Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Blaðsíða 183
181
urinn á hægri síðu og olnboga. Á vinstra handarbaki, frá fyrsta
metatarsalbeini framanverðu og upp á við að II. metatarsalbeini,
eru húðrispur 4 cm á lengd og allt að 1,5 cm á breidd þar sem þær
eru þéttastar við II. metatarsalbeinið. Utan á vinstra hné er
alldjúp húðafrifa, 2x1 cm, en hún er ekki alveg nýleg að sjá.
Tvær litlar húðafrifur eru medialt á vinstra hné, og tvær neðan
við það og lateralt. Nokkrir gamlir marblettir sjást á vinstri
legg og ennfremur rétt ofan við hægra hné og á hægri legg. Framan
á hægra hné sjást örlitlar gamlar skrámur og tvær gamlar húðafrifur
sjást framanvert á hægra legg. Blóðblettir eru á hálsi, herðum og
fótum, og úr nefi og munni renna blóðtaumar, þegar líkið er hreyft.
Engin skurðör sjálst á líkinu. Augu eru brostin. Sjáöldur eru
jafnvíð og hringlaga og mælist hvort þeirra 0,5 cm að vídd. Blæð-
ingar sjást ekki í augnhvítum. Eins og áður segir, renna blóðtaum-
ar frá nefi og munni, þegar líkið er hreyft. Eigin tennur eru í
munni.
Brjóst- og kviðarhol er opnað: í hægra brjóstholi eru engir sam-
vextir og ekki heldur í vinstra, en í vinstra brjóstholi eru 1650
millil. af blóði og blóðlifrum, og sama magn er í hægra brjóstholi.
Við nánari athugun á stungusári ofan við vinstra viðbein sést, að
stungan hefur gengið undir mediala enda v. viðbeins og inn í vinstri
hlið mediastinum, 2,5 cm neðan við neðri pól v. skjaldkirtilslappa,
síðan inn í vinstri hlið vélinda og út um hægri hlið, og eru sár
þessi á vélindanu 9,5 cm neðan við cartilagoerico thyroidea. Inn-
stungusárið á vélindanu mælist 1 cm að lengd, en útstungusárið 0,8 cm.
Stungan hefur síðan gengið áfram og út um hægri hlið á mediastinum,
rétt við hilus hægra lunga. Rétt hægra megin við vélindað hefur
stungan myndar 0,5 cm langa rifu í vena azygos. Umhverfis þetta
svæði er stórt hematoma, og hefur blæðingin bæði ruðst frá þessum
stað inn í hægra og vinstra brjósthol, og ennfremur hefur blætt inn
vélindað. Við nánari athugun á lengd stungusársins reynist það vera
11 cm á lengd. 1 kviðarholi eru engir samvextir og enginn vökvi.
Hjarta-og æðakerfi: 1 gollurshúsi er ekki aukið vökvamagn. Hjart-
að vegur 285 g og er eðlil. að lögun. Ekkert athugavert er að finna
við myocardium, endocardium eða hjartalokur. Ummál hjartaloka mæl-
ast: Valvula mitralis 9,4 cm, aortae 6,5 cm, pulmonalis 6,8 cm og
tricuspidalis 11,6 cmT Foramen ovale er lokað. Kransæðar eru allar
vel opnar, en í vinstri kransæð, 0,5 cm frá ostium, er vel greinileg
atheromaskella, sem nær 1 cm niður eftir æðinni. Aðrar atheroma-
breytingar sjást ekki í kransæðum. Aorta sýnir engin merki um
atherosclerotiskar breytingar og er intima slétt og gljáandi.
Ummál aorta eru: Ascendens 5,7 cm, arcus 4,7 cm og descendens 3,8 cm.
Allar aðalslagæðagreinar, er ganga út frá aorta, eru eðlil. að sjá.
Eins og áður er lýst, er 0,5 cm langur skurður í hægri vena azygos.
Ekki er hægt að finna, að aðrar meiriháttar æðar hafi orðið fyrir
trauma.
Öndunarkerfi: Hægra lunga vegur 285 g og v. lunga 245 g. Bæði lungun
eru föl að sjá á yfirborði. í lobus superior v. lunga medialt, 4,5 cm
fyrir neðan apex, er 1,8 cm langur skurður, sem er mest 0,5 cm á
dýpt, og svarar hann til að hafa verið lateralt í stunguganginum.
Aðrir áverkar sjást ekki á lungum. Þegar barki og berkjur eru klippt-
ar upp kemur í ljós að í þeim er mikið af blóði, en hvergi finnast
sár á barka eða hægri aðalberkjugrein, og mun blæðingin^hafa komið
frá sárinu í vélinda og runnið niður í lungun. Ekki sjást neinar
bólgubreytingar í lungunum. Art.pulmonalis og aðalgreinar hennar eru
eðlil.