Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1969, Page 149
— 147 —
1969
Hæstaréttar, kveðnum upp 26. marz 1971, leitað umsagnar læknaráðs
í hæstaréttarmálinu nr. 27/1970: G. B-son gegn G. G-syni.
Málsatvik eru þessi:
Hinn 20. apríl 1964 varð G. G-son....... Reykjavík, fyrir skotárás,
er hann var við vinnu á vélkrana í húsgrunni að .... í Reykjavík.
Eitt skot fór í gegnum vélkranahúsið, en hæfði ekki stefnanda. Sá, er
skaut, var G. B-son, . ..., Reykjavík.
1 málinu liggja fyrir þessi læknisvottorð:
1. Vottorð .... sérfræðings í tauga- og geðsjúkdómum, dags. 26.
apiúl 1965, svohljóðandi:
„G. G.-son, f....marz 1933......... Reykjavík, varð, að hann telur,
fyrir skotárás í apríl 1964, þar sem hann vann á krana. Þann dag
hélt hann þó áfram vinnu sinni og til hádegis næsta dag, en fékk þá
grátkast, hræðslutitring og varð að hætta vinnu. Eftir þetta verður
hann kvíðinn, eirðarlaus, einnig sækir að honum svefnleysi, vonleysi,
honum finnst allt ómögulegt, verður uppstökkur og æstur, ef eitthvað
bjátar á, þolir hvorki konu né börn og er mjög geðvondur heima fyrir
°g hefur sig ekki að neinu verki, þ. e. a. s. öll einkenni þunglyndis-
veikinda. G. var fyrst til lækninga hjá .... lækni [sérfræðingi í tauga-
°g geðsjúkdómum], en vitjaði mín fyrst 6. júlí 1964 með þeim sjúk-
dómseinkennum, sem að ofan er lýst. Síðan hefur heilsufar hans verið
ffljög óstöðugt, stundum hafa komið sæmilega góðir kaflar, en á milli
nokkuð erfiðar depressionir, stundum með ofnautn áfengis, sem telja
wá einn þátt í depressioninni (afleiðingu depressionarinnar). Nú síð-
asta mánuð hefur G. verið nokkuð hress til heilsu og farið batnandi,
svo vonir standa til, að þessi veikindi séu nú á enda. Þess skal getið,
að G. hefur fyrir nokkrum árum fengið þunglyndiskast (depressio
^nentis endogenes), og læknaðist hann þá á fáum vikum og var hraust-
Ur, þar til hann varð fyrir áðurnefndri skotárás.
Pullyrða má, að G. hafi tilhneigingu til depressionar og sé því ber-
skjaldaðri fyrir sálrænum áföllum en þeir, sem ekki hafa slíkar veilur.
Algengt er, að depressionir fylgi í kjölfar slíkra áfalla, og líkur benda
eindregið til, að þetta depressionskast sjúklings hafi framkallazt af
áðurnefndri skotárás“.
2. Vottorð Þórðar Möller, yfirlæknis Geðveikrahælis ríkisins, dags.
25. apríl 1970, svohljóðandi:
„1 áframhaldi af samtali við yður, hr. lögmaður, leyfi ég mér að
senda yður úrdrátt þann úr geðrannsókn G. B-sonar, er ég gerði haustið
1964 og tel meginmál þeirrar rannsóknar, ásamt niðurstöðum hennar.
^ar segir:
„Hér er um að ræða 39 ára gamlan mann, heyrnarlausan, frá því hann
Var 15 mán. gamall. Hann þroskaðist eðlilega líkamlega að öðru leyti.
Eftir skólagöngu í 11 ár í málleysingjaskóla fer hann að vinna fyrir sér,