Bændablaðið - 14.01.2021, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 25
Verkefnisstjórn Landsáætlunar
um uppbyggingu innviða 2020–
2022 hefur lagt til að um 140 millj-
ónum króna verði varið til bráða-
aðgerða og uppbygginga innviða á
svæðum sem friðlýst voru á síðasta
ári. Meðal svæða sem þar eru undir
eru Geysissvæðið, Kerlingarfjöll,
Búrfell og Goðafoss.
Samkvæmt tilkynningu á vef
umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
isins er gert ráð fyrir því í gildandi
verkefnaáætlun Landsáætlunar um
uppbyggingu innviða 2020-2022 að
hægt sé að nota fjármagn þess til upp-
byggingar á nýfriðlýstum svæðum,
sem voru átta á síðasta ári. Tillögur
verkefnisstjórnar taki mið af mati
umsjónarstofnana náttúruverndar-
svæða að slíkum verkefnum.
Fjármagn í Lands áætluninni
er um einn milljarður
króna ár hvert
Í tilkynningu umhverfis- og
auðlinda ráðuneytisins er farið yfir
helstu verkefnin við bráðaaðgerðir
og uppbyggingarstarf á nýfriðlýstu
svæðum á Íslandi.
„Á Geysissvæðinu, sem friðlýst
var sl. sumar, verður m.a. farið í
smíði timburpalla við Konungshver,
Strokk og útsýnisskífu, sem og
ráðist í gerð malarstíga. Þá verð-
ur farið í uppbyggingu innviða í
Kerlingarfjöllum, en svæðið er á
rauðum lista í ástandsmati vegna
mikils álags af völdum ferða-
manna og hætta á að svæðið tapi
verndargildi sínu ef ekkert verður
að gert. Álagið er hvað sýnilegast í
Neðri Hveravöllum þar sem mikill
skortur er á stýringu og innviðum
til að verja einstök hverasvæði og
leirkenndan jarðveginn. Þar verður
farið í gerð göngupalla, en í dag
eru hveraútfellingar og hveraleir
traðkaður niður og hentistígar eða
villuslóðar algengir.
Einnig á að ráðast í gerð göngu-
brúar á 5 km langri gönguleið úr
Ásgarði í Hveradali. Þetta er ein
vinsælasta gönguleiðin á svæðinu
en Ásgarðsá, sem getur verið djúp,
kröftug og er ísköld, hefur reynst
mikill farartálmi fyrir þá sem ekki
eru útbúnir í að vaða.
Verkefnisstjórnin leggur einnig
til að ráðist verði í vinnu í umhverfi
Búrfells og Búrfellsgjár, en göngu-
leiðin í Búrfellsgjá er mjög vinsæl og
mikið álag á henni. Við kvæmur gróður
á svæðinu liggur því sums staðar undir
skemmdum vegna traðks.
Önnur verkefni sem má nefna
eru gerð upplýsinga- og gönguleiða-
skilta við Goðafoss, sem og vinna
í Þjórsárdal við viðhald innviða
við Háafoss og frumathugun á
uppbyggingarþörf í Gjánni og við
Hjálparfoss,“ segir í tilkynningu
ráðuneytisins.
Friðlýsingar geta nýst
til atvinnusköpunar
Haft er eftir Guðmundi Inga
Guðbrands syni umhverfis- og
auðlindaráðherra af þessu tilefni að
friðlýsing svæða sé mikilvæg til að
vernda náttúru- og menningarminjar
svæða fyrir komandi kynslóðir –
að með friðlýsingu verði líka oft
til frekara aðdráttarafl sem getur
nýst í atvinnusköpun heima í
héraði. „Ég hef lagt áherslu á að
hægt sé að beina fjármagni úr
Landsáætlun um uppbyggingu
innviða inn á nýfriðlýst svæði og
taka á vandamálum strax,“ segir
Guðmundur Ingi. /smh
Léttmál er hrein grísk jógúrt með hollum
og stökkum toppi eða jarðarberjum í botni.
Handhægur, próteinríkur og bragðgóður
réttur sem létt er að grípa með og njóta
hvar og hvenær sem er.
LÍF&STRAF
Um 140 milljónum króna verði varið
til aðgerða á friðlýstum svæðum
Hveradalir í Kerlingarfjöllum.
28.
janúar
56-30-300