Búsettar í Reykjavík voru 31.
Dýralæknar og dýralækningar.
Dýralæknar með dýralæknaprófi voru alls 24 í árslok. Af þeim voru
17 héraðsdýralæknar.