Bændablaðið - 14.01.2021, Side 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 202134
Menntaskólinn að Laugarvatni:
Landsbyggðarskóli með ríkar
hefðir og afar góðan kór
Menntaskólann að Laugarvatni
þarf vart að kynna fyrir fólki en
hann er einn af elstu menntaskól-
um landsins, stofnaður formlega
12. apríl 1953. Þeir skipta orðið
þúsundum stúdentarnir sem sett
hafa upp hvíta kollinn í ML og
gengið þaðan beinir í baki til að
takast á við lífið og tilveruna sem
tekur við að námsárum loknum.
Það er nú svo að heimavistar
fyrirkomulagið hentar mjög vel
fólki til sveita því þá er hægt að
senda unglingana að heiman í
eins öruggt umhverfi og kostur er,
með þeirri gæslu sem því tilheyrir,
auk þess sem í boði er fullt fæði,
þvottahús, aðgangur að íþróttahúsi
og sundlaug og þannig mætti lengi
telja. Nánast allir nemendur skólans
eru á heimavistinni og má segja að
það sé góður skóli út af fyrir sig.
Skólinn er hefðbundinn bóknáms
skóli en valgreinar hafa lengi skipað
stóran sess og þar má nefna mat
reiðslu, myndlist og ljósmyndun,
en langvinsælustu valgreinarnar
undanfarin ár hafa verið útivist og
kór.
Útivistin í ML
Þeir sem velja útivist á fyrsta ári
fara í kanóferð á vatninu. Oftast
hefur verið farið niður Hólaá og
endað í Apavatni í samvinnu við
landeigendur. Eftir kanóferðina
bíður þeirra skálaferð og er þá farið
inn í Bása í Þórsmörk og gengið
þar um svæðið. Gist er í skálanum
um kvöldið, grillað og síðan er
kvöldvaka fram eftir kvöldi. Þriggja
daga skíðaferð hefur svo verið farin
eftir áramótin, norður á Akureyri
eða í Bláfjöll. Í framhaldsáföngum
fara þau í GPS gönguferð um ná
grennið, í hellaskoðanir, rafting,
hjólreiðaferðir, ísklifur og fleira.
Þessi áfangi er mjög vinsæll, enda
eru ferðirnar skemmtilegar og krefj
andi.
Kór ML
Söngmenning hefur ávallt verið rík
í Menntaskólanum að Laugarvatni. Í
upphafi að hluta vegna þess að Þórður
heitinn Kristleifsson, sem stjórnaði
skólakórnum í Héraðsskólanum, og
margir eldri nemendur þaðan muna
eftir, var einnig stjórnandi fyrsta
kórsins sem stofnaður var í ML.
Ekki hefur kór verið starfandi óslitið
alla sögu skólans og gengið mis
vel að koma honum til, tíðarandinn
hefur ekki alltaf verið honum í hag
má segja. En undanfarin ár hefur
gengi kórsins vaxið ár frá ári og
nú er svo komið að hann er orðinn
langstærsti framhaldsskólakór lands
ins, með 130 syngjandi nemendur
innan sinna raða. Það er ótrúlegur
hópur, einkum ef horft er til þess að
í skólanum öllum eru 145 nemendur.
Kórinn er valgrein og eins og
sjá má þá velja nánast allir að vera
með í kór. Mætti alveg halda því
fram þangað til það verður hrakið
að um heimsmet sé að ræða miðað
við höfðatöluna. En það er ekki nóg
að vera mjög stór kór, hann þarf líka
að vera góður og það er hann svo
sannarlega.
Áður en Covid19 setti það strik
í reikninginn sem allir þekkja, þá
var komið nokkuð gott ferli í starf
kórsins. Æfingar eru tvisvar í viku
en þar að auki fer kórinn í æfinga
búðir einu sinni á önn og þá t.a.m.
að Varmalandi í Borgarfirði og þá
sungnir tónleikar í Reykholtskirkju.
Jólatónleikar í Skálholti eru fastur
liður og hefur verið fullt út úr
dyrum á tvennum tónleikum í
upphafi aðventu. Á vorönn eru svo
aðrar æfingabúðir og vortónleikar í
Skálholti og Reykjavík.
Hljóðfæraleikarar innan nem
endahópsins fá tækifæri til að
njóta sín með kórnum og hafa
spilað undir á þverflautur, fiðlur,
píanó, trommur, gítar, bassa o.fl.
Kórinn hefur ferðast erlendis, fyrst
til Kaupmannahafnar vorið 2015,
þar sem sungnir voru tónleikar í
fallegri kirkju, skólar heimsóttir
og landið skoðað. Vorið 2018 var
farið til Bolzano á Ítalíu og þangað
var förinni heitið aftur í vor, en því
miður frestast það í bili.
Það hefur skapast sterk heild um
kórinn í ML innan raða nemenda,
öllum þykir vænt um hann, eru stolt
ir af honum og gera því sitt besta.
Útkoman er mikið og öflugt hljóð
færi sem hvaða skóli sem er myndi
vera rífandi stoltur af. En það er ekki
nóg að hafa gott hljóðfæri, það þarf
einhver að spila á það og það gerir
stjórnandinn, Eyrún Jónasdóttir frá
Kálfholti, listavel. Það er að miklu
leyti henni að þakka hve vel hefur
tekist til með kórinn, hún held
ur uppi góðum aga en er um leið
traustur vinur og félagi. Í haust tókst
ekki í ljósi aðstæðna að koma öllum
nemendum í skólann í einu, aðeins
einn árgangur gat komið og verið í
eina til tvær vikur. Því átti að reyna
að halda úti æfingum með hverjum
árgangi og það tókst furðu vel þar til
allt fór eins og það fór og hér hafa
ekki verið nemendur í nokkrar vikur,
en það stendur nú til bóta.
Í vor er á stefnuskránni að fara
í ferð innanlands en það er þó í
óvissu því enginn getur spáð af
öryggi fyrir því hvernig allt þróast
næstu mánuði. Stjórnendur ML hafa
ávallt stutt vel við bakið á kórnum
sem skiptir miklu máli, þeir eiga
heiður skilið fyrir það. En vonandi
fer nú að sjá fyrir endann á þessu
ástandi sem við höfum þurft að búa
við og lífið fari að færast í eðlilegt
horf. Það verður gaman þegar allur
kórinn má koma saman á æfingu, þá
drífum við okkur í Skálholt.
Pálmi Hilmarsson,
Menntaskólanum að
Laugarvatni.Útivistin í rafting niður Hvítá. Kór Menntaskólans að Laugarvatni á jólatónleikum í Skálholti.
Menntaskólinn að Laugarvatni og heimavistir.
Kór Menntaskólans að Laugarvatni í Bolzano á Ítalíu vorið 2018.
LÍF&STARF