Bændablaðið - 08.07.2021, Page 28
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 202128
Brautskráning nemenda frá öllum
deildum Háskólans á Hólum
fór fram við hátíðlega athöfn í
Menningarhúsinu Miðgarði í
Varmahlíð, föstudaginn 11. júní
2021.
Í ár útskrifaðist 21 nemandi úr
Hestafræðideild, 20 með BS próf í
reiðmennsku og reiðkennslu og einn
með diplómu í reiðmennsku og reið-
kennslu.
Brautskráningarnemar til BS-
prófs í reiðmennsku og reið kennslu
luku námi sínu við skólann um
hvítasunnuhelgina. Þetta gerðu þeir
annars vegar með þátttöku í árlegu
Hólamóti í hestaíþróttum og hins
vegar með glæsilegri reiðsýningu á
aðalreiðvelli skólans sem var haldin
22. maí (sjá myndir).
Í augum flestra sem til þekkja
markar reiðsýningin lokapunktinn í
námi við Hestafræðideild og stund-
in, þegar væntanlegir reiðkennarar
klæðast bláa jakkanum í lok sýn-
ingar, er fyrir mörgum jafngildi
brautskráningar og koma fjölskyldur
og vinir nemendanna heim að Hólum
til að fagna með sínu fólki.
Valdís Björk hlaut
tvær viðurkenningar
Við þetta tækifæri tíðkast að veita
tvenns konar viðurkenningar:
Reiðmennskuverðlaun Félags
taminga manna eru veitt þeim nem-
anda, sem hefur hlotið hæstu einkunn
á lokaprófi í reiðmennsku.
Önnur verðlaun, Morgunblaðs-
hnakkurinn, eru veitt þeim nemanda
sem hlýtur hæstu vegna meðal-
einkunn fyrir öll reiðmennskunám-
skeiðin sem nemandinn hefur tekið á
námsferli sínum við skólann.
Í ár var það Valdís Björk
Guðmunds dóttir sem hlaut báðar
þessar viðurkenningar.
Í viðtali við Helga Bjarnason í
Morgunblaðinu segir Valdís: „Ég
hef verið í hestamennsku frá því ég
man eftir mér og öll fjölskylda mín.
Hestafræðinámið á Hólum var eina
námið sem mér leist á, það kom ekk-
ert annað til greina.“... og jafnframt
sagði Valdís:
„Ég kynntist fullt af góðu fólki
og fékk góða kennslu sem ég mun
taka með mér út í lífið.“
Við brautskráningarathöfnina þann
11. júní voru að auki veitt verðlaun
frá Knapamerkjakerfinu fyrir hæstu
vegnu meðaleinkunn í öllum reið-
kennslufræðinámskeiðum í gegn-
um öll þrjú árin og var það Marthe
Skjæveland frá Noregi sem hlaut þau.
Því til viðbótar veitti skólinn bóka-
verðlaun fyrir hæstu vegnu meðal-
einkunn á BS prófi í reiðmennsku
og reiðkennslu eftir öll árin þrjú og
þau verðlaun fékk annar Norðmaður,
Mathilde Espelund Hognestad.
Eftirsóknarvert fyrir ungt fólk
Hestafræðideild Háskólans á Hólum
er vinsæl og eftirsóknarverð fyrir
ungt fólk sem langar að mennta sig
og vinna við hesta.
Allir brautskráningarnemar til BS-prófs í reiðmennsku og reiðkennslu við Hólakirkju eftir glæsilega reiðsýningu sem haldin var á aðalreiðvelli skólans 22. maí. Myndir / Árni Rúnar Hrólfsson
Brautskráning frá Hestafræðideild Háskólans á Hólum 11. júní síðastliðinn:
Valdís Björk Guðmundsdóttir sem hlaut bæði Reiðmennsku-
verðlaun Félags tamingamanna og Morgunblaðshnakkinn
Valdís Björk Guðmundsdóttir hlaut Reiðmennskuverðlaun Félags
tamingamanna, sem eru veitt þeim nemanda sem hefur hlotið hæstu einkunn
á lokaprófi í reiðmennsku. Hún hlaut einnig Morgunblaðs hnakkinn sem
er veittur þeim nemanda sem hlýtur hæstu vegna meðaleinkunn fyrir öll
reiðmennskunámskeiðin sem nemandinn hefur tekið á námsferli sínum
við skólann.
Mathilde Espelund Hognestad frá Noregi hlaut bókaverðlaun fyrir hæstu vegnu
meðaleinkunn á BS prófi í reiðmennsku og reiðkennslu eftir öll árin þrjú.
Ósvikin gleði! – Rósanna Valdimarsdóttir.
Seline Bauer frá Þýskalandi komin í bláa jakkann.
HROSS&HESTAMENNSKA