Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1973, Blaðsíða 173
171
Skoðun: Þetta er 5 ára drengur, meðalhár eftir aldri og krafta-
lega vaxinn og í eðlil. holdum. Hnakkinn er dál. flatur, en höfuð-
ummái er eðlil. Augnhreyfingar eru eðlil. og pupillur reagera
eðlil. við ljósi. Augnspeglun var eðlil. Skoðun á nefi, munni og
koki er eðlil. nema hvað tennur eru talsvert skemmdar. Skoðun á
eyrum leiddi í ljós örvefsmyndun á hljóðhimnum. Það er engin
óeðlileg eitlastækkun á hálsi, ekki struma. Brjóstkassi eðlil. lag-
aður. Lungu voru hrein við hlustun. Bæði hjartahljóð eðlil.
Engin óhljóð. Peripherir púlsar eðlil. Kviður mjúkur og eymsla-
laus og engar organstækkanir eða tumorar. Það er ör í báðum nárum
eftir aðgerð á kviðsliti. Kynfæri eðlil. Bæði testes í scrotum.
Útlimir: Engin deformitet. Neurologisk skoðun: Ég sá þennan
dreng fyrst í nóvember 1968 og hefi svo séð hann af og til síðan og
síðast fyrir ca. 2 mán. Þegar ég sá hann fyrst, var hann mjög
hyperactivur og þautfrá einum hlut til annars. Hamaðist mikið í
skúffum og skipti sér ekkert af leikföngum, horfði aldrei á mann,
en þegar maður talaði við hann, virtist hann skilja einföld fyrir-
mæli og hlýddi þeim stundum. Síðast þegar ég sá drenginn, var hann
stilltari. Hamaðist ekkert í húsgögnunum, var frekar hræddur og
hlédrægur. Drengurinn kemur ákaflega furðulega fyrir. Hann lítur
aldrei á mann og leitar ekki eftir contact og er með alls konar
fettur og hrettur. Hann leikur sér ekkert að dótinu hér, aðeins
rjátlar við það, en ekki er um neinn constructivan leik að ræða.
Þegar hann var á barnadeild Landspítalans nú fyrir nokkru, sá ég
hann oft innan um hin börnin og leitaði hann aldrei eftir neinum
contact við þau og lék sér ekkert við þau en ráfaði bara um, einn
út af fyrir sig í sínum privat heimi. Það er greinilegt, að hann
heyrir alveg eðlil. og fylgdi hann eftir fyrirmælum, sem ég gaf
honum, þegar hann snéri við mér bakinu. Ég hef aldrei fengið hann
til þess að skrifa eða teikna neitt fyrir mig. Motoriskt er vöðva-
bygging eðlil, en drengurinn virðist heldur kraftlítill og það er
dál. hypotonia til staðar. Reflexar eru + í efri extremitetum og
++ í neðri extremitetum. Plantareflexar flexor. Það eru engar
sensoriskar truflanir og engar óeðlilegar hreyfingar og coordlnation
virðist eðlil. Hreyfingar eru frekar hægar og silalegar og fínar
motoriskar eru talsvert "clumsy".
Niðurstaða: Þetta er 5 ára drengur með Rubella Syndrome. Hann er
mállaus, ög" hegðun hans er ákaflega afbrigðileg og bendir hún til
þess, að drengurinn sé vangefinn. Einnig er í hegðun hans margt,
sem minnir á autismus. Þrátt fyrir það, að ég er margoft búinn að
sjá þennan dreng, hefi ég ekki getað treyst mér til þess að segja,
hvað drengurinn er mikið retarderaður, en þetta er að sjálfsögðu
spurning, sem við verðum að svara eins fljótt og hægt er. Það má
vera að drengurinn sé ekki educable, og gæti þá komið til greina
að vista hann á hæli. Ef hann aftur á móti reynist vera educable,
þarf hann greinilega á mikið meiri sérkennslu og þjálfun að halda,
en hægt er að veita honum í heyrnleysingjaskóla. Þó framför hafi
verið mjög hæg undanfarin ár, hefur þó verið um stöðuga framför að
ræða, og verður því að gæta ítrustu varfærni um að drengurinn verði
ekki dæmdur úr leik fyrr en fullar sannanir liggja fyrir um það, að
ekki sé hægt að kenna honum."
Læknirinn kom fyrir dóm 15. nóvember 1972, og er framburður hans
bókaður á þessa leið:
"Fyrir vitninu er lesið efni dskj. nr. 16, en vitnið segist hafa