Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Blaðsíða 182
180
aftur og ekki beitt. Mesta breidd 21 mm. Blaðið er blóðugt báðum
megin frata úr og upp á miðju á skafti. í öðru lagi vasahnífur,
17 cm á lengd, blaðlengd 7 cm. Blóðkám 2 cm frá oddi öðrum megin.
Hreinn hinum megin og skaft hreint. 1 þriðja lagi skæri, "GEBR
Weyersberg Solingen Germany", 21 cm á lengd. Blaðlengd frá öxli
11 cm og 10 cm þegar skærin eru alveg opln. Mesta breidd á blaði
16 mm. Annað blaðið mjög oddmjótt og blóðugt báðum megin fram úr
og eins og fitubrák á tveim fremstu centimetrunum. Hitt blaðið er
bogadregið bakkamegin við oddinn, og sér aðeins blóð á því innan-
verðu á fremstu 4 cm. Talið að eftir útliti hafi verið stungið
með öðru skærablaðinu.
Líkið kemur í rannsóknarstofuna klætt í grábrúnköflóttar buxur, og
eru á þeim margir blóðblettir. Á fótum eru brúnir sokkar, og virð-
ast vera uppþornaðir blóðblettir á iljum beggja sokkanna. Einnig
er líkið klætt í bláar, stuttar bómullarnærbuxur og er stór blóð-
blettur framan og ofan til á þeim. Að ofan er líkið ekki í neinu
fata, en samkvæmt upplýsingum frá læknum slysadeildar Borgarspítal-
ans, var J. í bláum nærbol er hann kom þangað. Nærbolurinn var gegn-
votur af blóði að framanverðu, og gat reyndist vera á nærbolnum v.
megin að framanverðu, 5 mm að lengd, 6,5 cm frá hálsmáli og 9,5 cm
frá vinstri handveg. Líkið er alstirt. Á bakflötum líksins vottar
fyrir daufum, blárauðum líkblettum. Eftirfarandi áverkamerki sjást
á líkinu. Á hálsi er 14,4 cm langur skurður og byrjar skurðurinn
4.4 cm hægra megin vlð miðlínu og um 1,5 cm neðan við kjálkabarð.
Gengur síðan yfir til vinstri rétt ofan við barkakýlið og aftur á
við, og er vinstri endi skurðarins 7 cm neðan eyra. Hægri endi skurð-
arins er mjög grunnur, nær ekki alveg niður í gegnum húðina, en 1 cm
v. megin við miðlínu framan á hálsi dýpkar hann á 3,7 cm löngu svæði
og nær þar niður í gegnum undirhúð og á stuttu svæði aðeins niður í
vöðva og er um 0,5 cm djúpur þar sem hann er dýpstur. Síðan grynnk-
ar skurðurinn aftur, og nær vinstri endi hans rétt niður í gegnum
húð. 1,2 cm ofan við vinstra viðbein er 1,2 cm langt stungusár og
myndar lengdarás sársins um 45° horn við lengdarás viðbeinsins þann-
ig, að efri endi sársins liggur medialt við þann neðri, og er medlali
endinn 4,7 cm frá miðjum hálsi. Fara má með sondu niður í þetta sár,
9.5 cm vegalengd án nokkurrar fyrirstöðu. Sárfarvegurinn liggur nið-
ur en lítið eitt fram á við og yfir til hægri þannig að það myndast
35° horn við miðlínu. Fast ofan við vinstra herðablað er annað
stungusár, 1,3 cm að lengd, og stefnir langöxull sársins upp á við
og yfir til vinstri. Efri endi sársins er 5,1 cm frá laterala enda
viðbeins v. megin. Fara má með sondu inn í sárið, og gengur hún
2,2 cm inn, en þá er fyrirstaða, og virðist sárbotn vera þar. Ofan
á vinstri öxl er 1 cm húðrispa. Frá vinstra handarvegi aftur á við
óg upp á við gengur 5,3 cm löng húðrispa. Umhverfis v. auga er gamalt
mar, og á vinstri kinn er húðafrifa, sem einnig er ekki ný, og er að
nokkru leyti gróin og mælist hún 1 cm í þvermál. Á hægri síðu,
11 cm neðan við axilla, er 4 cm breiður marblettur, sem ekki er ný-
legur, annar marblettur mun minni er rétt neðan við og lateralt við
vinstri geirvörtu. Einnig eru nokkrir litlir gamlir marblett-
ir anijars staðar á brjóstkassa. Á hægri olnboga er stór marblettur,
sem einnig er ekki nýlegur. Á miðjum hægra framhandlegg, dorsalt
og radialt, er 6,5 cm löng rispa, sem víðast nær ekki niður x gegnum
húð. 2,5 cm neðan við radiala enda þessarar rispu er 1 cm langur
skurður, sem nær rétt niður í gegnum húðina, en á milli rispunnar og
skurðárins eru tvær stuttar rispur. Ulnart á hægra handarbaki er
marblettur, sem mælist 4,5x3 cm, og er ekki nýr frekar en marblett-