Bændablaðið - 08.07.2021, Qupperneq 25

Bændablaðið - 08.07.2021, Qupperneq 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 25 þann búning í samanburði við aðrar búninga í öðrum löndum? „Já, þú segir nokkuð. Bún­ inga saga Íslendinga er í flestu lík sögu annarra þjóða en þó með greinilegum íslenskum einkenn­ um. Fatnaður er ávallt unninn úr því hráefni sem völ er á hverju sinni og á Íslandi var ullin mik­ ilvæg. Landnámsmenn báru vit­ anlega búninga samkvæmt sinni tísku, sem skreyttir voru bæði með útsaumi og skarti en einnig eftir tísku og þróun samfélaga í gegnum aldirnar. Um miðja 18. öld fjölgaði ferðum erlendra landkönnuða til landsins og vitanlega beindist áhugi þeirra að lífsháttum og siðum lands­ manna. Faldbúningar kvenna vöktu mikla athygli enda þóttu þeir ólíkir því sem gerðist á meginlandinu. Ýmist þóttu þeir glæsilegir eða til óprýði og tóku margir íslenskir karlmenn undir ógagn þeirra. Málið var rætt víða, m.a. í Kaupmannahöfn á fyrri hluta 19. aldar í hópi mennta­ manna sem í hringiðu sjálfstæð­ isrómantíkur töldu það nauðsyn hverrar þjóðar,“ segir Hildur og bætir strax við: „Með aðkomu Sigurðar málara Guðmundssonar um miðja 19. öld urðu verulegar breytingar og til urðu skautbún­ ingur, kyrtill og upphlutur, sem ásamt peysufötum þróuðust inn í 20. öldina. Þannig hélt þjóðleg tíska velli og í dag berum við stolt búninga formæðra og ­feðra sem sparibúninga á tyllidögum.“ /MHH ára HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf ÍSLAND ER LAND ÞITT Faldafreyjur á Ísafirði útskrifaðar af faldbúningsnámskeiði sumarið 2015. Mikill áhugi hefur verið þar en Hildur kenndi 15 þjóðbúninganámskeið á árunum 2006–2015 á Ísafirði og næsta námskeið er bókað haustið 2021. Fjórar glæsilegar konur, ein í kyrtli og þrjár í skautbúningi. Mastersverkefni Hildar fjallar um prjón í íslenskri búningasögu frá 1760–1900. Verkefnið fjallar um að rannsaka gamlar aðferðir sem hafa glatast og síðan er allur fatnaður handprjónaður. Hér eru Hildur og Ási ásamt frænkunum Hönnu, Erlu og Thelmu í endurgerðum búningum. Bænda bbl.is Facebook Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 KÚPLINGAR gerðir dráttarvéla

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.