Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1969, Blaðsíða 139
137
1969
lega heilsu, G. kvæntur, en H. ekkja. S. á ekki alsystkini. Hálfsystkini
sín að föðurnum þekkir hann ekki, en hefur aldrei heyrt neitt misjafnt
um þau. Kjörson á faðir hans, sem er algjör vandræðamaður, en er
honum óskyldur með öllu.
Þau S. og móðir hans áttu heima á nokkrum stöðum í bænum, fyrst
á .... í nokkur ár, en síðan á . ..., þangað til S. var um 10 ára aldur,
þá á .... fram til 1943—1944, en síðast á .... og síðan stofnsetti S.
eigið heimili.
Alla skólagöngu sína hafði hann í Austurbæjarskólanum, og
var hún að sögn mjög venjuleg og tíðindalaus. Samkomulag við kenn-
ara og skólafélaga var ágætt, að því er hann segir. S. fór aldrei í sveit
til dvalar. 10 ára gamall byrjaði hann að vinna á .... á sumrum, fyrst
sem léttadrengur, en síðan sem vikapiltur og vann þar fram yfir að
eigendaskipti urðu á fyrirtækinu. Nokkrum sinnum fór hann hins
vegar með móður sinni til .... á sumrum, eða nánar tiltekið frá því
hann var 4 ára og þangað til hann fór að vinna á .....Var honum
komið fyrir hjá fjölskyldu á . ..., meðan móðir hans var að vinna.
Man hann eftir því, að það kom fyrir hann þar einu sinni, að einhver
karl var að gantast við hann og snaraði honum inn í frystiklefa og
skellti hurðinni á eftir honum. Sagðist S. alveg hafa ætlað að tryllast,
þegar hann fann, að hann komst ekki út. Hafði hann síðan öll bernskuár
sín verið haldinn mikilli innilokunarhræðslu.
Tómstundum sínum hér í bæ eyddi hann með félögum, sem hann átti
yfirleitt góð samskipti við. Einhvern tíma var hann í skátastarfsemi,
sem við nánari eftirgrennslan sýnist hafa verið ylfingastarf aðallega,
en var þó kominn upp í skátafélagið og man meira að segja að nefna
foringja sinn. Eitthvað var hann í K. F. U. M., en man lítið eða ekki
að tilgreina frá þeirri veru.
Að því er S. lætur í veðri vaka, varð ekki ýkja mikið um tómstundir,
eftir að hann hóf vinnu á ...., en það var, eins og að ofan getur, er
hann var 10 ára gamall. Segir hann, að sér hafi líkað starfið vel. Var
vinnan afar þrifaleg, en launin ekki ýkja há, jafnvel miðað við það, sem
Þá gerðist. Segir S., að þá hafi þótt gott að hafa vinnu og þá minna
fengizt um það, þótt launakjör væru knöpp og hann fengi enga launa-
hækkun, fyrr en hann var 18 ára.
Heilsufar sitt segir hann hafa verið gott í bernsku og uppvexti, og
veyndar alla tíð. Hann fékk rétt algengustu barnasjúkdóma, en ekki
Þar fram yfir.
Kunningja átti hann ýmsa í bernsku og æsku, en ekkert af þeim
samböndum hefur verið varanlegt fram á manndómsár, og fátt eitt
er honum að sögn minnisstætt frá þeim tíma.
Starfslið k .... segir hann hafa verið mjög breytiiegt og fólk upp
°S ofan, eins og gengur. Húsbændur voru þá hins vegar hættir að tala
saman.
18