Bændablaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. janúar 2021 55
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNI
jardir.is
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Nethyl 2a • 110 Reykjavík • Sími: 577 1000 • info@khvinnufot.is • www.khvinnufot.is
MaxiFlex og MaxiDry
Þú færð
MaxiFlex og
MaxiDry
hjá okkur!
Glerárgata 34b við Hvannavelli • S 461 1092 • asco.is
OKKAR ÆR OG KÝR
— STARTARAR OG ALTERNATORAR —
Í mars nk. kemur út Tímarit Bændablaðsins.
Tímaritið tekur á helstu málefnum landbúnaðarins og eru efnistökin
fjölbreytt. Það verður prentað í 8.000 eintökum og dreift til allra
áskrifenda, á öll lögbýli landsins og í fyrirtæki sem tengjast landbúnaði.
Lengd ritsins er yfir 100 síður og það er prentað á glanstímaritapappír í
stærðinni A4.
Þetta er kjörinn vettvangur til að koma starfsemi sinni á framfæri.
Tímaritið liggur á borðum landsmanna svo mánuðum skiptir og því
má segja að auglýsingar í slíkum blöðum séu langlíf.
Boðið er upp á hefðbundnar auglýsingar í ritinu en í seinni hluta þess
er pláss fyrir kynningarefni frá fyrirtækjum sem unnið er í samvinnu við
blaðamenn.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563-0303 og í gegnum netfangið
gudrunhulda@bondi.is
TÍMARIT BÆNDABLAÐSINS 2021
TRYGGÐU ÞÉR
AUGLÝSINGAPLÁSS Í TÍMA
Tilraunaverkefni um heimaslátrun
sauðfjár á vegum atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisns, í sam-
starfi við Landssamtök sauðfjár-
bænda og Matvæla stofnun, stóð
yfir í síðustu slátur tíð. Verðmætar
upplýsingar fengust úr verkefninu,
til að mynda um umfang og
tímalengd opinbers eftirlits.
Þátttakendur í verkefninu var
öllum heimil og þegar upp var staðið
reyndust 25 sauðfjárbýli úr öllum
landshlutum hafa lokið þátttöku í
því.
Að sögn Hólmfríðar Sveinsdóttur
verkefnisstjóra hefur skýrslu
um verkefnið verið skilað til
ráðuneytisins og er þar unnið að
lokaskýrslu.
Hólmfríður segir að markmið
verkefnisins hafi verið að leita leiða
til þess að auðvelda bændum að slátra
sauðfé heima til markaðssetningar
þannig að uppfyllt séu skilyrði
regluverks um matvælaöryggi
og gætt sé að dýravelferð og
dýraheilbrigði. Þannig verði leitast
við að bæta afkomu sauðfjárbænda,
stuðla að bættri dýravelferð og
sterkari tengingu á milli neytenda
og íslenskra frumframleiðenda
matvæla.
Möguleikar á rafrænni
heilbrigðisskoðun kannaðir
Tilgangurinn með verkefninu var
að sögn Hólmfríðar þríþættur; að
kanna áhuga bænda á slíku verkefni
og lausnunum sem þar átti að prófa,
kanna umfang opinbers eftirlits og
tímalengds heilbrigðisskoðunar
og möguleika á rafrænni
heilbrigðisskoðun.
„Í verkefninu var heilbrigðis
skoðun framkvæmd með því að
dýralæknir fór heim á bæinn og
framkvæmdi heilbrigðisskoðun
á staðnum rétt eins og gert er í
sláturhúsum og hins vegar var
heilbrigðisskoðun framkvæmd þar
sem dýralæknir var við tölvu og
framkvæmdi heilbrigðisskoðun á
lömbunum fyrir slátrun, fylgdist
með framkvæmd slátrunar og
heilbrigðisskoðaði afurðir í rauntíma
í gegnum samskiptaforrit á netinu
Við sýnatökur var ákveðið að
fylgjast með tveimur gæðaþáttum;
sýrustigi í vöðva 24 klukkustundir
eftir slátrun og örveruvexti á
afurð. Þátttakendur framkvæmdu
sjálfir sýrustigsmælingar og
sýnatöku til örverumælinga. Sýni
til örverumælinga voru send til
greininga á rannsóknastofu,“ segir
Hólmfríður.
Hún bætir við að niðurstöður
úr örverumælingum hafi verið
bornar saman við kröfur fyrir
stærstu sláturhúsin sem settar eru
fram í reglugerð nr. 135/2010
um örverufræðileg viðmið fyrir
matvæli.
Tilraunaverkefnið gekk vel
„Almennt séð gekk framkvæmd
verkefnisins vel og var töluverður
áhugi á meðal bænda á verkefninu.
Verðmætar upplýsingar um
umfang og tímalengd opinbers
eftirlits með heimaslátrun
fengust í verkefninu, hvort sem
heilbrigðisskoðun fór fram á
staðnum eða með rafrænum
hætti,“ segir Hólmfríður.
Spurð hvort verkefnið gefi
tilefni til að ætla að hægt verði að
breyta reglum þannig að bændur
geti sjálfir slátrað heima með
fjarfundareftirliti og selt afurðir
sínar beint frá býli, segir hún að
ekki liggi fyrir nein niðurstaða
eða áætlun um slíkt. „Unnið er
að lokaskýrslu verkefnisins og
verður ákvörðun um næstu skref
tekin eftir að hún liggur fyrir.“
/smh
Heimaslátrunarverkefnið frá síðasta hausti gekk vel:
Möguleikar á rafrænni heilbrigðis-
skoðun dýralækna kannaðir
– Verðmætar upplýsingar fengust úr verkefninu um opinbert eftirlit
Hólmfríður Sveinsdóttir, verkefnisstjóri heimaslátrunarverkefnisins.