Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1969, Síða 142
1969
— 140 —
lega 10 árum áður eða svo, segir S., að hann hafði tekið IV2 pk. af skot-
um uppi við ... ., og leizt honum svo á þau, að verið gæti, að þau
pössuðu í gamla hermannaskammbyssu, sem hann átti, af óvenjulegri
stærð. Um þessi atriði fjallar nánar hér neðar.
S. frétti nú, að mann vantaði til aksturs á tiltekna bifreið á ....
Falaðist hann eftir því starfi hjá eigendum hennar, og fékk það og
gerði svo grein fyrir sér, að hann hefði unnið áður á...Bifreiðareig-
andinn sagðist hins vegar hafa frétt það síðar, af . ..., að S. hefði verið
látinn hætta störfum þar vegna þess, að hann hefði ekki getað staðið
skil á fé fyrir aksturinn.
S. ók svo bifreiðinni á ... . hálft ár, en þar kom, að eigendur töldu,
að hún stæði ekki undir sér með þessu móti, og kváðust heldur vilja
selja bifreiðina. Falaðist þá S. eftir kaupunum og sagðist vera að bíða
eftir atvinnuleyfi, og myndi fljótlega koma að sér. Eigendurnir tóku
það trúanlegt, en kváðust verða að fá 100.000.00 kr. útborgaðar, og
taldi S. engin vandkvæði á því. Kom hann svo með 75.000.00 kr. í pen-
ingum og eftir nokkurt stapp með 25.000.00 kr. víxil, sem hann reynd-
ar stóð skil á. Samið var síðan um 10.000.00 kr. greiðslu á mánuði, og
að hann tæki að sér tryggingu bifreiðarinnar og opinber gjöld. Fór
þetta allt í mesta ólestri, meiri 0g minni vanskilum. Endaði með því,
eftir mikla ,,rekistefnu“, að þau hjón, sem áttu bifreiðina, sögðu upp
viðskiptunum við S., þegar þau komust að því, að hann var búinn að
aka bifreiðinni ótryggðri í nokkurn tíma og hemlabúnaður var að auki
mjög lélegur, þegar þau skoðuðu hann einu sinni eða maður á þeirra
vegum. Voru lyklar bifreiðarinnar svo teknir af S.
Þegar farið var að taka til dót það, er honum tilheyrði í bifreiðinni,
fannst hlaðin skammbyssa, Smith & Wesson, caliber 35, í hanzkahólfi
bifreiðarinnar. Var henni komið til lögreglunnar tafarlítið. Þegar S.
sá, að hún var ekki í dótinu, sem honum var afhent, innti hann eftir
henni, að því er hermt er, eins og þetta væri hálfgerður hégómi eða lít-
ilsverður hlutur, og var þó þá fyrir nokkrum mánuðum búið að kalla
inn allar skammbyssur, sem menn hefðu í fórum sínum, vegna morðs-
ins á G. T-syni, en skothylki, sem fannst í bifreið hans, benti til þess,
að morðskotinu hefði verið hleypt úr sjálfvirkri skammbyssu caliber 35.
Eigendur bifreiðarinnar tóku hana af S. 5. marz 1969, en 7. marz
tilkynnir hann lögreglunni á .... hvarf byssunnar, sem hann segist
hafa „fundið í bíl sínum, undir framsætinu" í janúar 1968. Hafi hann
svo látið hana í hólfið í bifreiðinni, vegna þess að hann hafi verið að
bíða eftir því, hvort sá, sem lét hana þama, kæmi ekki að spyrjast
fyrir um hana. Segir hann lögreglunni við yfirheyrslu, að sér þyki
líklegast, að sá hinn sami hafi viljað koma sér í eitthvert klandur.
Ólíkindi þess, að sá, sem ætlaði að koma honum svo hastarlega í
klandur, færi svo að spyrjast fyrir um byssuna á eftir, virðast ekki
hafa hvarflað að honum. Segist hann svo hafa gleymt þessu. 1 öðru