Bændablaðið - 14.01.2021, Side 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 31
Valtra
Lely Center Ísland
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 // Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 – lci.is
VARAHLUTIR Í DRÁTTARVÉLAR
John Deere
New Holland
Steyr
Case IH
Fiat
Deutz Fahr
Zetor
Kubota
Massey Ferguson
Claas
Fendt
Stuðningur við skógrækt félaga og samtaka
NÝIR STYRKIR TIL KOLEFNISBINDINGAR:
UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR:
www.skogur.is/vorvidur
UMSÓKNARFRESTUR TIL 1. FEBRÚAR 2021!
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Vorvidur-auglýsing_JAN2020_bbl151x113.pdf 1 7.1.2021 14:11:25
ýmsa kosti umfram það að slá
villtan þara – og hægt að ná miklu
framleiðslumagni sem auðvelt er
að uppskera. Hún sér fyrir sér að
einhverjir samstarfsaðilar sem kæmu
til liðs við hana gætu hugsanlega
notið góðs af þessu hráefni því
þarna séu mörg nytsamleg efni
sem nýtast ekki öll til vinnslunnar
á matvælaplastinu.
Niðurbrjótanlegt og neysluhæft
„Útgangspunkturinn í þessu
ferli var lífplast sem hefur lítið
vistspor, brotnar auðveldlega niður
í náttúrunni og er svo hreint að mætti
jafnvel nota í neysluhæfar umbúðir,
til dæmis utan um skyndibitafæði.
Þessi áform hafa gengið eftir, þótt
enn sé talsverð vinna fram undan
við að koma efninu í framleiðslu.
Þetta hráefni kemur sterkt inn í
umræðu dagsins um sjálfbærni,
þar sem umræddur lífmassi krefst
ekki akuryrkju með öllu sem henni
fylgir, úrvinnslan úr honum er
tiltölulega skaðlaus og orkunotkun
lítil,“ segir Sigríður. Hún vonast
til að lítill „umhverfiskostnaður“
muni reiknast þessu nýja lífplasti til
tekna í nánustu framtíð. „Samkeppni
um plastumbúðir á markaði er
vitaskuld mikil, en auknar kröfur
í umhverfismálum gefa þessu efni
forskot,“ segir hún.
Beltisþarinn grunnhráefnið
Sigríður segir að grunnhráefnið í
framleiðsluna sé beltisþari ásamt
fleiri tegundum brúnþörunga og
íblöndunarefna. „Stórþörungar hafa
ýmsar áhugaverðar sameindir sem
eru mikið rannsakaðar og eru þeir
nú þegar nýttir í fæðu, snyrti- og
lækningavörur, auk þess að vera
skoðaðir fyrir margvíslegan annan
iðnað.
Plastefni unnið úr stórþörungum
getur verið hentugt fyrir nýja hugsun
um umbúðir, hlutverk þeirra og
mikilvægi. Matvælapakkningar
eru umfangsmiklar á markaði,
þær auka geymsluþol matvæla og
eru í stöðugri þróun. Á sama tíma
þurfum við að takast á við þau
vandamál sem fylgja uppsöfnun
plasts sem brotnar ekki auðveldlega
niður við náttúrulegar aðstæður
og þarf endurvinnslu eða háþróað
jarðgerðarferli fyrir niðurbrot þó það
sé unnið úr vistvænum efnum.“
/smh
Nokkrar frumgerðir af „matvæ
la
plasti“ Sigríðar.
Coroline Aldén býður upp á járningaþjónustu á Suðurlandi:
Járnar að meðaltali átta hesta á dag
Coroline Aldén, eða Carro eins og
hún er alltaf kölluð, býr á Selfossi
og er með fyrirtækið „Járn og
hófar“ þar sem hún býður
járningaþjónustu á Suðurlandi.
Carro er ein af fáum konum á
Íslandi, sem stundar járningar
en hún er menntuð í faginu frá
Svíþjóð. Hún járnar að meðaltali
átta hesta á dag.
„Já, það er meira en nóg að
gera hjá mér, ég er á fleygiferð
alla daga á milli hesthúsa að
járna. Þetta er mjög skemmtilegt
og gefandi starf, ég elska vinnuna
mína,“ segir Carro og hlær. Hún
hefur búið á Íslandi í tíu ár og er
heilluð af íslenska hestinum. „Það
þykir ekkert merkilegt í Svíþjóð að
konur séu að járna en það þykir
merkilegt hér á Íslandi því við erum
svo fáar. Ég er líkamlega hraust
enda hugsa ég vel um heilsuna og
líkamann minn og á því auðvelt
með að stunda járningar,“ bætir
Corro við. /MHH
Carro, sem er með fyrirtækið „Járn og hófar“ þar sem hún býður upp á
járningaþjónustu en hún járnar oft átta hesta á dag. Hún á að baki þriggja
ára nám í járningum í Svíþjóð. Mynd / MHH