Bændablaðið - 08.07.2021, Qupperneq 2

Bændablaðið - 08.07.2021, Qupperneq 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 20212 FRÉTTIR Stjórn Dýralæknafélags Íslands sendi nýverið frá sér niður­ stöðu könnunar sem félagið lét gera á líðan dýralækna í starfi. Samkvæmt könnuninni er and­ leg vanlíðan og streita meðal dýralækna algeng hér á landi. Helmingur svarenda taldi álag í starfi vera við þolmörk en minni­ hluti taldi álagið lítið eða í með­ allagi. Bára Eyfjörð Heimisdóttir, for- maður Dýralæknafélags Íslands, segir að ástæðurnar fyrir niðurstöð- unni séu fjölþættar og mismunandi. „Dýralæknar vinna margs konar og ólík störf og í ólíkum geirum. Þjónustudýralæknar í dreifðari byggðum landsins eru fáir og vakt- svæðin stór. Þar sem þéttbýli er meira, eins og í Eyjafirði og víða á Suðurlandi, eru þó nokkuð margir dýralæknar og á þeim svæðum hafa þeir oft starfsfélaga og geta unnið saman að erfiðum tilfellum og slíkt er flestum ómetanlegt. Hins vegar eru á landinu 11 þjónustudýralæknar sem sinna mjög stórum svæðum og vinna oft og tíðum einir og það sem meira er, vaktsvæðin hafa stækkað í kjölfar breytinga á löggjöf um aðskilnað á eftirliti og þjónustu. Í dag eru dæmi um að dýralækn- ar þurfi að keyra um 200 kílómetra aðra leið við erfiðar aðstæður. Þetta gerir það að verkum að þjónustan verður engan veginn nógu góð út frá sjónarmiði dýravelferðar, þjónustu til bænda og álags á dýralækna sem vakta stór svæði og eru mikið á vakt. Skilyrði eins og þessi eru ekki til að trekkja ungt fólk að og því sífellt erfiðara að fá fólk í þessar stöður. Á sama tíma eru of mörg tilfelli um að það getur verið erfitt fyrir bændur að ná í dýralækni eða út frá dýravelferð getur biðin eftir þjónustu verið of löng.“ Álag hefur aukist til muna Helmingur svarenda í könnuninni taldi álag í starfi vera við þolmörk en minnihluti taldi álagið lítið eða í meðallagi. Álag í starfi virðist hafa aukist síðustu misseri en 68% sögðu álagið hafa aukist, þar af 59% mikið eða mjög mikið. Einn af hverjum fimm, eða 21%, sögðust hafa skipt um starf vegna álags á lífsleiðinni og allnokkrir hættu störfum alfarið. „Niðurstaða skýrslunnar sýnir að þróunin er ekki góð,“ segir Bára, „enda miklar sviptingar í greininni frá 1980. Það ár voru héraðsdýra- læknar 26, árið 2011 voru þeir 18 og sinntu þá bæði þjónustu og eft- irliti. Því var breytt vegna löggjafar Evrópusambandsins þar sem um hagsmunaárekstur væri að ræða ef sami aðilinn sæi um þjónustuna og eftirlit. Í dag eru fjórir héraðsdýra- læknar með eftirlitshlutverk fyrir allt landið á vegum Mast og þeir mega ekki sinna dýralæknaþjón- ustu og hafa ber í huga að nýlega var umdæmum héraðsdýralækna Matvælastofnunar fækkað úr fimm í fjögur. Í kjölfar Evróputilskipunarinnar komu til þjónustusamningar við dýralækna sem geta verið ein- yrkjum í stéttinni mjög erfiðir. Þjónustudýralæknar þurfa til dæmis sjálfir að útvega afleysingu komi upp veikindi eða ef þeir vilja komast í frí og eins og staðan er er engan veginn hlaupið að því. Auk þess getur það verið kostnað- arsamt fyrir unga dýralækna að hefja sjálfstæðan dýralæknapraksís, þjón- ustan kallar á dýran tækjabúnað og verkfæri til að geta sinnt starfinu vel.“ Aukinn fjöldi gæludýra Samkvæmt skýrslunni eru helstu ástæður aukins álags sagð- ar vera aukin gæludýraeign lands- manna og auknar og óraunhæfar væntingar og kröfur viðskiptavina. Fram farir í faginu hafa jafnframt aukið þjónustuframboð dýralækna til muna og krafan um aukna tækni- væðingu og endurmenntun verður sífellt háværari. Auk þess sem stór- aukið gæludýrahald á landsvísu, óvægin umræða á samfélagsmiðlum, óraunhæfar kröfur viðskiptavina, einmanaleiki, samúðarþreyta og mann ekla eru meðal helstu orsaka- valda. „Hvað varðar dýralækna í þétt- býli sýndi könnunin að álag á þeim er einnig mikið en að vissu leyti annars eðlis. Margir þessara dýra- lækna eru að þjónusta bæði bænd- ur, gæludýra- og hrossaeigendur. Endurmenntun og sérhæfni dýra- lækna í dag er meiri en fyrir 20 til 30 árum og oft og tíðum flóknari úrræðum beitt til að ná lækningu. Það er rétt að taka það fram að aukin reynsla og þekking dýralækna er afskaplega ánægjulegt, bæði fyrir dýraeigendur og dýralæknafagið.“ Eftirlitsstörf oft töluð niður „Annað sem veldur streitu meðal dýralækna er óvægin umfjöllun um störf þeirra á samfélagsmiðlum, oft innan lítilla hópa. Umfjöllunin getur verið mjög óvægin og ósanngjörn og tengist oftar gæludýrageiranum en landbúnaði, nema þá helst þegar kemur að eftirlitsdýralæknum. Mín skoðun er reyndar sú, því miður, að eftirlitsstörfin séu alltof oft töluð niður og talað neikvætt um þau. Dýravelferðarmál sem eru okkur öllum hugleikin geta oft verið erfið og miklar tilfinningar í gangi og þá kemur fyrir að dýralæknar fái yfir sig skít og skömm þegar þeir eru að vinna vinnuna sína og reyna að gera sitt besta,“ segir Bára. Sjálfsvígstíðni dýralækna víða há Bára segir að Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna hafi rannsakað starfs umhverfi og heilsutengda þætti meðal dýralækna um árabil. „Niðurstöður rannsókna benda til að bandarískir dýralæknar séu mun líklegri til að upplifa and- legan heilsubrest en aðrar stéttir. Einn af hverjum sex dýralæknum í Bandaríkjunum sögðust hafa íhugað sjálfsvíg einhvern tímann um ævina og niðurstöður breskra og norskra kannana benda til hins sama en samkvæmt breskri rann- sókn eru dýralæknar þrisvar til fjórum sinnum líklegri til að falla fyrir eigin hendi en meðalmann- eskjan og norskir dýralæknar um tvöfalt líklegri.“ Ekki liggur fyrir hvort staðan á Íslandi sé jafn slæm og í öðrum löndum en í könnun Dýralækna- félagsins sögðust 75% svarenda finna fyrir streitueinkennum vegna mikils álags í starfi, þar af 45% bæði fyrir líkamlegum og andleg- um einkennum. Horft fram á við Að sögn Báru sýnir könnunin að það verði að grípa í taumana og skoða hvað sé hægt að gera til að bæta líðan dýralækna. „Sem stendur er Dýralæknafélag Íslands að líta til þess sem er verið að gera hjá ná- grannaþjóðum okkar. Í Noregi var árið 2020 farið í þriggja ára rann- sóknir á heilsu dýralækna og þá ekki síst andlega heilsu og í ljósi hás hlutfalls sjálfsvíga í stéttinni. Þrátt fyrir að ekki séu til tölur um sjálfs- víg dýralækna hér á landi höfum við tekið eftir því að fólk er talsvert að detta úr starfi í veikindaleyfi. Við bindum talsverðar vonir við norsku rannsóknina og vonumst til að geta notfært okkur niðurstöðu hennar til að styðja við bakið á okkar fólki. Auk þess viljum við fá samtal við Matvælastofnun um hvað hægt sé að gera til að styðja við dýralækna sem starfa hjá stofnuninni og einnig samtal við stjórnvöld um hver þró- unin hefur verið með vaktsvæðin og vandamál sem tengjast því að fá dýralækna til starfa í dreifðari byggðum.“ Bára segir að Félag dýralækna eigi nú þegar í samtali við Bændasamtök Íslands um það hvernig hægt sé í sameiningu að bæta vinnuumhverfi fyrir dýralækna og þá um leið betri þjónustu fyrir bændur.“ /VH www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 697.500 kr. 25% afsláttur BREKKA 34 - 9 fm Tilboðsverð 369.750 kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 449.400 kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIG PLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐ Á GARÐHÚSUM! Álag og streita meðal dýralækna Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands. Fyrr á þessu ári sendu Bænda­ samtök Íslands og Matvæla­ stofnun bréf til mennta mála­ ráðherra þar sem skortur á dýra læknum er tíundaður og óskað er eftir því að ráðherra beiti sér fyrir aðgerðum til úrbóta. Vigdís Häsler, framkvæmda- stjóri Bændasamtaka Íslands, segir að í framhaldi af bréfinu hafi fulltrúar Bænda sam takanna, Matvæla stofn unar og Dýra lækna- félags Íslands átt fund með full- trúum menntamála ráðuneytisins. „Á fundinum kom fátt annað í ljós en að fulltrúar mennta mála- ráðuneytisins telja mála flokkinn flokkast undir landbúnaðar- ráðuneytið þrátt fyrir að menntun dýralækna falli undir ráðu neyti mennta mála. Málið er því enn í vinnslu og ég reikna með að ráðu neytin tvö séu að ræða sín á milli um hvernig á að leysa það farsællega.“ Bréf til mennta- og menningarmála ráðuneytisins Í bréfinu, sem er dagsett 15. apríl síðastliðinn, segir að síðustu ár hafi skortur á dýralæknum hér á landi verið mikið í umræðunni. „Bændasamtök Íslands og Matvælastofnun óska eftir að ráðherra menntamála beiti sér fyrir því að gerð verði athugun á því hvaða áhrif þessi skortur hafi á íslenskan landbúnað og atvinnuhætti í íslenskum landbún- aði. Jafnframt skora samtökin og stofnunin á að ráðherra, í sam- starfi við viðkomandi fagráðu- neyti í landbúnaði, finni lausn á þessum skorti. Skortur á dýralæknum getur meðal annars haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir aðgengi bænda og almennings að dýralækna þjónustu sem gætu haft alvarleg áhrif á heilsu og velferð dýra, auk fjárhagslegs tjóns fyrir bændur. Skorturinn hefur líka gert það að verkum að MAST hefur þurft að leita eftir erlendu starfsfólki til að gera stofnuninni kleift að sinna skyldum sínum. Í lögum um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020 er að finna heimild til ráðherra til að veita tímabundna ívilnun við endurgreiðslu náms- lána vegna tiltekinna námsgreina að uppfylltum ákveðnum skilyrð- um. Heimildin er ætluð til þess að gefa ráðherra tækifæri til þess að bregðast við ástandi þar sem skortur er viðvarandi eða fyrir- sjáanlegur á fólki með tiltekna menntun með því að skapa sér- stakan hvata fyrir fólk til þess að sækja sér þá menntun eða til að starfa í tiltekinni starfsgrein. Til þess að ráðherra geti ákveðið sérstaka tímabundna ívilnun þurfa að liggja fyrir upplýsingar um viðvarandi skort í ákveðinni starfsstétt eða að skortur sé fyrir- sjáanlegur. Þá er einnig að finna heimild í 28. grein sömu laga til ráðherra að veita tímabundna ívilnun við endurgreiðslu náms- lána hjá lánþegum búsettum á svæðum skilgreindum í samráði við Byggðastofnun, að uppfyllt- um ákveðnum skilyrðum. Bændasamtök Íslands og MAST skora á ráðherra að finna lausn á skorti á dýralæknum hér á landi og óska eftir því að undirbúin verði skýrsla sem byggir á upplýsingum um hvaða áhrif skortur á dýralæknum muni hafa á íslenskan landbúnað og atvinnuhætti í íslenskum land- búnaði. Fulltrúar Bændasamtakanna og MAST eru reiðubúin til frekari viðræðna um efni þessa erindis við ráðherra og fulltrúa ráðuneyt- isins.“ /VH Skortur á dýralæknum og leiðir til úrbóta Vigdís Häsler.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.