Bændablaðið - 08.07.2021, Page 33

Bændablaðið - 08.07.2021, Page 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 33 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 TINDAR OG HNÍFAR GOTT ÚRVAL MF RB 3130F RÚLLUSAMSTÆÐA ÚRVAL HEYVINNUTÆKJA FRÁ MASSEY FERGUSON TIL AFHENDINGAR STRAX Á HAGSTÆÐU VERÐI Austurvegur 69 - 800 Selfoss Sími 480 0080 buvelar.is var ástandið svona, horaður fiskur með lítið annað en eigin ungviði í maga. Enda minnkaði stofninn þá snögglega, þvert á væntingar því á þessum tíma taldi Hafró að upp­ byggingin væri að skila sér og bætti í kvótana. Eftir að stofninn minnk­ aði var þetta skýrt með „ofmati“ í fyrri mælingum. Einkennilegt hjá heimsliði í ralli eins og þeir mátu sjálfa sig á þeim tíma. Mikið var veitt hér af smáþorski allt fram að því að útlendingar fóru af miðunum og unnt var fara að „stjórna“ veiðunum. Dæmi um þetta er veiði Breta á sjöunda áratugnum en þá voru rúm 50% afla þeirra að fjölda til við eða undir núverandi viðmiðunarmörkum. 3. Fiskurinn þarf að fá frið til að hrygna Stuðlað er að þessu með s.k. hrygn­ ingarstoppi, þ.e að veiða ekki á hrygningarslóð um hrygningar­ tímann og til öryggis kringum allt land í einhverjar vikur. Til er að svara að fiskur hrygnir hvort sem hann fær „frið“ eða ekki. Fiskur í slíkum hugleiðingum er yfirleitt ekki að hugsa um hvað ger­ ist í kringum hann. Þeir sem hafa fengist við lax­ eða silungsveið­ ar þekkja slíkt vel. Tíðkast hefur frá alda öðli að herja á hrygnandi fisk, m.a. vegna þess hve auðvelt er að ná honum þegar hann safn­ ast saman til hrygningar og er lítt var um sig. Áður fyrr var djöflast á hrygningarfiski án þess að það hefði nokkur áhrif en nú er floti netabáta sem áður stunduðu þessar veiðar að nær engu orðinn. Áður fyrr var á vertíðinni einni veitt tvö­ falt það magn sem nú er leyfilegt að veiða allt árið. Ekki er að sjá að þessi aðgerð hafi nokkru skilað. Því meiri friðun, þeim mun lélegri árgangar, það er reglan. (þetta má auðveldlega skýra, þegar stofninn er stór er ekki þörf á ungviði.) 4. Með því að veiða minna mun stofninn stækka Reiknimeistararnir á Hafró trúa því að veiðar séu sá þáttur sem mest áhrif hefur á stofninn, hann stækki og minnki í hlutfalli við það sem úr honum er veitt. Til þess að þjóna þessu hafa þeir búið til „lögmál“ sem er að gera alla áhrifaþætti að fasta, setja náttúruleg afföll 20% á ári. Svo er leitast við að mæla af­ föllin og allt sem er umfram 20% er skrifað á veiðar. Þetta heitir nú á mannamáli að stinga höfðinu í sand­ inn og þykir ekki gæfulegt. Sannleikurinn er sá að náttúruleg afföll eru mun meiri en veiðarnar, enda sýna rannsóknir á hrefnu að hún étur tvöfalt meira úr þorskstofn­ inum en Hafró gefur sér sem öll náttúruleg afföll. Þeir sögðu sjálfir frá útreikningum á áti hrefnunn­ ar en settu það ekki í samhengi. Merkilegt. Þrátt fyrir svona upplýsingar um þversagnir í „vísindum“, ásamt þeirri bláköldu staðreynd að þorskafli hafi minnkað um 2/3 á tímabili tilraunar­ innar gerist ekkert. Stjórnmálamenn virðast alveg hafa tapað glórunni því þeir mæla með auknum fjárveiting­ um til Hafró. Þarna liggur e.t.v. hundurinn grafinn; allt í fári, meiri rannsóknir, meiri peninga. Stofnanir þurfa nefnilega að viðhalda sjálfum sér. Fróðlegt verður að fylgjast með framhaldinu, því líklegt er að mikil fiskgengd verði á vertíð í vetur – en engir mega veiða. Jón Kristjánsson fiskifræðingur Það er búið að gera tilraun til að byggja upp eða stækka þorskstofninn með því að draga úr veiðum. Tilraunin hefur staðið í 30 ár. Árangurinn er að afli á næsta fiskveiðiári verður aðeins fjórðungur af því sem hann var þegar tilraunin hófst. Er þitt bú öruggur og góður vinnustaður? Er barnið öruggt á þínu búi? börn eiga ekki að leika sér í dráttarvélum eða í kringum þær. það getur reynst lífs- hættulegur leikur. Landbúnaðurinn er frábrugðinn mörgum öðrum atvinnugreinum að því leyti að býlið er jafnframt heimili fjölskyldunnar. Þannig er vinnustaður bóndans oft á tíðum leikvöllur barnanna á sama tíma. Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is PO RT h ön nu n

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.