Bændablaðið - 08.07.2021, Page 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202118
LANDSJÁ
Sagt er að sá merki stjórn
málamaður Lúðvík Jósepsson
hafi stundum tekið þannig til
orða að alltaf mætti fá einhverja
til þess að reikna, en mestu skipti
þó alltaf út frá hvaða forsendum
væri reiknað. Engu skipti hvort
rétt væri reiknað ef forsendurnar
fyrir útreikningunum væru
rangar.
Fjármálaráðherrar Efnahags- og
framfarastofnunar Evrópu, OECD-
landanna svokölluðu, tóku upp
reiknistokkinn um miðjan níunda
áratuginn og hefðu ekki fengið háa
einkunn hjá Lúðvík.
Á þeim árum var viðvarandi
offramleiðsla á landbúnaðarvörum
um allan heim, verðbólga
og hagvaxtarkreppa. Reagan
og Thatcher gáfu tóninn í
efnahagsmálum og sú forsenda
var gefin að nýfrjálshyggja skyldi
ráða ríkjum og slá á slóðaskapinn.
Stofnunin bjó til skapalón til að
máta löndin við. Það skapalón
samanstóð af hvergilandi úr
hagfræðikennslubók. Í því landi
eru engin inngrip, markaðir eru
svokallaðir samkeppnismarkaðir
þar sem allir hafa jafn miklar
upplýsingar og sjá inn í framtíðina
af fullkominni nákvæmni og
svo framvegis. Land sem ekki
er til. Öll frávik frá fríverslun
eru óeðlileg inngrip inn í alvitra
hegðan markaðarins. Sú niðurstaða
fékkst í upphafi með skilgreiningu
– tæknilegu rothöggi í umræðuna.
Niðurstaðan er alltaf
hin sama
Ár hvert er gefið út mikið
rit af OECD. Það rit fer yfir
landbúnaðarkerfi 55 landa, sem
saman framleiða megnið af
landbúnaðarvörum í heiminum.
Niðurstaða þessa rits er alltaf hin
sama. Löndin gera ekki nóg til
þess að auka frelsi í viðskiptum
með landbúnaðarvörur og ekki
nóg til þess að draga úr styrkjum
sem hrófla við gangverki
markaðarins. Reiknimeistarar
OECD komast að því að öll lönd,
nema helst Indland, Víetnam
og Nýja-Sjáland, styðji sinn
landbúnað á einn eða annan hátt.
En Indland og Víetnam halda
verði á helstu korntegundum
undir heimsmarkaðsverði til
þess að fátækt fólk geti fengið
nauðþurftir.
Ísland fer ekki varhluta af
þessari skýrslu. OECD telur
að stuðningur við landbúnað á
Íslandi sé meiri en víða annars
staðar. Hamrað er á þessu þótt
þróunin sé reyndar sú að dregið
hefur gríðarlega mikið úr stuðningi
síðustu 30 árin. Auk þess má ekki
gleyma að áður fór opinbert fé í
rannsóknir og þekkingaryfirfærslu
í landbúnaði sem núna fer í
eftirlitsstofnanir af ýmsu tagi.
Verðlag hér er hærra en í ESB
OECD kemst að niðurstöðu sinni
varðandi Ísland fyrst og fremst
vegna þess að stofnunin ber saman
verð á ýmsum kjöttegundum
annars vegar og svo hins vegar
reiknimjólk við þau verð sem
íslenskir bændur fá fyrir sínar
afurðir. Hér þarf að taka fram
að það eru engin viðskipti með
hrámjólk yfir landamæri og því
er búin til reiknimjólk úr dufti,
smjöri og osti. Ályktun OECD er
sú að hér á landi sé verð hærra en
þetta svokallaða raunverulega verð
og mismuninn greiði neytendur
í styrki til bænda. Þetta er í
sjálfu sér ekki röng niðurstaða,
það er að segja að hér sé verð á
matvælum hærra en meðaltal í
Evrópusambandinu. En það er bara
litið framhjá því að verðlag á öllu
öðru en fiski er einnig hærra hér
á landi heldur en í löndum ESB.
Sennilega myndi niðurstaða
sambærilegrar greiningar fyrir
aðrar tegundir varnings leiða til
þeirrar ályktunar að verulegur
stuðningur væri frá almenningi til
innflytjenda matvæla sem ekki eru
framleidd hér á landi og bera enga
tolla. Það tel ég ekki endilega vera
vitlaust en það er samt sem áður
ákaflega einfeldningsleg greining.
Á Íslandi er allt dýrt
Ísland er blessunarlega hástökkvari
í efnahagsmálum. Þegar afi minn
fæddist í torfbæ árið 1930 var
verðmætasköpun Íslands á svipuðu
róli og á Fílabeinsströndinni í dag.
Nú er hér allt dýrt miðað við önnur
lönd, ef frá eru talin lönd eins og
Sviss og Noregur. Það blasir því við
að ef íslenskir bændur eiga að búa
í sama efnahagslega raunveruleika
og almenningur á Íslandi þarf
afurðaverð að vera hærra heldur
en að meðaltali í ESB. Sumum
þykir þetta ósanngjarnt og vilja að
bændur á Íslandi keppi við bændur
á Evrópumarkaði eins og þeir búi í
hvergilandi en ekki á Íslandi.
Fjármálaráðherrar og
efnahagssérfræðingar OECD ættu
sem fyrst að endurskoða úreltar
forsendar útreikninga sinna og
horfa almennt en ekki sértækt
á matvælaverð í samanburði
milli landa og reikna út frá
sambærilegum kaupmætti.
Kári Gautason
sérfræðingur hjá BÍ.
OECD-forsendur í
hvergilandi
Kári Gautason.
FRÉTTIR
Ný 110 fermetra deild var fyrr
á árinu tekin í notkun á Heilsu
leikskólanum Álfasteini í Hörgár
sveit. Þetta er þriðja við bygg ingin
við leikskólann frá því hann var
tekinn í notkun árið 1995.
Fyrir 5 árum voru 25 börn í leik-
skólanum og var hann þá um 175
fermetrar að stærð. Nú eru börnin
58 talsins og fermetrarnir orðnir nær
400. Fjölgun barna á leikskólanum
er í takt við fjölgun íbúa í sveitar-
félaginu, en þeir nálgast nú óðfluga
að verða 700.
Nýja viðbyggingin var opnuð upp
úr miðjum mars en þá voru aðstæður
með þeim hætti í samfélaginu að
fögnuðurinn var á lágstemmdum
nótum. Nú hefur birt til og ástæða
þótti til að bjóða foreldrum,
forráðamönnum og öðrum íbúum
að gera sér glaðan dag og skoða þá
glæsilegu aðstöðu sem boðið er upp
á á Álfasteini. Starfsfólk leikskólans
er ekki í vafa um að Álfasteinn sé í
hópi flottustu og best búnu leikskóla
landsins og er stolt af því. Nú starfa
18 manns í leikskólanum.
Samkomusalur með klifurvegg
Fyrir tveimur árum var leikskólinn
stækkaður um 110 fermetra,
m.a. bætt við einni deild og
starfsmannaaðstöðu. Nú var aftur
stækkað um 110 fermetra og einnig
bætt við nýrri deild sem og rúmgóðum
sal þar sem er að finna svið til að nota
við samkomur í skólanum og þar er
einnig klifurveggur sem börnin hafa
gaman af að spreyta sig við.
Álfasteinn er heilsuleikskóli,
hann er staðsettur rétt norðan við
sveitarfélagamörk Hörgársveitar
og Akureyrar, stendur skammt
ofan við þjóðveginn umlukinn
trjágróðri og sveitasælu. Nafnið er
dregið af bóndabænum Dvergasteini
sem er rétt norðan við Álfastein
og einnig stórum steini sem er á
leikskólalóðinni, en hann kom upp
úr grunninum þegar leikskólinn var
byggður.
Læra að bera virðingu
fyrir náttúrunni
Einkunnarorð heilsuleikskólans
Álfasteins eru „Með sól í hjarta“
og er unnið eftir hugmyndafræði
Heilsustefnunnar og jákvæðs aga
auk þess að gera verkefni tengd
Grænafána Landverndar. Leitast er
við í daglegu starfi að börnin læri
að bera virðingu fyrir náttúrunni og
njóta hennar. Mörg barnanna búa á
sveitabæjum og eða í nágrenni við
náttúruna og eru þeim oft tamastir
leikir sem tengjast náttúrunni og
því sem bændasamfélagið býður
upp á. Á Álfasteini er áhersla lögð
á að viðhalda íslenskum siðum og
venjum jafnframt því að opna augu
barnanna fyrir fjölmenningu og fjöl-
breytileika lífsins. /MÞÞ
Börnin á Heilsuleikskólanum Álfasteini í Hörgársveit sungu við raust þegar því var fagnað að ný viðbygging var
tekin í notkun. Myndir / MÞÞ
Í nýbyggingunni er samkomusalur
og þar er líka klifurveggur sem nýtur
vinsælda meðal barnanna.
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Borgfirskur flamenkó-gítarleikari og
spænskir listamenn bjóða til veislu
Þessa dagana eru spænskir
flamenkólistamenn að troða
upp víða um land í samvinnu við
borgfirska gítarleikarann Reyni
Hauksson. Þetta er í þriðja sinn
sem sýningarnar „Flamenkó á
Íslandi“ eru haldnar á Íslandi en
þar koma fram bæði íslenskir og
spænskir listamenn.
Tilefnið er útgáfa fyrstu íslensku
flamenkó-hljómplötunnar sem
Reynir Hauksson gaf út í fyrra.
Sýningarnar áttu að fara fram síðasta
vor en vegna kórónuveirufársins
þurfti að fresta þeim. Listamennirnir
eru því búnir að bíða lengi spenntir
eftir tækifærinu til að koma fram.
Hljómsveitina skipa fjórir
spænskir flamenkó-listamenn ásamt
Reyni Haukssyni frá Hvanneyri.
Listamennirnir munu einbeita sér
að landsbyggðinni í ár þar sem
þeir boða fagnaðarerindið með
flamenkósöng og dansi.
Sýningarnar fara fram á
eftirtöldum stöðum:
Græna hattinum 1. júlí
Valhöll Eskifirði 2. júlí
Borgarfirði eystri 3. júlí
Gamla Bíó Reykjavík 8. júlí
Frystiklefanum Rifi 9. júlí
Hvanneyri Pub 10. júlí
Vestmannaeyjum 11. júlí
Hljómsveitina skipa:
Reynir del Norte - gítar
Jorge el Pisao - gítar
Jacób de Carmen - söngur
Paco Fernández - dans
Cheito - slagverk
Miðar eru aðgengilegir á Tix.is.
https://tix.is/is/event/11439/
flamenco-a-islandi-/
Heilsuleikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit:
Tvisvar sinnum stækkaður á tveimur árum