Bændablaðið - 08.07.2021, Side 45

Bændablaðið - 08.07.2021, Side 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júlí 2021 45 Heimaslóð, Árbók Hörgársveitar er komin út og er þetta átjánda hefti árbókarinnar sem nú lítur dagsins ljós. Sögurfélag Hörgár­ sveitar gefur Heimaslóð út. Hlutverk heimaslóðar hefur verið og er að miðla og varðveita fróðleik sem heimfæra má til Hörgársveitar segir í formála ritnefndar. Í nýjasta heftinu er að finna nýlega samið efni ásamt öðru sem tekið er upp úr áður prentuðum blöðum og ritum. Efnið er margbreytilegt og með mismunandi yfirbragði. Það er frá ýmsum tímum, allt frá fróðlegri grein um stóru- bólu í Möðruvallasókn árið 1707 til skemmtilegrar minningar ungrar stúlku frá sínum fyrstu kynnum af vinnumarkaðnum árið 1994. Grein um sauðfjárniðurskurð árið 1949 Þá er að finna í heftinu ítarlega grein um aðdraganda sauðfjárniðurskurðar á svæðinu haustið 1949 og viðtöl við fjölda fólks um fjárkaup í framhaldi af honum. Birt er búskaparsaga af einum bæ í Skriðuhreppi hinum forna en væntanleg er á árinu bók sem fjallar um bændur og búalið í hreppnum á nítjándu öld. Sagt er frá gönguferð í Trippaskál árið 1981 og eins er fjallað um ferð á Tungnahrygg sama ár. Fjallað er um fyrsta organistann við Eyjafjörð og samskot vegna orgelkaupa, minningar frá Hjalteyri er heiti á einni grein heftisins og sveitasíminn á Þelamörk er heiti á annarri. Þá eru vísnaþættir, fjallað um vatnslögn frá Vöglum og eins um fólk sem bjó í hreppnum. Mikið er lagt upp úr því að birta myndir, bæði sem tilheyra hinu ritaða máli og einnig syrpur sem tengjast ákveðnum efnum. Hægt er að gerast áskrif- andi að Heimaslóð og verða jafnframt félagi í Sögufélagi Hörgársveitar með því að senda póst á netfangið silla2911@gmail.com. /MÞÞ Gróffóðurkeppni Yara 2021 Kynning á keppendum Sláturfélag Suðurlands svf. | Fosshálsi 1, Reykjavík - 575-6000 | yara@yara.is | www.yara.is Knowledge grows 1. Hofsá Svarfaðardal. 2. 1.500 ha, þar af 120 ha ræktaðir. 3. 60 kýr, öll naut alin til kjötframleiðslu og 100 kindur. 4. Klára hana með stæl án þess að verða okkur til skammar. 5. Gera sífellt betur en áður. 6. Réttur sláttutími og góð/hröð verkun. 7. Vallarfox 75% og vallarsveif 25%. 8. Að hún fullnægi sem mest fóðurþörf búsins og um leið lágmarki kjarnfóðurkaup. 9. Við höfum gaman af að ferðast, bæði innan- lands og utan. Það er til býsna skemmtilegt líf utan búsins. 1. Rangárþingi eystra. 2. 600 ha. 3. Blandaður búskapur. 4. Vinna. 5. Gæði heyjanna. 6. Ná hámarks gæðum. 7. Tuukka, Theno, Baron og Barpasto. 8. Halda áfram að endurrækta og kalka túnin. 9. Útivera, útreiðar, fjallgöngur og hjólreiðar. Ásdís Gísladóttir og Trausti Þórisson Hofsá Eiríkur Davíðsson og Sólveig Eysteinsdóttir Kanastaðir Spurningalistinn 1. Hvar er bærinn? 2. Stærð jarðar? 3. Gerð bús? 4. Hvaða markmið hefur þú sett þér í keppninni? 5. Hvað telur þú vera stærsta áskorunin í keppninni? 6. Hvaða þáttur er mikilvægast að heppnist? 7. Hvert er sáðgresi keppnisspildunnar? 8. Hvaða framtíðaráform hefur þú varðandi gróffóðuröflun á þínu búi? 9. Áhugamál BÆKUR&MENNING Heimaslóð, Árbók Hörgár- sveitar komin út Sjá Suðurland: FLIPPAÐIR ferðaþættir Sjá Suðurland er heitið á glæ nýjum ferðaþáttum sem hófu göngu sína sunnudagskvöldið 13. júní á N4. Í þáttunum ferðast æsku­ vinkonurnar María Finnboga­ dóttir og Ásthildur Ómars dóttir um Suðurlandið á Go Campers bíl og lenda þar í ýmsum klikkuðum ævintýrum. Ásthildur er sjónvarpsáhorf- endum á N4 að góðu kunn en hún hefur komið nálægt ýmissi dag- skrárgerð á stöðinni á undanförn- um árum. Æskuvinkona hennar, María Finnbogadóttir, er atvinnu- skíðakona og búsett í Austurríki. Þær stöllur gerðu eftirminnilega ferðaþætti í fyrra fyrir N4 í sem hétu Vá Vestfirðir en þá þvældust þær vinkonur um á Go Campers bíl um Vestfirðina. Í nýju þáttunum, „Sjá Suðurland“, ferðast þær stöllur um Suðurlandið og leita uppi skemmtilega hluti til þess að gera. Á ferðalaginu ögra þær sér á ýmsan máta, fara meðal annars í zipline, á fjórhjól, í svif- drekaflug og skella sér á æfingu hjá einum frægasta crossfittara Íslands, Björgvini Karli Guðmundssyni í Hveragerði. /VH María Finnbogadóttir og Ásthildur Ómarsdóttir. Bænda 22. júlí

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.